Fundi ESB-ríkjanna frestað á síðustu stundu vegna ósættis um Grikkland

Fundi leið­toga Evr­ópu­sam­bands­ríkj­anna, sem átti að fara fram í dag vegna Grikk­lands, hefur verið aflýst. Donald Tusk, for­seti leið­toga­ráðs ESB, til­kynnti þetta á Twitter-síðu sinni í morgun.

Ástæðan er sú að engin nið­ur­staða fékkst á löngum og ströngum fundi fjár­mála­ráð­herra evru­ríkj­anna, evru­hóps­ins, í gær. Fjár­mála­ráð­herr­arnir hófu sinn fund á ný klukkan níu í morgun að íslenskum tíma og klukkan tvö verður fundur hjá for­sæt­is­ráð­herrum evru­ríkj­anna.

Fundir evru­ríkj­anna snú­ast um til­lög­urnar sem Grikkir hafa nú lagt fram um umbætur á gríska hag­kerf­inu til þess að fá þriðja neyð­ar­lána­pakk­ann frá lán­ar­drottnum sínum. Ef pakk­inn verður sam­þykktur tryggir það fjár­mögnun upp á 74 millj­arða evra. Skiptar skoð­anir eru um það meðal evru­ríkj­anna hvort til­lögur Grikkja séu trú­verð­ugar og hvort þeim sé treystandi til þess að fram­fylgja þeim.

Til­lög­urnar fela í sér mik­inn nið­ur­skurð og ýmsar erf­iðar breyt­ingar, til dæmis á líf­eyr­is­kerf­inu, auk þess sem þær fela í sér skatta­hækk­anir. Mörgum til­lagn­anna sem rík­is­stjórn Grikk­lands hefur nú lagt fram höfn­uðu Grikkir í raun í þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni fyrir viku síðan. Meðal þess sem sum evru­ríkin hafa efa­semdir um er sam­setn­ing til­lagn­anna, sem sumum þykja treysta of mikið á tekjur af skatta­hækk­unum.

„Þetta er ennþá mjög erfitt, en við erum að vinna í þessu,“ sagði for­seti evru­hóps­ins, Jeroen Dijs­sel­bloem, þegar fundi lauk seint í gær. „Við erum mjög langt frá sam­komu­lagi,“ sagði Alex­ander Stubb, fjár­mála­ráð­herra Finn­lands, við fjöl­miðla áður en fund­ur­inn hófst á ný í morgun. Hann er meðal þeirra sem eru á móti því að sam­þykkja til­lögur Grikkja. Hópurinn sem er mót­fall­inn því að sam­þykkja til­lögur Alexis Tsipras, for­sæt­is­ráð­herra Grikk­lands, er leiddur af fjár­mála­ráð­herra Þýska­lands, Wolfgang Schäuble, og í þeim hópi eru einnig Slóvakar.

Fjöl­miðlar greina frá því að í fyrsta sinn hafi verið rætt um þann mögu­leika opin­skátt að láta Grikk­land falla, og þar með láta ríkið fara úr evru­sam­starf­inu.

Lúx­em­borg er svo meðal þeirra ríkja sem varar við þessum hug­myndum og segir að ábyrgð Þýska­lands sé mjög mikil. „Það myndi verða örr­laga­ríkt fyrir orð­spor Þýska­lands í ESB og í heim­inum. Ef Þýska­land vill Grikk­land úr evr­unni, mun það valda djúpum deilum við Frakk­land. Það yrði stór­slys fyrir Evrópu,“ sagði utan­rík­is­ráð­herra lands­ins, Jean Assel­born, í morgun.

Ítalir eru á sama báti, og sagt er að Matteo Renzi for­sæt­is­ráð­herra muni segja þjóð­verjum til synd­anna, nú sé nóg komið og Evr­ópu­sam­bandið geti ekki blómstrað meðan aðild­ar­ríki séu nið­ur­lægð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár