„Ef þið eruð pirruð þarna úti, ekki láta það bitna á starfsfólki verslana“

Fjöl­margar ábend­ingar hafa borist yfir­lög­reglu­þjóni þess efnis að við­skipta­vinir versl­ana komi illa fram við starfs­fólkið.

Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn
Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn Mynd: Lögreglan

Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn sagði á dag­legum blaða­manna­fundi í dag að hann hefði fengið mikið af ábend­ingum síð­asta sól­ar­hring­inn frá starfs­fólki í versl­unum sem kvarti undan fram­komu við­skipta­vin­anna.

„Ef þið eruð pirruð þarna úti, ekki láta það bitna á starfs­fólki versl­ana. Það eru ekki þau sem setja regl­urnar. Þau eru að fram­fylgja því sem við segjum. Látið það þá frekar bitna á okkur, við getum reynt að útskýra það ef fólk er ekki að skilja það. Ekki láta það bitna á sak­lausi starfs­fólki sem er bara að reyna að gera sitt besta til þess að sinna okkar þörfum,“ sagði Víðir.

Hann ítrek­aði jafn­framt að fólk ætti að forð­ast það að ferð­ast inn­an­lands um pásk­ana, og reyna að versla tím­an­lega til þess að lenda ekki í örtröð.

„Og að lokum þetta sem við erum alltaf að segja: Ef þér líður eitt­hvað illa vertu heima. Ef þú ert með ein­hvers konar ein­kenni; háls­bólgu eða eitt­hvað nef­rennsli, vertu heima. Verum örugg á þessu, tal­aðu við lækn­inn þinn og athug­aðu hvort þú megir fara út eða ekki. Ekki fara út – ekki íslenska vík­ing­inn á þetta – með kvefið, háls­bólg­una og bein­verk­ina og ætla að mæta í vinn­una. Ekki gera það,“ sagði Víðir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár