Meirihlutinn í Reykjavík heldur en næstum þriðjungur kjósenda ekki búinn að ákveða sig

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með sama fylgi og hann fékk 2018 og yrði að óbreyttu áfram stærsti flokk­ur­inn í borg­inni. Mið­flokk­ur­inn tapar Vigdísi Hauks­dóttir en Framsókn nær inn í stað­inn. Sam­fylk­ingin missir einn borg­ar­full­trúa yfir til Pírata.

Meirihluti borgarstjórnar í Reykjavíkur samanstendur af Samfylkingu, Viðreisn, Pírötum og Vinstri grænum.
Meiri­hluti borg­ar­stjórnar í Reykja­víkur sam­anstendur af Sam­fylk­ingu, Viðreisn, Pírötum og Vinstri grænum. Mynd: Bára Huld Beck

Meiri­hlut­inn í Reykja­vík myndi halda velli ef kosið væri í dag, en næstu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar fara fram í maí næst­kom­andi. Flokk­arnir fjórir sem hann mynda: Sam­fylk­ing, Píratar, Viðreisn og Vinstri græn hafa sam­an­lagt þá tólf borg­ar­full­trúa sem þarf til að mynda meiri­hluta í 23 manna borg­ar­stjórn, sem er sami fjöldi og þeir höfðu eftir síð­ustu kosn­ingar. Sá munur er þó á að Sam­fylk­ingin tapar einum borg­ar­full­trúa og þremur pró­sentu­stigum af fylgi en Píratar bæta við sig einum. Fjöldi full­trúa Við­reisnar og Vinstri grænna er sá sami. Þetta kemur fram í nið­ur­stöðu könn­unar sem Prósent hefur gert fyrir Frétta­blaðið og birt var í dag.

Það vekur þó athygli að sam­kvæmt könn­un­inni sögðu 30 pró­sent aðspurðra ekki vita hvað þeir myndu kjósa ef gengið yrði til kosn­inga í dag. Nið­ur­stöð­urnar sem birtar eru í Frétta­blað­inu end­ur­spegla því ein­ungis kosn­inga­á­form þeirra sem tóku afstöðu. Það er því eftir nægu að slægj­ast fyrir flokk­anna í aðdrag­anda kosn­inga.

Sjálfstæðisflokkur stendur í stað

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist stærsti flokk­ur­inn í borg­inni með nákvæm­lega sama fylgi og hann fékk í kosn­ingum 2018, um 31 pró­sent. Það myndi tryggja honum átta borg­ar­full­trúa líkt og hann hefur nú og ljóst að flokk­ur­inn þyrfti hið minnsta að ná einum þeirra flokka sem mynda núver­andi meiri­hluta í sam­starf til að ná stjórn á höf­uð­borg­inni á ný. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mun fá nýjan odd­vita fyrir kosn­ing­arnar líkt og hann hefur gert fyrir allar kosn­ingar síðan 1998, en Eyþór Arnalds til­kynnti nýverið að hann myndi hætta. Hildur Björns­dóttir, sem sat í öðru sæti á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins 2018, hefur ein gefið kost á sér í odd­vita­sætið sem stendur en fyr­ir­hugað er að halda leið­toga­próf­kjör í febr­úar og raða svo í önnur sæti á lista.

[adspot]Sam­fylk­ingin er næst stærsti flokk­ur­inn með 22,8 pró­sent fylgi, sem er þremur pró­sentu­stigum minna en hún fékk 2018. Það þýðir að hún tapar einum borg­ar­full­trúa yfir til Pírata sem mæl­ast nú með næstum 15 pró­sent fylgi og þrjá borg­ar­full­trúa. Sam­fylk­ingin mun fara í opið próf­kjör í aðdrag­anda kosn­ing­anna en Dagur B. Egg­erts­son, odd­viti flokks­ins og borg­ar­stjóri frá 2014, mun til­kynna hvort hann sæk­ist eftir áfram­hald­andi setu í byrjun kom­andi árs.

Fylgi Við­reisnar dalar aðeins úr þeim 8,2 pró­sentum sem flokk­ur­inn fékk síð­ast, en hann heldur þó sínum tveimur borg­ar­full­trúum.

Miðflokkurinn bíður afhroð en Framsókn nær inn

Flokkur Fólksins bætir ágæt­lega við sig og er með nálægt sex pró­sent fylgi en það breytir engu um það að flokk­ur­inn yrði að óbreyttu áfram með einn borg­ar­full­trúa. Vinstri græn halda áfram að vera í vand­ræðum í höf­uð­borg­inni, eitt sinn var á meðal bestu póli­tíski veiði­lenda flokks­ins, og mæl­ast með rétt yfir fimm pró­sentu­stig.

Ein stærstu tíð­indin í könn­un­inni eru þó þau að afhroð Mið­flokks­ins frá síð­ustu Alþing­is­kosn­ingum heldur áfram og hann mælist nú með ein­ungis 1,4 pró­sent fylgi, en fékk 6,1 pró­sent árið 2018. Það þýðir að borg­ar­stjórn mun kveðja Vigdísi Hauks­dóttur sem setið hefur þar á þessu kjör­tíma­bili, og látið mikið fyrir sér fara.

Flokk­ur­inn sem Mið­flokk­ur­inn klofn­aði úr, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, hress­ist hins vegar nægi­lega mikið til að ná inn manni að óbreyttu, þótt fylgið mælist ein­ungis 4,1 pró­sent. Framsókn fékk 3,2 pró­sent í kosn­ing­unum 2018.

Könnunin var fram­kvæmd dag­ana 13. til 22. des­em­ber, en um net­könnun var að ræða sem send var á könn­un­ar­hóp Prósents. Úrtakið var 1.700 manns og svar­hlut­fallið 51 pró­sent. Gögnin voru vigtuð til að úrtakið end­ur­spegli álit íbúa Reykja­víkur og tekið var til­lit til kyns og ald­urs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár