Bretar eru stærsti vopnasali Sádi-Arabíu og telja ríkið mikilvægan markað

Bresk stjórn­völd reyna hvað þau geta að landa gróða­væn­legum samn­ingum í Sádí-Arabíu, þrátt fyrir umfangs­mikil mann­rétt­inda­brot. Samkvæmt stefnu Breta á að tryggja að samn­ingar sem gerðir eru um öryggis- og dóms­mál erlendis séu í sam­ræmi við utan­rík­is­stefnu lands­ins, sem bygg­ist meðal ann­ars á mann­rétt­indum. Bretar hættu í síð­ustu viku við að byggja fang­elsi í Sádí-Arabíu vegna mann­rétt­inda­brota, en þeir eru engu að síður stærsti vopna­sali rík­is­ins.

Skjöl sem Observer hefur séð sýna að bresk stjórn­völd flokka Sádí-Arabíu sem mik­il­vægan markað, og hvetja fyr­ir­tæki til þess að sækj­ast eftir við­skipta­samn­ingum í heil­brigð­is­málum, örygg­is­málum, varn­ar­málum og dóms­málum. Margir stærstu samn­ing­anna sem gerðir hafa verið við Sáda voru gerðir sam­kvæmt stefnu stjórn­valda sem reynt hefur verið að halda leyndri. Stefnan snýst um aðstoð í öryggis- og dóms­málum (Overseas Security and Justice Assistance, eða OSJA).

Rann­sóknir hafa einnig leitt í ljós að Bretar eru stærsti vopna­sali Sádí-Arabíu, og að 36 pró­sent allra vopna sem flutt eru þangað inn koma frá Bret­landi. Vopn fyrir fjóra millj­arða punda hafa verið seld þangað frá því að Íhalds­flokk­ur­inn tók við völdum árið 2010. Á næsta ári verða til að mynda 22 her­flug­vélar seldar þangað fyrir 1,6 millj­arð punda.

„Það er að verða ljós­ara og ljós­ara að ráð­herrar eru ákveðnir í því að eiga í sífellt nán­ari sam­skiptum við alræmd­ustu mann­rétt­inda­brjóta heims,“ segir Maya Foa, yfir­maður hjá bresku mann­rétt­inda­sam­tök­unum Reprieve. „Ráð­herrar verða að koma hreint fram um það hversu umfangs­miklir samn­ingar okkar við Sádí-Arabíu og önnur slík ríki.“

Mannréttindabrotin tilefni deilna


Yfir hund­rað ein­stak­lingar voru teknir af lífi í Sádi-Arabíu á fyrri helm­ingi þessa árs.

Mál tveggja ungra manna hafa vakið athygli á mann­rétt­inda­brotum Sáda und­an­farið, en menn­irnir, Ali al-Nimr og Dawoud al-Marhoon, voru báðir sautján ára gamlir þegar þeir voru hand­teknir á mót­mælum. Lögmenn þeirra segja jafn­framt að þeir hafi verið pynt­aðir til að fá fram játn­ingar. Stjórn­völd í Frakk­landi, Þýska­landi, Banda­ríkj­unum og í Bret­landi hafa lýst yfir áhyggjum af þessum dauða­dómum.

Það var mál Nimr og mál Karl Andree, sem er 74 ára breskur rík­is­borg­ari sem var dæmdur til 350 svipu­hagga fyrir að hafa áfengi í fórum sínum, sem varð til þess að dóms­mála­ráð­herr­ann Michael Gove ákvað að draga breska ríkið út úr samn­ingi um bygg­ingu fang­elsis. Þetta olli deilum vði utan­rík­is­ráð­herr­ann Philip Hammond, sem er sagður hafa sakað dóms­mála­ráð­herr­ann um ein­feldni.

Jeremy Corbyn, leið­togi Verka­manna­flokks­ins, hefur óskað eftir því við for­sæt­is­ráð­herr­ann David Cameron að hann láti gera opin­bera og óháða rann­sókn á því hvernig OSJA stefn­unni er fram­fylgt. Corbyn segir að með því að vinna í leyni líti þessu stefnu­mörkun þannig út að hún hjálpi breskum stjórn­völdum að taka með óbeinum hætti þátt í mann­rétt­inda­brotum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár