Íslendingarnir fá þrjá og hálfan milljarð fyrir hlut í Domino's

Þeir íslensku fjár­festar sem komið hafa að rekstri Domino's hér­lendis á und­an­förnum árum hafa marg­faldað fjár­fest­ingu sína. Domino's er vin­sæl­asti veit­inga­staður á Íslandi, er í útrás á Norð­ur­löndum og íslensku áhersl­urnar hafa vakið heims­at­hygli.

Framtakssjóðurinn EDDA keypti sig inn í Domino's á Íslandi í mars í fyrra. Kaupverðið var ekki gefið upp en ljóst er að sjóðurinn hefur ávaxtað fjárfestingu sína afar vel.
Fram­taks­sjóð­ur­inn EDDA keypti sig inn í Domino's á Íslandi í mars í fyrra. Kaup­verðið var ekki gefið upp en ljóst er að sjóð­ur­inn hefur ávaxtað fjár­fest­ingu sína afar vel.

Íslenskir eig­endur Domino's Pizza hér­lendis fá 20 millj­ónir punda, um þrjá og hálfan millj­arð króna fyrir þann 49 pró­sent hlut í móð­ur­fé­lagi keðj­unnar sem seld hefur verið til Domino's Pizza Group í Bret­landi. Íslenska félagið, Pizza-Pizza ehf. á allan rekstur Domino's á Íslandi auk þess sem það er með sér­leyfi fyrir rekstri pít­sa­keðj­unnar í Noregi og Danmörku. Íslenska félagið á 51 pró­sent í þeim félögum á móti öðrum fjár­festum.

Auk kaupanna í Pizza-Pizza hefur Domino's Pizza Group keypt 20 pró­sent hlut í norska rekstr­ar­fé­lag­inu á um fjórar millj­ónir punda, tæp­lega 500 millj­ónir króna, af norsku fjár­festum. Heild­ar­fjár­fest­ing breska félags­ins í rekstri Domino's pítsu­staða í meiri­hluta­eigu Íslend­inga nemur því um fjórum millj­örðum króna.

Birgir Bielt­vedt, stjórn­ar­for­maður Domino's á Íslandi og stærsti ein­staki eig­andi móð­ur­fé­lags þess, segir að hann verði áfram stærsti eig­andi félags­ins og starf­andi stjórn­ar­for­maður eftir við­skiptin. Breska Domino´s fær þó kaup­rétt í við­skipt­unum og núver­andi meiri­hluta­eig­endur sölu­rétt. Því getur vel farið svo að Domino's á Íslandi verði að öllu leyti í breskri eigu í náinni fram­tíð.

Keyptu á 210 milljónir og tóku yfir skuldir

Birgir keypti, ásamt vinum og fjöl­skyldu Pizza-Pizza ehf., sem rekur Domino's Pizza á Íslandi, árið 2011. Samkvæmt til­kynn­ingu frá Lands­bank­anum, sem seldi fyr­ir­tækið, var kaup­verðið 210 millj­ónir króna auk þess sem nýir eig­endur tóku yfir 350 milljón króna skuldir fyr­ir­tæk­is­ins.

Birgir hafði áður komið að rekstri Domino's, en hann var upp­hafs­maður fyr­ir­tæk­is­ins hér­lendis árið 1993. Eftir að hafa hætt þar störfum 1996 keypti Birgir sig aftur inn 2004. Ári síðar, 2005, keypti Magnús Krist­ins­son Domino's á 1.100 millj­ónir króna. Þaðan rataði fyr­ir­tækið í hendur Lands­bank­ans eftir banka­hrun, en bank­inn tap­aði einum og hálfum millj­arði króna á lán­veit­ingum sínum til kaupa á pít­sa­keðj­unni.

Vinsælasti veitingastaður á Íslandi

Rekstur Domino's hefur, svo vægt sé til orða tekið, gengið frá­bær­lega á und­an­förnum árum. Pizza-Pizza ehf. rekur alls 19 pítsu­staði á land­inu öllu. Á árunum 2012 til 2014 var hagn­aður af rekstr­inum sam­tals 494 millj­ónir króna. Velta félags­ins á árinu 2014 var 3,3 millj­arðar króna og sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá því jókst hún um 20 pró­sent til við­bótar í fyrra.

Samkvæmt tölum frá Meninga er Domino's enda vin­sæl­asti veit­inga­staður lands­ins. Nítján þús­und Meniga­not­endur fengu sér Dom­in­o's pítsu árið 2015. Þetta þýðir að um 81 pró­sent þeirra sem versl­uðu sér til­bú­inn mat versl­uðu einu sinni eða oftar við Dom­in­o´s.

Í mars síð­ast­liðnum keypti fram­taks­sjóð­ur­inn EDDA, sem er rek­inn af Virð­ingu en er í eigu líf­eyr­is­sjóða og ann­arra fag­fjár­festa, fjórð­urs­hlut í Dom­in­o's á Íslandi. Aðrir eig­endur félags­ins í dag eru Birgir Þór Bielt­vedt og eig­in­kona hans Eygló Björk Kjart­ans­dótt­ir, sem einnig situr í stjórn móð­ur­fé­lag­ins, Högni Sig­urðs­son, Birgir Ö. Birg­is­son fram­kvæmda­stjóri og nokkrir aðrir lyk­il­stjórn­endur Dom­in­o‘s á Íslandi. Kaup­verðið var ekki gefið upp.

Í útrás til Norðurlanda

Pizza-Pizza ehf. rekur ekki bara Domino's staði á Íslandi. Félagið er með sér­leyfi fyrir rekstri slíkra í Noregi og Svíþjóð og hefur farið inn á Nor­egs­markað af miklum krafti und­an­farið ár. Það rekur nú tíu staði þar í landi og ætlar sér að opna slíka í Svíþjóð og Færeyjum. Mark­að­ur­inn fyrir pít­sur í þeim löndum telst óþrosk­aður í sam­an­burði við aðrar mark­aði í sam­bæri­legum löndum og því hafa þótt mikil sókn­ar­tæki­færi þar.

Þessi útrás, og mögu­leik­arnir sem taldir eru vera í henni, er ein ástæða þess að Domino's Pizza Group, sem skráð er í bresku kaup­höll­ina, metið á 315 millj­arða króna og rekur um 900 pít­sa­staði í Bret­landi, ákvað að fjár­festa í Domino's á Íslandi.

Birgir segir að með fjár­fest­ing­unni sé breska félagið vissu­lega að taka þátt í fyr­ir­hug­aðri útrás á Norð­ur­lönd­unum. En hann segir það líka vera að fjár­festa í mannauðnum sem sé til staðar hjá Domino's á Íslandi. Rekst­ur­inn hér­lendis sé mjög þekktur innan Domino's sam­stæð­unnar í heim­inum og árang­ur­inn sem hér hefur náðst hafi vakið verð­skuld­aða athygli. Þar vísar hann meðal ann­ars til þess hversu vel hefur gengið að koma út Domino's app­inu og fjölga staf­rænum pönt­unum og vin­sælda hinnar íslensku Megaviku fyr­ir­tæk­is­ins.

Hagnast vel á aðkomu sinni

Ljóst er að íslensku eig­end­urnir sem eru að hlut í Domino's á Íslandi eru að hagn­ast ákaf­lega vel á aðkomu sinni að félag­inu. Miðað við sölu­verðið er heild­ar­virði móð­ur­fé­lags Domino's hér­lendis rúm­lega sjö millj­arðar króna.

Í frétta­til­kynn­ingu sem send var út vegna kaupa Domino's Pizza Group í íslenska móð­ur­fé­lag­inu er enda haft eftir Hannesi Frímanni Hrólfs­syni, for­stjóra Virð­ingar sem stýrir EDDU-sjóðnum sem keypti sig inn fyrir rúmu ári, að sú „frá­bæra ávöxtun sem EDDA inn­leysir með sölu á hluta af sinni eign í Domino's á Íslandi til breska félags­ins sýnir að það var góð ákvörðun hjá sjóðnum að koma þarna inn í fyrra.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár