Úr 11 í 20 – smitum fjölgar á ný

Tuttugu manns greindust með COVID-19 inn­an­lands í gær og er það mikil fjölgun frá því í fyrra­dag þegar smitin voru ell­efu. 176 eru nú í ein­angrun með sjúk­dóm­inn.

Í gær greindust tutt­ugu manns með COVID-19 hér á landi. Ellefu, eða rétt rúm­lega helm­ingur þeirra sem greindust, voru utan sótt­kvíar. Í dag eru 176 í ein­angrun með sjúk­dóm­inn og 528 eru í sótt­kví. Flestir sem eru í ein­angrun eru á aldr­inum 30-39 ára eða 35 ein­stak­lingar.

Tæplega 1.190 manns voru í ein­angrun með COVID-19 sam­tímis í þriðju bylgju far­ald­urs­ins þegar mest lét.

[adspot]

42 liggja nú á sjúkra­húsi með COVID-19, þar af eru tveir á gjör­gæslu­deild. Frá því að far­ald­ur­inn hófst í febr­úar hafa 26 manns lát­ist vegna sjúk­dóms­ins.

[links]Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir sagði á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í gær að blikur væru á lofti í þróun far­ald­urs­ins og að ýmis­legt benti til þess að veiran væri aftur að kom­ast á flug í sam­fé­lag­inu. Nefndi hann fjölgun smita við landa­mærin, fjölgun smita inn­lands og fjölgun smita hjá ein­stak­lingum sem ekki eru í sótt­kví.

Hann hefur skilað til­lögum til heil­brigð­is­ráð­herra um fram­hald aðgerða frá og með 2. des­em­ber. Á fund­inum í gær vildi hann ekki upp­lýsa í hverju þær fælust en sagði að ef sýnt þætti að útbreiðslan á COVID-19 væri aftur að vaxa í sam­fé­lag­inu gæti hann þurft að end­ur­skoða til­lög­urnar fyrir þann tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár