Fimm mega koma saman í Danmörku

Mette Frederik­sen, for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur, segir stjórn­völd neyð­ast til að grípa til hert­ari aðgerða vegna útbreiðslu kór­ónu­veirunnar í land­inu. Samkvæmt nýjum reglum mega aðeins fimm koma saman í stað tíu áður.

Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur.
Mette Frederik­sen, for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur. Mynd: EPA

Hertar sót­varna­að­gerðir taka gildi í Danmörku á morgun, mið­viku­dag­inn 6. jan­úar.

Danska rík­is­stjórnin kom saman til fundar í morgun til að ræða næstu skref í bar­átt­unni gegn far­aldri COVID-19. Á blaða­manna­fundi sem hald­inn var í kjöl­farið sagði for­sæt­is­ráð­herr­ann að enn þurfi að herða reglur og sagði ástæð­una m.a. hið breska afbrigði veirunnar sem nú hefur greinst þar og er talið meira smit­andi en aðrir stofnar.

Sam­fé­lags­smit er orðið útbreitt, sagði Mette Frederik­sen for­sæt­is­ráð­herra og að því neydd­ust stjórn­völd til að grípa til harð­ari aðgerða. Aðeins fimm mega koma saman í stað tíu áður og í versl­unum og almanna­rými verður tveggja metra regla í stað eins metra nálægð­ar­marka tekin upp. Sagðist for­sæt­is­ráð­herr­ann ótt­ast að ann­ars myndi heil­brigð­is­kerfið ekki ráða við álagið. Frá og með morg­un­deg­inum verða barir og veit­inga­hús lokuð en heim­send­ing á mat er leyfi­leg.

Á blaða­manna­fund­inum bað Frederik­sen Dani að hafa eft­ir­far­andi til hlið­sjónar:

Að allir séu heima eins mikið og þeir mögu­lega geta.

Að fólk vinni heima ef það er ger­legt.

Aðeins einn frá hverju heim­ili fari að versla.

Að fólk aflýsi öllum fundum og öðrum sam­komum og almennt hitti ekki aðra en sína allra nán­ustu fjöl­skyldu.

Tæplega 173 þús­und manns hafa greinst með COVID-19 í Danmörku frá upp­hafi far­ald­urs­ins. Í dag liggja 942 á sjúkra­húsi vegna sjúk­dóms­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár