Borgun styrkti Sjálfstæðisflokkinn og Framsóknarflokkinn um 250 þúsund

Greiðslu­korta­fyr­ir­tækið Borgun hf. styrkti bæði Sjálf­stæð­is­flokk­inn og Fram­sókn­ar­flokk­inn um 250 þús­und krónur hvorn í fyrra. Þetta kemur fram í útdráttum af árs­reikn­ingum flokk­anna tveggja, sem skilað hefur verið inn til Rík­is­end­ur­skoð­unar. Sam­fylk­ingin hefur einnig skilað inn árs­reikn­ingi sínum fyrir árið 2015 en flokk­ur­inn fékk ekki styrk frá Borgun. Kjarninn mun fjalla nánar um árs­reikn­inga flokk­anna á næst­unni.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Borgun styrkti fyr­ir­tækið alla flokka sem sóttu um styrk í fyrra.

Í lok árs­ins 2014, í nóv­em­ber­mán­uði, seldi Lands­bank­inn 31,2 pró­sent hlut sinn í Borgun fyrir 2,2 millj­arða króna til Eign­ar­halds­fé­lags­ins Borg­unar slf., sem stofnað var skömmu fyrir kaupin á hlutn­um. Salan á Borgun var umdeild en hlut­ur­inn var ekki aug­lýstur til sölu, líkt og Kjarninn greindi fyrstur frá í lok nóv­em­ber 2014.

Bæði Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þáver­andi for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, gagn­rýndu söl­una opin­ber­lega eftir að greint var frá því hvernig að henni var staðið. Sig­mundur Davíð sagði málið klúður og undir það tók Bjarni, sem sagð­ist einnig styðja að rann­sókn færi fram á því hvernig að mál­inu var staðið. Fimm af sjö banka­ráðs­mönnum Lands­bank­ans sögðu af sér eftir gagn­rýn­ina, meðal ann­ars frá Banka­sýslu rík­is­ins.

Íslenska ríkið er lang­sam­lega stærsti eig­andi Lands­bank­ans með um 98 pró­sent hlut. Tryggvi Páls­son, for­maður banka­ráðs Lands­bank­ans, sagði í ræðu sinni á aðal­fundi Lands­bank­ans í fyrra að betra hefði verið að aug­lýsa hlut­inn til sölu, og selja hann þannig í opnu og gagn­sæju ferli. Þá voru einnig sterkar vís­bend­ingar um það að verðið hefði verið í lægri kant­inum miðað við hefð­bundna mæli­kvarða verð­mata á sam­bæri­legum fyr­ir­tækj­um.

Hópurinn sem keypti hlut­inn hefur þegar hagn­ast á fjár­fest­ing­unni, en virði Borgunar hefur hækkað og félagið hafið að greiða út arð. Stærsti ein­staki eig­and­inn í félag­inu sem keypti hlut­inn, eign­ar­halds­fé­lag­inu Borgun slf., er Stál­skip ehf., þar sem Guð­rún Lár­us­dóttir hefur stýrt ferð­inni í ára­tugi, með 29,43 pró­sent hlut. Þá á félagið P126 ehf. 19,71 pró­sent hlut, en eig­andi þess er Einar Sveins­son í gegnum móð­ur­fé­lagið Chara­m­ino Hold­ings Limited sem skráð er á Lúx­em­borg. Þá á Pétur Stef­áns­son ehf. 19,71 pró­sent hlut, en for­svars­maður þess var Sig­valdi Stef­áns­son á stofn­fundi. Sam­an­lagður eign­ar­hlutur þess­ara þriggja stærstu eig­enda nemur 68,85 pró­sentum af B flokki stofn­fjár.

Á eftir þessum stærstu eig­endum kemur félagið Vetr­ar­gil ehf. með 5,14 pró­sent hlut og TD á Íslandi ehf. 5,15 pró­sent. Afgang­inn eiga AB 426 ehf (2,86%)., þar sem Sig­ur­þór Stef­áns­son er í for­svari, Egg­son ehf. (0,86%), þar sem Anna Birgitta Geir­finns­dóttir er í for­svari, Bústoð ehf. (0,86%), þar sem Anna Birgitta er einnig í for­svari, Fram­tíð­ar­brautin ehf. (4,43%), þar sem B. Jak­obína Þrá­ins­dóttir er í for­svari, Iðu­steinar ehf., þar sem Magnús Pálmi Örn­ólfs­son er í for­svari, Holt og hæðir ehf., þar sem Sig­ríður V. Hall­dórs­dóttir er í for­svari, Spect­a­bilis ehf., þar sem Óskar V. Sig­urðs­son er í for­svari, og Mens Manus ehf., þar sem Hjalti Þ. Krist­jáns­son er í for­svari.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár