Hillary: Þetta er sársaukafullt og verður það lengi

Hillary Clinton, for­seta­fram­bjóð­andi Demókra­ta­flokks­ins, seg­ist von­ast til þess að Donald Trump, verð­andi for­seti Banda­ríkj­anna, verði far­sæll for­seti. Hún segir úrslitin í for­seta­kosn­ing­unum í gær ekki hafa verið þau sem hún hefði von­ast eftir eða viljað, og henni þyki það leitt að hafa tapað.

„Ég veit hversu von­svikin þið eruð af því að ég er það líka,“ sagði hún meðal ann­ars við stuðn­ings­menn sína í fyrstu ræð­unni eftir að ljóst varð að hún tap­aði for­seta­kosn­ing­unum. „Þetta er sárs­auka­fullt og það mun vera það um langa hríð.“ Veru­leik­inn væri sá að Trump yrði for­seti og það þyrfti að gefa honum tæki­færi til að sanna sig.

Clinton lagði áherslu á gildin sem hún og Demókra­ta­flokk­ur­inn stæðu fyrir, frelsi og jafn­rétti. Það þyrfti að gera allt til að tryggja jöfn rétt­indi og vernda þyrfti landið og líka alla jörð­ina. Nú væri það skylda þeirra sem borg­ara að gera sitt til að byggja sterk­ari og rétt­lát­ari Banda­ríki. „Við trúum því að banda­ríski draum­ur­inn sé nógu stór fyrir alla.“ Karla og konur, fólk af ólíkum kyn­þáttum, með ólíkar kyn­hneigðir og svo fram­vegis.

„Ég er stolt og þakk­lát fyrir þessa frá­bæru kosn­inga­bar­áttu sem við háðum saman. Þið eruð dæmi um það besta í Banda­ríkj­unum og að vera ykkar fram­bjóð­andi er ein­hver mesti heiður sem mér hefur hlotn­ast í líf­inu.“

Clinton sagði einnig að bar­áttan hafi aldrei snú­ist um eina mann­eskju eða einar kosn­ingar, heldur um gildi Banda­ríkj­anna. Það hafi komið í ljós að banda­ríska þjóðin sé enn klofn­ari en hún og hennar fólk hafi haldið.

Hún þakk­aði fjöl­skyldu sinni og vara­for­seta­efni sínu, og öllu sínu teymi og stuðn­ings­mönnum. Þá þakk­aði hún for­seta­hjón­unum Barack og Michelle Obama fyrir þeirra störf í átta ár. „Landið okkar stendur í mik­illi þakk­ar­skuld við ykkur.“ Hún tal­aði sér­stak­lega til ungs fólks og kvenna. Hún sagð­ist hafa varið öllu sínu lífi í bar­áttu fyrir betri heimi og því fylgdu bæði sigrar og töp. „Þetta er sárs­auka­fullt, en gerið það, aldrei hætta að trúa því að bar­áttan fyrir því sem er rétt sé þess virði.“

Við konur sagði hún að ekk­ert hefði gert hana stolt­ari en að vera full­trúi þeirra og braut­ryðj­andi. „Ég veit að við erum ekki búnar að brjóta þetta hæsta gler­þak í heimi, en ein­hvern tím­ann ger­ist það og von­andi fyrr en seinna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár