Tugir milljarða streyma óskattlagðir út af íslenska fjölmiðlamarkaðinum en RÚV styrkir stöðu sína

Erlend fyr­ir­tæki sem borga ekki skatta á Íslandi taka til sín 40 pró­sent af aug­lýs­inga­tekjum á íslenskum fjöl­miðla­mark­aði. Á átta árum hafa næstum 50 millj­arðar króna flætt til þeirra, og út af íslenska mark­aðnum.

Frá 1997 til 2016 juk­ust tekjur fjöl­miðla á Íslandi á hverju ein­asta ári í krónum talið með einni und­an­tekn­ingu, árinu 2009 þegar eft­ir­köst banka­hruns­ins komu fram. Frá 2016 hafa þær hins vegar lækkað á milli allra ára sem liðin eru.

Það ár voru sam­an­lagðar tekjur íslenskra fjöl­miðla 28,1 millj­arðar króna. Árið 2020 voru þær 25,1 millj­arður króna og höfðu því lækkað um tæp ell­efu pró­sent á fjórum árum.

Þetta má lesa úr nýjum tölum sem Hagstofa Íslands birti í síð­ustu viku og sýna þróun á tekjum fjöl­miðla á Íslandi.

Mestur hefur sam­drátt­ur­inn orðið hjá þeim fjöl­miðlum sem gefa út dag­blöð og viku­blöð. Tekjur þeirra hafa farið úr 7,3 í 4,5 millj­arða króna á þessu fjög­urra ára tíma­bili. Það er sam­dráttur upp á rúm­lega 38 pró­sent. Tekjur ann­arra blaða og tíma­rita hafa sömu­leiðis hrunið frá 2016, um alls 28 pró­sent.

Eini þátt­tak­and­inn á íslenskum fjöl­miðla­mark­aði sem hefur ekki orðið fyrir áhrifum af þessum breyt­ingum er Rík­is­út­varpið. Tekjur þess, sem koma að mestu úr opin­berum sjóðum en líka úr aug­lýs­inga­sölu, hafa þvert á móti auk­ist ár frá ári. Árið 2016 voru tekjur RÚV 5,8 millj­arðar króna en hækk­uðu í 6,6 millj­arða króna 2020, sam­kvæmt sam­an­tekt Hag­stof­unnar. Það er aukn­ing upp á tæp 14 pró­sent. Það eru lægri tekjur en til­greindar eru í árs­reikn­ingi RÚV, þar sem rekstr­ar­tekj­urnar eru sagðar tæp­lega 6,9 millj­arðar króna. Af þeim komu yfir 70 pró­sent beint úr opin­berum sjóðum eða 4,9 millj­arðar króna.

Alls tekur RÚV til sín yfir 26 pró­sent af öllu fjár­magni sem fer inn á íslenskan fjöl­miðla­markað og mark­aðs­hlut­deild opin­bera fjöl­mið­ils­ins hefur ekki verið hærri frá árinu 1997, sem var fyrsta árið sem Hag­stofan tók saman rekstr­ar­tölur um fjöl­miðla. Mark­aðs­hlut­deild RÚV var tæp­lega 21 pró­sent árið 2016.

Ekkert bendir til þess að breyt­ing verði á þess­ari stöðu. Samkvæmt fjár­lögum árs­ins 2022 voru fram­lög til RÚV hækkuð um 430 millj­ónir króna, sem er 40 millj­ónum krónum meira en sam­an­lagðir styrkir til ann­arra fjöl­miðla úr opin­berum sjóðum. Þeir styrkir voru lækk­aðir milli ára.

Tekjur vefmiðla dregist saman frá 2016

Þrátt fyrir afar breytta neyslu­hegðun, sem felst aðal­lega í því að fólk sækir sér mun meira frétta- og afþrey­ing­ar­efni á netið, hafa tekjur vef­miðla dreg­ist saman á síð­ustu árum. Frá 2002 og fram til árs­ins 2016 höfðu þær vaxið ár frá ári, úr 76 millj­ónum króna í tæp­lega 2,1 millj­arð króna. Frá því ári hafa tekjur vef­miðla hins vegar dreg­ist saman, alls um 13,3 pró­sent. Svo virt­ist sem við­spyrna væri að eiga sér stað á árinu 2019, þegar tekjur hækk­uðu um rúm fjögur pró­sent milli ára, en kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn kippti þeim við­snún­ingi til baka. Alls féllu tekjur vef­miðla um rúm­lega sex pró­sent á árinu 2020 og höfðu ekki verið lægri í krónum talið síðan 2015.

Í grein­ingu Hag­stof­unnar er vef­miðlum skipt í sjálf­stæða vefi og fjöl­miðla­vefi. Fjöl­miðla­vef­irnir, sem eru að uppi­stöðu þeir frétta­vef­miðlar sem Íslend­ingar nota dags dag­lega, nán­ast tvö­föld­uðu tekur sínar á árunum 2013 til 2018. Frá því ári hafa tekjur þeirra hins vegar dreg­ist saman um sex pró­sent.

Næstum 50 milljarðar til erlendra á átta árum

Ein stærsta eðl­is­breyt­ingin sem orðið hefur á íslensku fjöl­miðlaum­hverfið á síð­ustu árum er inn­koma erlendra aðila, sem greiða enga skatta né gjöld á Íslandi, inn á mark­að­inn fyrir aug­lýs­inga­birt­ingar. Árið 2012 voru erlendir aðilar með fjögur pró­sent hlut­deild í aug­lýs­inga­tekjum hér­lendis. Strax árin 2013 var sú hlut­deild komin upp í 29 pró­sent og und­an­farin ár hefur hún verið 40 pró­sent. Frá byrjun árs 2013 og til loka árs 2020 runnu alls 48,6 millj­arðar króna af íslenska mark­aðnum til erlendra aðila vegna kaupa á aug­lýs­ingum, mark­aðs­rann­sóknum eða skoð­ana­könn­unum.

Umtals­verður hluti þeirra greiðslna sem varið er vegna birt­ingar aug­lýs­inga í erlendum miðlum rennur til tveggja aðila, Facebook og Google (ásamt YouTube). Í umfjöllun Hag­stof­unnar segir að „upp­lýs­ingar um greiðslu­korta­við­skipti vegna aug­lýs­inga og skyldrar starf­semi sýna að um og yfir níu af hverjum tíu krónum hafa und­an­farin ár runnið til þess­ara tveggja aðila.“

Árið 2012 var mark­aðs­hlut­deild Facebook og Google í íslensku aug­lýs­inga­tekjukök­unni 3,3 pró­sent. Árið 2020 var hún orðin 25 pró­sent. Tekjur Facebook og Google á Íslandi hafa vaxið úr 371 milljón króna á ári árið 2013 í um 3,9 millj­arða króna árið 2019, þegar þær náðu hámarki (aug­lýs­inga­tekjur erlendra aðila lækk­uðu í far­aldr­inum um 13 pró­sent, sem er sama lækkun og varð á tekjum íslenskra fjöl­miðla). Þær tíföld­uð­ust því á sjö árum.

Árlegar aug­lýs­inga­tekjur inn­lendra fjöl­miðla dróg­ust saman um 4,5 millj­arða króna milli áranna 2016 og 2020, eða um 31 pró­sent.

Starfandi fækkað um næstum helming á tveimur árum

Afleið­ing þess­arar þró­unar hefur átt sér margs­konar birt­ing­ar­myndir. Ein slík birt­ist í Menn­ing­ar­vísum Hag­stof­unnar sem birtir voru í fyrra­sumar. Þar kom fram að árið 2013 hefðu 2.238 manns starfað í fjöl­miðlun á Íslandi. Árið 2020 voru þeir orðnir tæp­lega 876 tals­ins. Fækk­unin hafði ágerst hratt á síð­ustu árum. Frá árinu 2018 og út árið 2020 fækk­aði starf­andi fólki í fjöl­miðlum 45 pró­sent, eða 731 manns.

Sam­hliða fækkun starfs­manna fjöl­miðla hefur launa­sum­ma, árleg summa stað­greiðslu­skyldra launa­greiðslna launa­fólks, einnig dreg­ist saman meðal rekstr­ar­að­ila í fjöl­miðl­un. Árið 2018 var launa­summan 8,1 millj­arður króna. Árið 2020 var hún hins vegar komin niður í 5,3 millj­arða króna og hafði því dreg­ist saman um 35 pró­sent á tveimur árum.

Mikil umræða en litlar aðgerðir

Bág rekstr­ar­staða fjöl­miðla hefur verið til umræðu hér­lendis árum sam­an. Árið 2016 var skipuð nefnd til að fjalla um vand­ann, svo var rituð skýrsla sem skilað var rúmum tveimur árum síðar með sjö til­lögum til úrbóta, þá var unnið úr til­lögum hennar og loks smíðuð frum­vörp.

Lilja Alfreðsdóttir er ráðherra fjölmiðlamála í nýrri ríkisstjórn. Hún var með málaflokkinn á sinni könnu á síðasta kjörtímabili líka.
Lilja Alfreðs­dóttir er ráð­herra fjöl­miðla­mála í nýrri rík­is­stjórn. Hún var með mála­flokk­inn á sinni könnu á síð­asta kjör­tíma­bili líka.

Einungis ein þeirra til­lagna, styrkja­kerfið fyrir einka­rekna fjöl­miðla þar sem 400 millj­ónum króna er útdeilt til þeirra, hefur náð í gegn. Þorri þeirrar upp­hæðar fer til þriggja stærstu fjöl­miðla­fyr­ir­tækja lands­ins, Árvakurs, Torgs og Sýnar. Tvö fyrr­nefndu fyr­ir­tækin reka einu eft­ir­stand­andi prent­uðu dag­blöð lands­ins, sem hafa hrunið í lestri á und­an­förnum árum. Frétta­blaðið hefur tapað 40 pró­sent les­enda sinna og Morg­un­blaðið 35 pró­sent frá byrjun árs 2016.

Ekk­ert hefur verið gert með til­lögur um að breyta stöðu RÚV á aug­lýs­inga­mark­aði, lækka virð­is­auka­skatt á tekjur þeirra enn frekar, heim­ila aug­lýs­ingar sem hafa verið bann­aðar hér­lendis en eru leyfi­legar í flestum öðrum lönd­um. Þá lagði nefndin til að settar yrðu skýrar reglur um gagn­sæi í aug­lýs­inga­kaupum hins opin­bera þannig að opin­berum aðilum beri að birta sund­ur­lið­aðar upp­lýs­ingar um kaup á aug­lýs­ing­um. Af því hefur ekki orðið.

Stefán Eiríksson er útvarpsstjóri RÚV.
Stefán Eiríks­son er útvarps­stjóri RÚV.

Til við­bótar við ofan­greint hefur, líkt og áður sagði, það haft mikil áhrif á rekstr­ar­um­hverfi fjöl­miðla að aug­lýs­inga­tekjur hafa flætt frá hefð­bundnum íslenskum miðlum til alþjóð­legra sam­fé­lags­miðla- og net­fyr­ir­tækja sem greiða ekki skatta af þeim tekjum hér­lend­is. Um er að ræða tugi millj­arða króna. Íslensk stjórn­völd hafa ekki gert neinar til­raunir til að skatt­leggja þessar tekjur.

Fjöl­miðla­frelsi á Íslandi dregst hratt saman

Stuðn­ingur við rekstur einka­rek­inna fjöl­miðla er umtals­verður á hinum Norð­ur­lönd­un­um.

Í vísi­tölu sam­tak­anna Blaða­manna án landamæra raða þau sér í efstu sætin yfir þau lönd þar sem ríkir mest fjöl­miðla­frelsi. Nor­egur er í fyrsta sæti, Finn­land er í öðru sæti, Dan­­mörk í þriðja sæti og Sví­­þjóð í fjórða sæti.

Ísland situr hins vegar í 16. sæti á lista sam­tak­anna og féll um eitt sæti á milli ára.

Mestur er stuðn­ing­ur­inn í Nor­egi, því landi þar sem fjöl­miðla­frelsi mælist mest í heim­in­um. Þar hefur verið mik­ill vilji til að auka við opin­bera styrki frekar en að draga úr þeim enda hefur reynslan af þeim verið jákvæð. Hinn 7. mars 2017 skil­aði nefnd sem skipuð var af norskum stjórn­völdum hvít­bók sem inni­hélt til­lögur til að efla fjöl­miðla þar í landi. Meðal þeirra til­lagna sem settar voru fram í hvít­bók­inni var að auka styrk­veit­ingar til smærri fjöl­miðla, ein­falda umsókn­ar­ferlið og gæta jafn­ræðis milli fjöl­miðla óháð því hvernig efni er miðl­að.

Danska rík­is­stjórnin kynnti nýjar til­lögur um stuðn­ing við fjöl­miðla í síð­ustu viku. Þar eru lagðar til marg­hátt­aðar til­lögur til að styrkja umhverfi sem á veru­lega undir högg að sækja, meðal ann­ars með því að skatt­leggja erlenda aðila sem starfa á mark­aðnum og með því að veita allskyns styrkti til að efla fjöl­breytta fjöl­miðlun. Kynn­ing­ar­bæk­lingur um fjöl­miðla­stefn­una hefst á yfir­lýs­ingu um að sterkir og frjálsir fjöl­miðlar séu for­senda fyrir heil­brigðu lýð­ræði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár