Sléttur helmingur landsmanna segjast fylgjandi banni á umskurði drengja samkvæmt nýrri könnun MMR sem lauk í dag. Fyrsta umræða um málið hélt einnig áfram í dag á Alþingi.
[links]Í frétt MMR segir að landsmenn virðist hafa nokkuð sterkar skoðanir á málinu, sem sjáist helst á því að 68 prósent svarenda höfðu algerlega öndverða skoðun á því, það er sögust vera annað hvort mjög fylgjandi banninu (39 prósent) eða mjög andvíg umskurðarbanni (29 prósent).
Þá voru 11 prósent frekar fylgjandi banninu, 8 prósent frekar andvíg og 13 prósent svarenda kváðust hvorki fylgjandi því né andvíg.
Þá vekur athygli að öndverð afstaða til málsins virðist ganga þvert á flesta stjórnamálaflokka þannig að segja má að þjóðin sé pólitískt séð klofin í málinu.
Stuðningur við bann reyndist meiri með lækkandi aldri. Af yngsta aldurshópnum (18-29 ára) sögðust 57 prósent vera fylgjandi banni samanborið við 34 prósent í elsta aldurshópnum (68 ára og eldri). Að sama skapi voru 24 prósent yngsta aldurshópsins sem sögðust vera andvíg banni samanborið við 51 prósent elsta aldurshópsins.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.


















































Athugasemdir