Danskir stjórnmálamenn æfir vegna Levakovic-dómsins

Danskir stjór­mála­menn eru æfir vegna Hæsta­rétt­ar­dóms yfir sígauna­höfð­ingj­anum Gimi Levakovic, sem hefur lifað á “danska kerf­inu” ára­tugum saman

Hæsti­réttur Dan­merkur stað­festi á fimmtu­dag dóm Eystri- Lands­réttar þess efnis að sígauna­höfð­ing­inn Gimi Levakovic (sem ekki vill kalla sig roma) fái áfram að búa í Danmörku. Hér­aðs­dómur hafði áður úrskurðað að Levakovic, sem er króat­ískur rík­is­borg­ari, skyldi vísað úr landi að lok­inni afplánun fang­els­is­dóms sem hann hlaut í fyrra, fyrir vopna­burð og líf­láts­hót­anir. Danskir stjórn­mála­menn eru æfir vegna dóms­ins og stjórnin boðar laga­breyt­ingar. Gimi Levakovic, sem er 46 ára og hefur búið í Danmörku frá tveggja ára aldri er heima­vanur, ef svo má að orði kom­ast, í dönskum rétt­ar­sölum og fang­elsum því hann hefur tutt­ugu og sjö sinnum hlotið dóm fyrir ýmis konar afbrot og sam­tals setið í grjót­inu í rúm átta ár. Bræður hans og aðrir ætt­ingjar hafa líka verið tíðir gestir í rétt­ar­sölum og fang­elsum.

„Kerfið” hefur ekki brugðist fjölskyldunni

Levakovic fjöl­skyldan, sem telur nú fleiri en fjöru­tíu manns, býr á Amager í Kaup­mann­höfn og hefur gert frá því að hún kom sér þar fyrir með hrör­legt hjól­hýsi árið 1972. Til að gera langa sögu stutta hefur eng­inn úr fjöl­skyld­unni stundað laun­aða vinnu alla þessa ára­tugi en þegið um það bil jafn­gildi 1700 millj­óna íslenskra króna frá danska rík­inu og þar að auki drýgt fram­færslu­líf­eyr­inn með ránum og grip­deildum. Gimi Levakovic er höfuð ætt­ar­innar og stjórnar öllu stóru og smáu. Þótt hann og fjöl­skyldan hafi lengi verið vel þekkt í ”danska kerf­inu” einkum því félags­lega, og svo dóms­kerf­inu, var það þó fyrst eftir sýn­ingu tveggja sjón­varps­þátta í jan­úar í fyrra að fjöl­skyldan varð þjóð­þekkt. Danska þjóðin var væg­ast sagt undr­andi á því að stór fjöl­skylda gæti ára­tugum saman þegið líf­eyri úr sam­eig­in­legum sjóðum lands­manna án þess að nokkur gerði athuga­semdir. Margir stjórn­mála­menn lýstu undrun sinni og töl­uðu um að óhjá­kvæmi­legt væri að ”taka á mál­inu”.

Fangelsisdómar, brottvísun og ekki brottvísun

Hér­aðs­dómur í Næstved á Sjálandi dæmdi í fyrra Gimi Levakovic í tólf mán­aða fang­elsi og að honum skyldi vísað úr landi að afplánun lok­inni. Þeim dómi var áfrýjað til Eystri- Lands­réttar sem sneri brott­vís­un­ar­dóm­inum við en lengdi fang­els­is­vist­ina um þrjá mán­uði.

Þessi við­snún­ingur vakti hörð við­brögð og sak­sókn­ari sagð­ist ætla að freista þess að fá mál­inu skotið til Hæsta­réttar. Sérstök úrskurð­ar­nefnd fjallar um slíkar beiðnir og hún sam­þykkti að Hæsti­réttur tæki málið til með­ferðar. Hæsta­rétt­ar­dóm­ur­inn féll sl. fimmtu­dag og, einsog áður sagði, stað­festi hann úrskurð Eystri- Lands­réttar. Gimi Levakovic fær því áfram að búa í Danmörku. Að baki þeirri nið­ur­stöðu vega þau rök þyngst að Levakovic hafi nær alla ævi búið í Danmörku, þótt hann hafi aldrei verið danskur rík­is­borg­ari, og hann eigi þar tvö ung börn, sem hann hafi for­ræði yfir. Eva Smith, laga­pró­fessor við Hafn­ar­há­skóla, sagði í við­tali við dag­blaðið Berl­ingske að sú stað­reynd að Levakovic eigi ung börn skipti mjög miklu í þessu sam­hengi. Hún benti líka á að þótt saka­fer­ill­inn sé langur sé þar fátt að finna sem talist geti mjög alvar­legt, á mæli­kvarða saka­mála. Pró­fess­or­inn sagði að dóm­ur­inn hefði getað fallið á hvorn veg­inn sem var, en Hæsti­réttur ber­sýni­lega valið að fylgja þeirri stefnu sem Mann­rétt­inda­dóm­stóll­inn í Strass­borg hefur markað. Ef stjórn­mála­menn séu ósáttir við dóma Hæsta­réttar í málum sem þessum þurfi danska þingið, Fol­ket­inget, að setja lög um túlkun Mann­rétt­inda­sátt­mál­ans. Slíkt hafi ekki verið gert.

Stjórnmálamenn mjög ósáttir við dóminn

Óhætt er að segja að dóms­ins hafi verið beðið með eft­ir­vænt­ingu. Þegar hann lá fyrir létu við­brögðin ekki á sér standa. Í dönskum fjöl­miðlum hafa birst fjöl­mörg við­töl við ráð­herra og þing­menn sem nær allir eru mjög ósáttir við dóm­inn. Sumir þeirra gátu ekki leynt reiði sinni og sögðu Hæsta­rétt túlka lag­ara­mmann alltof veikt, brott­vísun úr landi rúmist innan hans. Aðrir sögðu það fyrir neðan allar hellur að danska lagaum­gjörðin skuli vera þannig úr garði gerð að ekki sé nokkur leið að vísa úr landi erlendum rík­is­borg­ara, síbrota­manni, sem hefur kostað sam­fé­lagið millj­óna­tugi. Lars Lökke Rasmus­sen for­sæt­is­ráð­herra sagði strax þegar dóm­ur­inn lá fyrir að stjórnin myndi á haust­dögum leggja fram frum­varp sem tæki til mála af þessu tagi og Inger Stöjberg ráð­herra inn­flytj­enda­mála sagði í við­tali að það væri ólíð­andi að Danir sætu uppi með menn eins og Gimi Levakovic. ”Það er ekki hægt að sætta sig við að ekki sé hægt að reka menn úr landi vegna þess að þeir eigi börn” sagði ráð­herr­ann. Bæði þing­menn og ráð­herrar lögðu áherslu á að dómur Hæsta­réttar í máli Gimi Levakovic yrði virtur, en for­sæt­is­ráð­herr­ann sagð­ist von­ast til að saga af þessu tagi ætti ekki eftir að end­ur­taka sig.

Vi elsker Danmark

Sonur og bróð­ur­sonur Gimi Levakovic voru við­staddir dóms­upp­kvaðn­ing­una. Þeir voru mjög ánægðir með nið­ur­stöð­una en fámálir við fjöl­miðla­menn. ”Vi elsker Danmark, tak Danmark” sagði annar þeirra þegar þeir stigu inn í bíl sinn fyrir utan dóm­húsið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár