Er fólk búið að fá nóg af frjálslyndi og lýðræði?

Sú til­hneig­ing birt­ist oftar og oftar í stjórn­málum nútím­ans að kallað er eftir sterkum leið­toga til að taka erf­iðar ákvarð­anir sem hefð­bundnir stjórn­mála­menn hafi ekki getu, vilja eða þor til að taka. En er ein­ráður leið­togi svarið?

Máflutningur Donald Trump hefur á tíðum snúist um að brjóta á grundvallarmannréttindum til að ná fram lausn á þeim vandamálum sem hann segir að fyrir hendi séu.
Máflutn­ingur Donald Trump hefur á tíðum snú­ist um að brjóta á grund­vall­ar­mann­rétt­indum til að ná fram lausn á þeim vanda­málum sem hann segir að fyrir hendi séu. Mynd: EPA

Nú í aðdrag­anda for­seta­kosn­inga í Banda­ríkj­unum birt­ist skýrt sú til­hneig­ing kjós­enda að líta svo á að sam­fé­lagið þarfn­ist öfl­ugs leið­toga, jafn­vel ein­valds. Ein ástæðan gæti verið að hinir hefð­bundnu stjórn­mála­menn séu taldir gagns­lausir, ýmist spilltir eða ragir við að taka óvin­sælar ákvarð­anir vegna þess sem stundum er nefnt póli­tískur rétt­trún­aður. Þess vegna þarfn­ist þjóð­fé­lagið ein­hvers sem hlusti ekki á neitt kjaftæði heldur láti verkin tala og sé óhræddur við að taka af skarið. Það sé nauð­syn­legt að taka ákvarð­anir sem, þrátt fyrir að brjóta jafn­vel í bága við grund­vall­ar­mann­rétt­indi, séu besta lausnin þegar upp sé staðið.

Þetta rímar við upp­gang and­lýð­ræð­is­legra stjórn­málafor­ingja og -hreyf­inga með fasíska til­burði, sér í lagi í Austur-Evrópu. Aukinn flótta­manna­vandi og meint hryðju­verkaógn eru vatn á myllu þess­ara hreyf­inga því auð­velt er að magna upp ótta fólks sem þá verður ginn­keypt­ara fyrir þeim ein­földu lausnum sem boð­aðar eru. Þar má nefna herta útlend­inga­lög­gjöf og aukin völd rík­is­ins, lok­aðri landa­mæri með bygg­ingu veggja eða úrsögn úr alþjóða- eða landamæra­sam­starfi.

Þá fer þetta fer saman við að skarp­ari átaka­línur eru dregnar í stjórn­málum, þeir sem eru ekki í þínu liði er þá gjarnan útmál­aðir sem óvinir rík­is­ins eða þjóð­ar­innar og skoð­anir þeirra sagðar hættu­legar, í besta falli óþjóð­legar.

Aukið lýðræði og friður – bakslag í seglin?

Ein­ræð­istil­burðir, lokuð landa­mæri og ein­angr­un­ar­stefna eru tæp­lega nýtil­komin fyr­ir­bæri í ver­ald­ar­sög­unni. Þetta hefur ekki ein­ungis tíðkast í for­tíð­inni eða fjar­lægum, van­þró­uðum ríkjum heldur einnig nær okkur, bæði í rúmi og tíma, lík­lega nær en fólk almennt áttar sig á. Við þekkjum öll nýleg dæmi um slíkt stjórn­ar­far. Þrátt fyrir að heim­ur­inn hafi færst í rétta átt til auk­ins frelsis, lýð­ræðis og opn­ari tengsla milli ríkja er þró­unin ekki línu­leg. Nú má segja að eftir tíma­bil und­an­far­inna ára­tuga sem ein­kennst hefur af frjáls­lyndi og lýð­ræð­isum­bótum, með mis­miklum árangri þó, sé komið ákveðið bakslag í seglin.

Frá sjón­ar­hóli Vest­ur­landa­búa tók lýð­ræði, með frið­sam­legum ríkja­sam­skiptum, að þró­ast hratt á Vest­ur­löndum á seinni hluta tutt­ug­ustu aldar eftir hörm­ung­ar­tíma ein­ræð­is­stjórna á þeim fyrri – talað var um enda­lok til­tek­innar heims­myndar og bjart­sýni ríkti. Fyrrum ráð­stjórn­ar­ríki í Austur-Evrópu fylgdu í kjöl­farið og keppt­ust við að vera með í lýð­ræð­is­veisl­unni. Ríkin sem áður til­heyrðu Júgóslavíu undir stjórn Títós á Balkanskaga fóru í gegnum hreins­un­ar­eld stríðs­á­taka og hafa sum hver gengið í Evr­ópu­sam­bandið og önnur sótt um aðild. Og eftir ára­tuga borg­ara­stríð komst almennt friður á í ríkjum Mið- og Suður-Ameríku.

Þegar kom fram á 21. öld dró einnig til tíð­inda í ríkjum Norður-Afríku, Arab­íu­skaga og Mið-Aust­ur­löndum, það sem kallað var Arabíska vorið, hvar ein­ræð­is­herrum var komið frá völdum. Hreyf­ingin sem hófst í Túnis, hélt áfram í Egypta­landi, og gaf fólki vonir um umbylt­ingu í stjórn­ar­háttum virt­ist ætla að breið­ast út, jafn­vel til Sýrlands, en reynd­ist þó skamm­góður vermir. Það fjar­aði undan þess­ari þróun, her­inn tók aftur völdin í Egypta­landi og þar er nú við völd maður sem seg­ist muni fjar­lægja af yfir­borði jarðar nokkurn þann sem ógni rík­inu (honum).

Rússar, sem voru á tíma­bili komnir með annan fót­inn í banda­lag með Vest­ur­löndum, hafa stigið nokkur skref til baka frá lýð­ræð­isum­bótum undir stjórn Vla­dimírs Pútín. Svo virð­ist sem hann skapi sér vin­sældir á ólík­leg­ustu stöðum, ekki síst hjá þeim sem finna vest­rænni sam­vinnu allt til for­áttu, því Pútín er óhræddur við að standa uppi í hár­inu á vest­rænum ráða­mönnum. Þar virð­ist þá engu skipta ógn­andi og óásætt­an­leg fram­koma rúss­neskra stjórn­valda í utan­ríkis- eða mann­rétt­inda­málum.

Jafn­framt virð­ist ákveð­inn hópur vera kom­inn með nóg af frjáls­ræð­is­þró­un­inni í sumum ríkjum Austur-Evrópu. Þar má nefna Pólland þar sem stjórn­völd sýna ótví­ræða ein­ræð­istil­burði. Það sama er upp í ten­ingnum í Ung­verja­landi þar sem Victor Orban ríkir. Hann hefur lýst yfir hnignun frjáls­lyndra lýð­ræð­is­ríkja og hampað stjórn­völdum þar sem ein­ræði er raunin, eins og Rúss­landi, Tyrk­landi, Malasíu og Kína.

Er þetta líka svona á Íslandi?

Það væri ofsögum sagt að þetta sé að ger­ast á Íslandi. Þó má sjá ákveðna til­hneig­ingu í þá átt að stjórn­völd reyni að kveða niður gagn­rýn­is­raddir án mál­efna­legrar umfjöll­unar. Talsmenn rík­is­stjórn­ar­innar hafa m.a. haft í hót­unum við Rík­is­út­varpið vegna frétta­flutn­ings þess eða kallað eftir brott­rekstri háskóla­kenn­ara vegna gagn­rýnna skrifa hans um Fram­sókn­ar­flokk­inn. Einnig hefur verið vísað til mik­il­vægis þess að hér ríki til­tekin sam­fé­lags­sátt, gagn­rýni á stjórn­völd eða bylt­ing­ar­kenndar hug­myndir stjórn­mála­flokka eins og Pírata sé ein­hvers konar aðför að til­teknum sam­fé­lags­gildum og jafn­vel ógn við lýð­ræðið.

Formaður Sjálf­stæð­is­flokks­ins sagði nýlega í til­efni mál­þófs stjórn­ar­and­stöð­unnar á Alþingi að virða þyrfti nið­ur­stöðu kosn­inga, læsi fólk stjórn­ar­skrána væri skýrt að meiri­hlut­inn réði, en á Alþingi virt­ust gilda önnur lög­mál. Það má taka undir það sjón­ar­mið að mál­þóf sé ekki endi­lega besta leiðin til að tryggja lýð­ræði. Þessi við­horf end­ur­spegla þó þann skiln­ing á lýð­ræð­inu að þar hljóti meiri­hluti sem kos­inn er til valda í lýð­ræð­is­legum kosn­ingum að vera nán­ast ein­ráður um völd, minni­hlut­inn verði í raun bara að sætta sig við að hafa orðið undir.

Rök­styðja má að þetta sé tals­verð afbökun á því hvernig lýð­ræð­is­leg umræða og -stjórn­ar­hættir ættu að virka eins og bent er á hér. Segja má að stjórn­mál ein­kenn­ist af við­ur­kenn­ingu á til­vist ann­arra við­horfa og hags­muna. Því skuli stefna að því að reyna að kom­ast að ein­hverri nið­ur­stöðu sem flestir geta sætt sig við. Hugs­an­lega liggur feg­urðin í lýð­ræð­inu einmitt í ófull­kom­leika þess, að það mun alltaf verða mála­miðlun, miðju­moð og heitar umræður.

Þess vegna mun aldrei ríkja sú algera sátt um alla hluti sem stundum er kallað eftir og ekki er nauð­syn­legt að tryggja að allt sé til fyr­ir­myndar sam­kvæmt nákvæmri for­skrift ákveð­ins hóps – þaðan af síður ein­stak­lings. Slíkt hefur verið reynt og hefur væg­ast sagt tek­ist mjög illa til. Þess vegna hafa menn kom­ist að því að þrátt fyrir allt ves­enið sé lýð­ræðið þrátt fyrir allt besti kost­ur­inn.

Hvers vegna þrífst þá einræði eða alræði, hvers vegna vill fólk sterkan leiðtoga?

Eitt aðal­at­riðið hér er það sem kalla mætti sið­vit­und sam­fé­lags­ins og hvernig stjórn­mála­mönnum tekst að telja fólki trú um að þeirra stefna end­ur­spegli hana. Eins og fram kemur í sam­ræð­unum á milli Gorg­í­asar og Sókratesar taldi Gorgías sig geta gert hvern þann sem hann kenndi mælsku­list að mælsku­manni sem gæti sann­fært fjöld­ann um hvað sem væri án þess að vita í raun mikið um málið. Mælsku­maður gæti þannig verið trú­verð­ugri en læknir þótt umræðu­efnið væri lækn­is­fræði og lækn­ir­inn vissi í raun mun meira.

Sé horft til kosn­inga­bar­átt­unnar í Banda­ríkj­unum í dag virð­ist þessi eld­gamli vís­dómur í fullu gildi því þar leyfa fram­bjóð­endur sér að skil­greina veru­leik­ann eftir eigin höfði, mála ver­öld­ina í ein­földum litum – stundum bara svart­hvítum – sem virð­ist eiga greiða leið að ákveðnum hópi kjós­enda. Frjáls­lyndi og lýð­ræði sem veldur hryðju­verkaógn, straumi inn­flytj­enda og atvinnu­leysi, hefur þá ekki mikið vægi í hugum fólks.

Þessi aðferð, að taka sér eins konar skil­grein­ing­ar­vald, er alþekkt og var í raun grund­völlur alræð­is­stjórn­ar­fars­ins á dögum Stalíns í Sov­ét­ríkj­unum, sem er eitt ýktasta dæmi um hvernig slíkt stjórn­ar­far þró­ast. Yfir­valdið, ein­ræð­is­herr­ann Stalín í þessu til­felli, gat skil­greint hvað var rétt og rangt, úthýst hinu óæski­lega og tekið á dag­skrá það sem við­eig­andi þótti sam­kvæmt hug­mynd­inni um hið end­an­lega full­komna sam­fé­lag.

Þetta má vel heim­færa á nútím­ann, því í ástand­inu sem nú ríkir má ætla að erfitt sé fyrir hinn almenna borg­ara að gera grein­ar­mun á sann­leika og lygi. Nú sem þá er með skjótum hætti hægt að snúa orð­ræð­unni á þann veg að fundnir eru söku­dólgar, aðferð sem krefst ekki mik­illar rök­rænnar skil­grein­ingar. Þessi aðferð hentar því ekki ein­ungis æðstu vald­höfum heldur hópum á öllum stigum. Hinn almenni borg­ari á þannig auð­velt með að finna skýr­ingu á bágum kjörum sínum, t.d. vegna auk­ins fjölda inn­flytj­enda.

Þegar talað er í anda Donalds Trump, eða Victors Orbans í Ung­verja­landi, taka menn sér rétt­inn til skil­grein­ingar á sam­fé­lag­inu, hvað það sé sem geri það gott og eft­ir­sókn­ar­vert eða hvað það sé sem ógnar því. En þarna má jafn­framt spyrja hvort veru­leiki okkar sé almennt á ein­hvern hátt fyr­ir­fram skil­greindur – sem síðan komi í veg fyrir að við myndum okkur sjálf­stæðar skoð­anir. Megum við mót­mæla, gengur það gegn ein­hvers konar sátt­mála að vera með upp­steyt og rugga bátnum?

Við erum hreinlega of upptekin og of þreytt til að nenna að standa í þessu

Aðal­at­riðið er kannski þetta, að fæst myndum við okkur skoð­anir í tóma­rúmi og hinn vinnulúni almenni borg­ari hefur hvorki tíma né burði til að leggj­ast í rann­sóknir á því hvað af því sem kemur fram í opin­berri umræðu eigi fót­festu í raun­veru­leik­anum og hvað ekki. Þess vegna eiga stjórn­mála­menn sem mála ver­öld­ina í ein­földum litum svo auð­velt með að móta umræð­una og mata fólk á því sem þeim sýn­ist. Venju­legt fólk sem er upp­tekið af lífs­bar­átt­unni hefur hrein­lega ekki orku aflögu til að pæla of mikið í hlut­unum og þeim sem kemur með lausn­ina á silf­ur­fati, og seg­ist ætla að sjá um þetta fyrir þig, er því tekið fagn­andi. Það er hvort sem er alltaf hægt að skipta um rás á sjón­varp­inu, koma sér betur fyrir í sóf­anum og fá sér eitt­hvað gott í svang­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár