Skotar og Norður-Írar hafa ekkert með utanríkismálin að segja

Brexit þarf að fara í gegnum breska þingið áður en Theresa May getur óskað eftir útgöngu úr ESB. Ýmsar kröfur um breyt­ingu á stefnu stjórn­valda hafa verið boð­aðar við þing­lega með­ferð.

Skopmyndateiknarinn Kaya Mar heldur á teikningu sinni af Theresu May fyrir utan hæstarétt í London.
Skop­mynda­teikn­ar­inn Kaya Mar heldur á teikn­ingu sinni af Theresu May fyrir utan hæsta­rétt í London. Mynd: EPA

Þjóðþing Skotlands, Norður-Írlands og Wales hafa ekk­ert um utan­rík­is­mál Bret­lands að segja. Þetta er mat hæsta­réttar Bret­lands sem kemur fram í úrskurði rétt­ar­ins um að breska þingið þurfi að fjalla um útgöngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu áður en stjórn­völd geti óskað eftir Brexit við ráða­menn í Brussel. Við þing­lega með­ferð mun stjórn­ar­and­staðan fara fram á að ýmsar breyt­ingar verði gerðar við stefnu breskra stjórn­valda í Brexit-mál­inu.

Stjórn­völd í Bret­landi mega sem sagt ekki hefja form­legt útgöngu­ferli úr Evr­ópu­sam­band­inu án þess að um það séu greidd atkvæði í breska þing­inu fyrst. Þetta er nið­ur­staða hæsta­réttar í Bret­land­i. Dómurinn var klof­inn í mál­inu.

Málið snýst um grein 50 í Lissa­bon-sátt­mála ESB, en greinin fjallar um útgöngu ríkja úr sam­band­inu. Átta hæsta­rétt­ar­dóm­arar voru sam­mála um að stjórn­völd megi ekki virkja þessa grein án þess að bera það undir þingið fyrst, en þrír voru í minni­hluta og töldu sam­þykki þings­ins ekki þurfa.

Rík­is­stjórn Theresu May for­sæt­is­ráð­herra mun nú þurfa að leggja fram frum­varp fyrir breska þingið þar sem Brexit-málin munu hljóta þing­lega með­ferð og þing­menn greiða atkvæði um hvort Bretar eigi að óska eftir útgöngu úr ESB. Þing­flokkar á breska þing­inu voru klofnir í afstöðu sinni til Brexit í aðdrag­anda þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar í fyrra og börð­ust margir flokks­fé­lagar hat­ram­lega fyrir sitt hvorum mál­staðnum.

Rík­is­stjórn Bret­lands er „von­svik­in“ yfir nið­ur­stöð­unni, segir rík­is­sak­sókn­ar­inn Jer­emy Wright, sem fór með málið fyrir hönd stjórn­valda. Hann sagði að engu að síður þurfi allir að fara eftir lög­unum og það muni rík­is­stjórnin einnig ger­a. Í yfir­lýs­ingu frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu segir að breska rík­is­stjórnin muni fram­fylgja nið­ur­stöðu almenn­ings úr þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni síð­asta sumar. Samkvæmt áætl­unum breskra stjórn­valda er ráð­gert að hefja útgöngu­ferlið með því að virkja 50. grein­ina í lok mars­mán­aðar.

Gina Miller, lög­mað­ur­inn sem flutti málið gegn stjórn­völdum, segir að rík­is­stjórnin getur þá haldið áfram í vissu eftir að breska þingið hafi kveðið upp sinn dóm. Hún segir að Brexit sé stærsta ákvörðun Breta í margar kyn­slóðir, en að þetta mál fyrir hæsta­rétti hafi fjallað um verk­ferla en ekki stefnu­mótun.

Gina Miller talar fyrir utan hæstarétt

Þó að megin nið­ur­staða dóms­ins sé sú að breksa þingið verði að fá að fjalla um málið áður en stjórn­völd geti aðhafst þá eru fleiri greinar dóms­ins leið­bein­andi fyrir stjórn­völd í því ferli sem mun þurfa að fara fram þegar kemur að samn­inga­við­ræðum við Evr­ópu­sam­bandið og afteng­ingu breskra laga við Evr­ópu­lög.

Eftir að nið­ur­staða hæsta­réttar í Bret­landi varð ljós um næstu skref í útgöngu Breta úr Evr­ópu­sam­band­inu, Brexit, hafa stjórn­mála­leið­togar og stjórn­mála­menn lýst afstöðu sinni.

Þing Skotlands, Norður-Írlands og Wales fá ekki ákvörðunarrétt

Hæsta­rétt­ar­dóm­ar­arnir í mál­inu komust enn fremur að þeirri nið­ur­stöðu að ráð­herrar Bret­lands þurfi ekki að ráð­færa sig við þjóð­þing Skota, Íra og Walesverja þegar kemur að útgöngu Bret­lands úr ESB. Í nið­ur­stöð­unni er það und­ir­strikað að utan­rík­is­mál Bret­lands, hvort sem það er gagn­vart Evr­ópu­sam­band­inu eða öðrum ríkjum, séu á hendi breska þings­ins í London og rík­is­stjórnar Bret­lands. Enn fremur hafa þessi sér­stöku þjóð­þing ekki neit­un­ar­vald í ákvörðun Bret­lands um að ganga úr ESB.

Í þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni síð­asta sumar greiddu Skotar atkvæði með áfram­hald­andi veru í Evr­ópu­sam­band­inu, með yfir­gnæf­andi meiri­hluta. Nicola Sturgeon, fyrsti ráð­herra Skotlands, hefur sagt að Skotland muni leita leiða til þess að Skotar hafi áfram aðild að Evr­ópu­sam­band­inu jafn­vel þó Bretland gangi út. Þegar hefur und­ir­bún­ingur fyrir nýja þjóða­at­kvæða­greiðslu um sjálf­stæði Skotlands verið haf­inn. Í haust var sagt frá því að rík­is­stjórn Skotlands ætli að leggja fram nýtt frum­varp um slíka atkvæða­greiðslu.

Fyrstu við­brögð Þjóð­ar­flokks Skotlands (SNP) komu frá Alex Salmond, fyrr­ver­andi leið­toga flokks­ins og núver­andi tals­manni flokks­ins um utan­rík­is­mál. Hann segir að flokk­ur­inn, sem á 54 af 59 þing­mönnum frá Skotlandi í breska þing­inu, muni leggja til ítar­legar breyt­ingar á frum­varpi rík­is­stjórnar Theresu May og fara fram á að þjóð­þing Skota, Norður-Íra og Walesverja fái einnig að fjalla um málið áður en 50. grein Lisabon-sátt­mál­ans verður virkjuð.

Bretland verði ekki miðstöð skattaskjóla fyrir Evrópu

Viðbrögð Jeremy Corbyn, leið­toga Verka­manna­flokks­ins í Bret­landi, við nið­ur­stöðu hæsta­réttar eru að flokkur hans muni virða nið­ur­stöðu þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar og mun ekki standa í vegi fyrir útgöng­unni og virkjun 50. grein­ar­innar.

Í yfir­lýs­ingu frá Corbyn segir að Verka­manna­flokk­ur­inn muni hins vegar reyna að koma í veg fyrir að íhalds­menn noti Brexit til að gera „samn­inga­mið­stöð fyrir skatta­skjól, rétt undan ströndum Evrópu“. Verka­manna­flokk­ur­inn muni heldur reyna að byggja á lög­málum toll­frjálsra við­skipta við sam­eig­in­lega mark­að­inn og leggja áherslu á að rétt­indum verka­fólks verði við­haldið.

Skilyrt afstaða frjálslyndra

Tim Farron, leið­togi frjáls­lyndra demókrata, segir þing­flokk sinn ætla að greiða atkvæði gegn því að Bretar virki 50. grein Lisabon-sátt­mál­ans. Hann segir Brexit-stjórn íhalds­flokks­ins beita rökum lýð­ræð­is­ins þegar það hentar þeim, „en ætlar ekki að gefa þjóð­inni tæki­færi til þess að hafa nokkuð um loka­nið­ur­stöð­una að segja,“ segir Farron. Án þess að útgöngu­samn­ing­ur­inn við Evr­ópu­sam­bandið fari í þjóð­ar­at­kvæði munu frjáls­lyndir demókratar ekki greiða atkvæði með 50. grein­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár