Hafði áhyggjur af því að Boris Johnson gæti smitað drottninguna af COVID

Fyrrum aðal­ráð­gjafi for­sæt­is­ráð­herra Breta gagn­rýnir aðgerð­ar­leysi hans í sótt­varna­málum í nýju við­tali við BBC. Hann seg­ist hafa gripið í taumana þegar for­sæt­is­ráð­herr­ann ætl­aði á fund drottn­ingar við upp­haf far­ald­urs.

Dominic Cummings var kosningastjóri Vote Leave samtakanna sem börðust fyrir útgöngu Breta úr ESB. Hann varð síðar aðalráðgjafi Borisar Johnson forsætisráðherra.
Dominic Cummings var kosn­inga­stjóri Vote Leave sam­tak­anna sem börð­ust fyrir útgöngu Breta úr ESB. Hann varð síðar aðal­ráð­gjafi Borisar Johnson for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: EPA

Boris Johnson for­sæt­is­ráð­herra Breta var and­vígur því að koma á útgöngu­banni við upp­haf ann­arrar bylgju kór­ónu­veiru í Bret­landi síð­asta haust vegna þess að á þeim tíma voru flestir þeirra sem lét­ust vegna veirunnar á níræð­is­aldri. Þetta er meðal þess sem kom fram ívið­tali BBC við Dominic Cummings frá því í vik­unni. Síðasta haust var mikið rætt um það innan bresku rík­is­stjórn­ar­innar að setja á útgöngu­bann vegna auk­ins fjölda smita en Johnson var afar mót­fall­inn hertum sótt­varna­að­gerðum sem verka­manna­flokk­ur­inn var far­inn að kalla eftir um miðjan októ­ber.

„Það er yfir með­al­lífslíkum. Svo nældu þér í COVID og lifðu lengur,“ á Johnson að hafa sent í texta­skila­boðum til Cummings og bætti því við að hann skildi ekki tal um álag á starfs­fólk bresku heil­brigð­is­þjón­ust­unnar NHS. Að sögn Cummings vildi Johnson heldur að kór­ónu­veiran fengi að ganga laus en að leggja efna­hag lands­ins að veði.

Hafði áhyggjur af drottningunni

Cummings sagði frá því í við­tal­inu að hann hefði gripið í taumana þegar Johnson hefði ætlað að funda með Elísa­betu Breta­drottn­ingu snemma í far­aldr­inum en drottn­ingin er komin yfir nírætt. Cummings hefur eftir Johnson frá 18. mars í fyrra: „Ég ætla að hitta drottn­ing­una, það er það sem ég geri á hverjum mið­viku­degi. Fjandinn hafi það. Ég ætla að fara og hitta hana.“

Cummings leist ekki á blik­una og seg­ist hafa stöðvað for­sæt­is­ráð­herr­ann. „Það er fólk sem vinnur hér á skrif­stof­unni í sótt­kví. Þú gætir verið smit­aður af kór­ónu­veirunni. Ég gæti veirð smit­aður af kór­ónu­veirunni. Þú getur ekki farið og hitt drottn­ing­una. Hvað ef þú myndir svo smita drottn­ing­una af kór­ónu­veirunni? Þú getur aug­ljós­lega ekki farið,“ á Cummings að hafa sagt.

Samkvæmt umfjöllun BBC hafnar skrif­stofa for­sæt­is­ráð­herr­ans að þetta hafi gerst en Cummings vill meina að Johnson hafi svarað Cummings með þeim orðum að hann hefði ekki hugsað málið til enda.

Vildi losna við Johnson úr embætti

Í við­tal­inu heldur Cummings því fram að Carrie Symonds, sem þá var kærasta Johnson en þau eru nú gift, hafi reynt að hafa áhrif á starf­semi ráðu­neyt­is­ins. Hún hafi til að mynda viljað að Cummings sem og fleiri emb­ætt­is­menn sem starfað höfðu við Vote Leave her­ferð­ina fyrir Brexit yrðu látnir taka pok­ann sinn. Þessu hefur tals­maður for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins hafnað, það sé for­sæt­is­ráð­herr­ann, og hann einn, sem ráði póli­tískum skip­unum í ráðu­neyt­inu.

Cummings segir að skömmu eftir þing­kosn­ing­arnar 2019 hafi farið af stað umræður meðal emb­ætt­is­manna í ráðu­neyt­inu þar sem rætt var að skipta Johnson út fyrir ein­hvern annan í emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra. Spurður að því hvort það geti talist í lagi að ókjörnir emb­ætt­is­menn reyni að skipta for­sæt­is­ráð­herra út, ein­ungis örfáum dögum eftir kosn­ingar segir Cummings: „Þetta er bara póli­tík.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár