Mega ekki byrja útgönguferli án samþykki breska þingsins

Hæsti­réttur í Bret­landi hefur úrskurðað um næstu skref í útgöngu Breta úr Evr­ópu­sam­band­inu, Brexit.

Theresa May varð forsætisráðherra Bretlands eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna.
Theresa May varð for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands eftir þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­una. Mynd: EPA

Stjórn­völd í Bret­landi mega ekki hefja form­legt útgöngu­ferli úr Evr­ópu­sam­band­inu án þess að um það séu greidd atkvæði í breska þing­inu fyrst. Þetta er nið­ur­staða hæsta­réttar í Bret­landi.

Málið snýst um grein 50 í Lissabon-sátt­mála ESB, en greinin fjallar um útgöngu ríkja úr sam­band­inu. Átta hæsta­rétt­ar­dóm­arar voru sam­mála um að stjórn­völd megi ekki virkja þessa grein án þess að bera það undir þingið fyrst, en þrír voru í minni­hluta og töldu sam­þykki þings­ins ekki þurfa.

Rík­is­stjórn Bret­lands er „von­svikin“ yfir nið­ur­stöð­unni, segir rík­is­sak­sókn­ar­inn Jeremy Wright, sem fór með málið fyrir hönd stjórn­valda. Hann sagði að engu að síður þurfi allir að fara eftir lög­unum og það muni rík­is­stjórnin einnig gera.

Búist er við því að strax á næstu dögum komi fram frum­varp á þing­inu sem myndi gefa rík­is­stjórn­inni leyfi til að virkja 50. grein­ina.

Hæsti­réttur úrskurð­aði einnig að bresk stjórn­völd þurfi ekki að hafa sam­ráð við stjórn­völd í Skotlandi, Wales og Norður-Írlandi um að hefja útgöngu­ferlið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár