Móðurfélag Norðuráls dregur verulega úr framleiðslu í Bandaríkjunum

Century Aluminum hefur þegar lokað einu álveri af fjórum í Banda­ríkj­unum og minnkað fram­leiðslu í öðru. Nú varar félagið við lokun þriðja vers­ins og minni fram­leiðslu þess fjórða.

Álverð hefur lækkað verulega undanfarið, og forstjóri Century segir framleiðslu Kínverja og niðurgreiðslur hafa mikið að segja.
Álverð hefur lækkað veru­lega und­an­farið, og for­stjóri Century segir fram­leiðslu Kínverja og nið­ur­greiðslur hafa mikið að segja. Mynd: ALCOA/HANDOUT / EPA

Álver Norð­ur­áls á Grund­ar­tanga verður að óbreyttu eina álver Century Aluminum í fullri fram­leiðslu á áli, frá og með ára­mótum. Fyr­ir­tækið hefur á síð­ustu dögum sent frá sér við­var­anir um að álveri í Mt. Holly í Suður-Karólínu verði lokað um ára­mót og að fram­leiðsla álvers fyr­ir­tæk­is­ins í Sebree í Kentucy verði minnkuð um þriðj­ung.

Í júní á þessu ári hafði verið til­kynnt að álveri í Ravenswood í Vestur-Virginíu yrði end­an­lega lokað, en fram­leiðslu þar var hætt árið 2009. Skömmu síðar var til­kynnt að vinnsla í álver­inu í Hawesville í Kentucy yrði lækkuð í um 40 pró­sent af afkasta­get­unni.

Samkvæmt Century er lokun álvers­ins í Mt. Holly fyrst og fremst vegna þess að núver­andi samn­ingur um orku til álvers­ins rennur út um ára­mótin. Búið er að gera nýjan samn­ing um orku til álvers­ins, en ekki hefur tek­ist að semja um flutn­ing á orkunni, að sögn Michael Bless, for­stjóra Century Aluminum. Hann segir fyr­ir­tækið hafa boð­ist til að borga fullt verð fyrir flutn­ing á orkunni, en það hafi ekki dugað til. Þetta segir hann óásætt­an­legt og að barist verði fyrir fram­tíð álvers­ins næstu mán­uði.

Mikið tap á þriðja ársfjórðungi

Century skil­aði fyrir helgi árs­fjórð­ungs­upp­gjöri fyrir þriðja árs­fjórð­ung 2015, þar sem fram kemur að tap félags­ins var rúm­lega 56 millj­ónir Banda­ríkja­dala á tíma­bil­inu. Búið var að gefa út við­vör­un­ina vegna álvers­ins í Mt. Holly fyrir upp­gjörið, en ekki um álverið í Sebree í Kentucy. Það var gert degi eftir að upp­gjörið birt­ist.

Bless hefur verið tíð­rætt um álf­ram­leiðslu Kínverja sem stóra ástæðu fyrir vand­ræðum fyr­ir­tæk­is­ins, og það kemur einnig fram í ummælum hans í tengslum við árs­fjórð­ungs­upp­gjörið. Hann telur að það sé ein­fald­lega ekki hægt að keppa við útflutn­ing Kínverja á áli, vegna þess að iðn­að­ur­inn þar sé nið­ur­greiddur á ósann­gjarnan hátt. „Það verður að grípa til aðgerða strax vegna þess­arar ósann­gjörnu hegð­unar og við erum að vinna með geir­anum og banda­rískum stjórn­völdum til að gera það.“

Hann sagði að teknar hafi verið erf­iðar ákvarð­anir og rekst­ur­inn hafi verið end­ur­skipu­lagður, til dæmis með lok­unum og fram­leiðslu­minnkun. Fyr­ir­tækið muni þannig standa af sér það sem gæti orðið erfitt umhverfi um langt skeið.

Hluta­bréfa­verð Century hefur lækkað veru­lega eftir miklar hækk­anir nán­ast allt árið 2014. Verð á hlut fór hæst í um 31 doll­ara í lok nóv­em­ber í fyrra en við lokun mark­aða í gær var það 4,23 doll­arar á hlut.

Spáðu miklum þrengingum og jafnvel gjaldþroti

Áður en árs­fjórð­ungs­upp­gjörið var birt hafði grein­ing­ar­vef­síðan Seeking Alpha spáð því að hluta­bréfa­verð myndi falla um allt að 50% og mögu­lega væri gjald­þrot framundan hjá félag­inu, eins og Kjarninn greindi frá.

Í grein­ing­unni eru færð rök fyrir því að Century hafi grætt á frá­viki sem varð á Midwest álag­inu ofan á álverð árið 2014, sem hafi aukið tekjur fyr­ir­tæk­is­ins veru­lega í fyrra og á fyrri helm­ingi árs­ins í ár. Midwest álagið (MWP) er álagið sem ákvarðar sölu­verð á áli í Banda­ríkj­unum. Nú hefur þessi staða hins vegar gjör­breyst og álagið hríð­lækkað. Lækkunin hefur hins vegar ekki enn komið almenni­lega fram í tölum fyr­ir­tæk­is­ins og hluta­bréfa­verði þess, að mati grein­ar­höf­undar hjá Seeking Alpha. Hluta­bréfa­lækkun sem vissu­lega hefur orðið und­an­farið hafi að megn­inu til stafað af almennum áhyggjum af efna­hags­á­standi og veik­ara álverði.

Þessi gríð­ar­lega hækkun á álag­inu varð til þess að EBITDA hagn­aður Century fór úr 11 millj­ónum Banda­ríkja­dala árið 2013 í 217 millj­ónir dala árið 2014. Næstum öll hækk­unin var vegna hærra álags, þar sem álverð á álmark­aði London Metal Exchange (LME) hélst nán­ast það sama, en það fer nú lækk­andi eins og kunn­ugt er. Breyting á álag­inu um 22 doll­ara á tonn jafn­gildir fimmtán millj­óna dala breyt­ingum á EBIDTA hjá fyr­ir­tæk­inu, svo að jafn­vel þótt álagið hald­ist þar sem það er nú muni EBIDTA hagn­aður Century Aluminum lækka um 200 millj­ónir Banda­ríkja­dala.

Grein­ing­ar­að­ilar spá því að minni eft­ir­spurn á alþjóða­vísu, og offram­boð af áli, muni halda áfram að ýta verði á áli niður á við á næstu tveimur árum. Spár sem Seeking Alpha taka með í reikn­ing­inn gera ráð fyrir því að verðið lækki um tíu pró­sent á næsta ári til við­bótar við þá lækkun sem orðið hefur á þessu ári.

„Í bjart­sýnni sviðs­mynd þar sem LME verð hald­ast flöt á núver­andi verð­inu 1.550 dalir á tonn mun EBITDA félags­ins lækka um 270 millj­ónir dala. Ef mark­að­ur­inn hefur rétt fyrir sér og verðin lækka um tíu pró­sent, lækkar EBITDA um 50 millj­ónir dala til við­bótar,“ segir í grein­ing­unni á Seeking Alpha.

Samningaviðræður við Landsvirkjun hafnar

Álverið á Grund­ar­tanga kaupir orku af Lands­virkjun, Orku­veitu Reykja­víkur og HS Orku. Samkvæmt grein­ingum á raf­orku­verði til álvera á Íslandi, sem Ketill Sig­ur­jóns­son hefur gert, greiðir Norðurál lægsta raf­orku­verð allra álvera til Lands­virkj­unar. Samn­ingur Norð­ur­áls og Lands­virkj­unar rennur hins vegar út árið 2019 og samn­inga­við­ræður um fram­leng­ingu eru hafnar. Michael Bless hefur sagt að sam­kvæmt samn­ingnum eigi að ganga frá fram­leng­ing­unni á þessu ári.

Lands­virkjun hefur und­an­farin ár gert allt öðru­vísi samn­inga en tíðk­að­ist þegar núver­andi samn­ingur var gerður, og því er ljóst að verðið sem Norð­ur­áli mun bjóð­ast verður hærra en nú er.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár