Ferðamenn streyma í óskráða og ólöglega þjónustu

Clive Stacey, sem rekur stærstu, ein­stöku ferða­skrif­stof­una sem skipu­leggur Íslands­ferðir, hefur miklar áhyggjur af stöðu mála hér­lendis. Hann segir aðeins tæki­fær­is­sinna þéna á við­bót­artraffík til Íslands.

„Eins og ég les í stöð­una þá er stórum hluta af þess­ari við­bót­artraffík til Íslands eig­in­lega troðið inn á þessar óskráðu þjón­ustur sem engar reglur gilda um. Þetta gagn­ast ekki neinum nema tæki­fær­issinn­unum sem venju­lega þéna mest, en með litlum ábata, vegna þess að gest­irnir eru féflettir og á sama tíma fær íslensk ferða­þjón­usta á sig slæmt orð,“ segir Clive Stacey, fram­kvæmda­stjóri ferða­skrif­stof­unnar Discover the World, í við­tali við vef­síð­una Túristi.is.

Hann segir að vegna þess að svo mörg flug­fé­lög fljúgi til Íslands hafi þau orðið að lækka far­gjöld til að fylla vél­arnar, og það útskýri verð­lækkun á flugi milli Íslands og Bret­lands milli ára. „Á sama tíma eru hót­elin full­bókuð mestan hluta árs­ins og því verður fólk að not­ast við Airbnb sem gerir búsetu í mið­borg Reykja­víkur dýr­ari fyrir íbú­ana. Og bíla­leigu­fyr­ir­tækin hagn­ast varla því það eru svo margir aðilar sem starfa ólög­lega á þeim mark­aði og sam­bæri­leg staða virð­ist vera á mörgum öðrum sviðum í íslenskri ferða­þjón­ustu.“ Því sé svo miklu „troðið“ inn í óskráða þjón­ustu.

„Ég átta mig á að þetta eru stór orð en ég tel mjög mik­il­vægt að það verði komið á skipu­lagi til að takast á við þetta mikla inn­streymi án þess þó að eyði­leggja helstu ástæður þess að fólk elskar að koma til Íslands.“

Stacey seg­ist hafa skipu­lagt ferðir til Íslands allt frá árinu 1972, og stofn­aði sína eigin ferða­skrif­stofu árið 1984 sem er nú stærsti ein­staki skipu­leggj­andi ferða til Íslands í öllum heim­inum. „Þó ég sé mjög ánægður með að Ísland njóti nú verð­skuld­aðrar athygli sem mik­il­feng­legur áfanga­staður þá hef ég miklar áhyggjur af stefnu­leysi í hvernig á að gera gestum kleift að upp­lifa til hins ýtrasta alls þess ein­staka sem landið hefur upp á að bjóða.“

Ef ferða­fólk eigi að njóta fyrstu og síð­ustu kynna sinna af land­inu þá verði að bjóða upp á flug­höfn sem geti tekið á móti öllum fjöld­anum. „Ef þú vilt að fólk meti helsti ferða­manna­staði lands­ins þá verður að hafa stjórn á þeim fjölda sem þangað kemur. Og ef þú lofar fólki víð­áttu þá máttu ekki bara leyfa þús­undum manna að streyma inn á við­kvæm svæði sem þola ekki svona mik­inn ágang. Með öðrum orðum þá verður að setja reglur til að vernda þessi verð­mæti og hið verð­mæta vöru­merki Iceland,“ segir Stacey við Túrista.

Hann segir að lítið hafi verið gert þrátt fyrir að mikið hafi verið rætt um hvernig eigi að taka á ferða­manna­straumnum. „Rík­is­stjórn Íslands verður að ráð­ast í aðgerðir og vinna með öllu hags­muna­að­ilum í að búa til almenni­legt skipu­lag sem gerir ferða­fólki mögu­legt að njóta íslenskrar nátt­úru og þétt­býlis án þess þó að skerða lífs­gæði íbú­anna sjálfra."

Mann­mergðin við vin­sæl­ustu ferða­manna­stað­ina er ennþá meira vanda­mál í dag en fyrir ári síðan. „Hvort að þeir sem halda um stjórn­taumana, hverjir sem það nú eru, hafi gert eitt­hvað í mál­unum er erfitt að segja en við fáum fleiri kvart­anir varð­andi þetta atriði núna en áður. Það á líka við um Flugstöð Leifs Eiríks­sonar en þar eru greini­lega alltof margir far­þegar sam­an­komnir á nokkrum dag­spörtum, en hvort það sé óhóf­legt, miðað við alla flug­um­ferð­ina, er erfitt að segja.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár