Bankakerfið að skreppa saman

Ein ástæða þess að íslenska banka­kerfið er að skreppa saman er sú að inn­lán eru ekki að aukast í takt við þróun mála í hag­kerf­inu.

Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri.
Ásgeir Jónsson, seðla­banka­stjóri. Mynd: Bára Huld Beck

Íslenska banka­kerfið er að skreppa saman, og ein ástæðan er sú að inn­lána­fjár­mögnun er ekki að vaxa í takt við hag­vöxt.

Eig­in­fjár­staða bank­anna er sterk en íslenska banka­kerfið er lítið hlut­falls­lega miðað við lands­fram­leiðslu, í alþjóð­legum sam­an­burði.

Fyrirséð að eig­in­fjár­kvaðir bank­anna munu lækka um 0,6-1,25 pró­sentu­stig á næstu árum vegna inn­leið­ingar á Evr­ópu­lög­gjöf um afslátt vegna lít­illa og með­al­stórra fyr­ir­tækja, og þá er einnig fyr­ir­sjá­an­legt að svo­nefndur sveiflu­jöfn­un­ar­auki verði lækk­aður, ef það verður nið­ur­sveifla í atvinnu­líf­inu.

Eig­in­fjár­hlut­föll Arion banka, Íslands­banka og Lands­bank­ans, sem eru skil­greindir sem kerf­is­lægt mik­il­vægir bankar, hefur á und­an­förnum miss­erum verið á bil­inu 22 til 25 pró­sent, og telst það hátt í alþjóð­legum sam­an­burði.

Þetta kom fram í erindi Ásgeirs Jónsson, seðla­banka­stjóra, á SFF-deg­inum, en sam­an­tekt á erindi hans má finna á vef Seðla­banka Íslands.

Í erindu sagði hann enn fremur að það væru ýmsir lang­tíma­þættir sem þrýsta á minnkun banka­kerf­is­ins. Atvinnu­lífið verði í auknum mæli að reiða sig á nýjar fjár­magns­upp­sprettur, sagði hann meðal ann­ars.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár