Ný þjóðaratkvæðagreiðsla um sjálfstæði Skotlands boðuð

Rík­is­stjórn Skotlands ætlar að leggja fram nýtt frum­varp um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um sjálf­stæði lands­ins í næstu viku. Nicola Sturgeon, fyrsti ráð­herra Skotlands og for­maður Skoska þjóð­ar­flokks­ins, greindi frá þessu í ræðu sem hún hélt á flokks­þingi hans í dag og The Guardian greinir frá.

Þar sagði Sturgeon að hún sé ákveðin í því að Skotland fái tæki­færi til að end­ur­meta spurn­ing­una um sjálf­stæði og og landar hennar eigi að fá tæki­færi til að gera það áður en að Bretland yfir­gefur Evr­ópu­sam­bandið, sé það nauð­syn­legt til að vernda hags­muni þjóð­ar­innar. „Ég get því stað­fest hér í dag að frum­varp um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um sjálf­stæði verður lagt fram í næstu viku.“

Sturgeon sagði enn fremur að það liði ekki sá dagur sem að ein­hver kæmi ekki til hennar og við­hafði hvatn­ingu um að flýta nýrri þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. Það liði heldur ekki dagur sem að ein­hver kæmi upp að henni og hvatti hana til að hægja á því ferli. „Velkomin í minn veru­leika. En ábyrgð leið­toga er að fram­kvæma með hags­muni lands­ins sem heildar að leið­ar­ljósi. Morgunin eftir þjóð­ar­at­kvæðið um Evr­ópu­sam­bandið [Brexit] sagði ég að ég myndi stýr­ast af mjög ein­faldri og skýrri spurn­ingu. Hvað er best fyrir íbúa Skotlands? Það er meg­in­reglan sem ég stjórn­ast enn að og ég veit að ég treyst á stuðn­ing ykkar við hvert ein­asta skref sem stigið verður.“

Skoski þjóð­ar­flokk­ur­inn kaus einnig Angus Robert­son sem vara­for­mann flokks­ins á flokks­þing­inu. Robert­son hefur komið til Íslands og lýst yfir miklum vilja til að auka sam­starf Skotlands við Ísland.

Brexit breytti öllu

Skotar kusu um sjálf­stæði frá Bretum árið 2014. Þá varð nið­ur­staðan sú að 55,3 pró­sent Skota sögðu nei við sjálf­stæði en 44,7 pró­sent vildu sjálf­stæði. Kjör­sókn var 84,5 pró­sent. Í aðdrag­anda kosn­ing­anna var afar mjótt á munum og talið er að á end­anum hafi lof­orð um aukin völd til skoska þings­ins ráðið úrslitum. Skoski þjóð­ar­flokk­ur­inn, sem setti þjóð­ar­at­kvæði um sjálf­stæði á dag­skrá, vann síðan sann­kall­aðan stór­sigur í bresku þing­kosn­ing­unum í fyrra þegar hann fór úr því að hafa 6 af 59 þing­sætum Skotlands í West­min­ster og í það að hafa 56 af 59 sæt­um.

Í sumar breytt­ist síðan allt í breskum stjórn­málum þegar Bretar kusu með því að yfir­gefa Evr­ópu­sam­bandið í sögu­legri þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um málið, Úrslitin sýndu gríð­ar­lega skipt­ingu milli svæða í Bret­landi. Í öllu Skotlandi, á Norð­ur­-Ír­landi og í höf­uð­borg­inni London var yfir­gnæf­andi meiri­hluti kjós­enda fylgj­andi því að halda áfram í ESB, en fyrir utan London var meiri­hluti fyrir útgöngu úr ESB víð­ast hvar í Englandi. 62 pró­sen Skota vildu halda áfram í ESB, 55,8 pró­sent N-Íra og 59,9 pró­sent íbúa London. Ann­ars staðar í Englandi vildur 57 pró­sent yfir­gefa ESB og 52,5 pró­sent íbúa í Wales.

Á end­anum voru þeir sem vildu áfram­hald­andi veru Bret­lands í ESB rétt undir 48 pró­sent og þeir sem vildu yfir­gefa ESB rétt undir 52 pró­sent.

Nicola Stur­ge­on sagði strax dag­inn eftir Brexit-kosn­ing­arnar að hún teldi mjög lík­legt að þess verði kraf­ist að skoska þingið hafi mögu­leik­ann á því að boða til ann­arrar þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um sjálf­stæði Skotlands. Það gæti gerst innan tveggja ára, á sama tíma­bili og samið verður um sam­band Bret­lands við Evr­ópu­sam­ban­d­ið. Hún sagði þó nauð­syn­legt að stíga var­lega til jarð­ar, hún ætl­aði að byrja á því að ræða við Evr­ópu­sam­bandið um alla mögu­leika á því að halda Skotlandi innan ESB. Það væri skýr vilji Skota að vera áfram í Evr­ópu­sam­band­in­u.

Nú hefur fyrsta skrefið í átt að slíkri atkvæða­greiðslu verið stigið, örfáum mán­uðum eftir Brexit-kosn­ing­arnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár