Útvarpið, öflugasti fréttamiðill Danmerkur í meira en 90 ár

Danska útvarpið er enn leið­andi frétta­mið­ill þrátt fyrir nýja tækni og breyttar áherslur í fjöl­miðlun. Aðeins einu sinni hafa stjórn­mála­menn haft afskipti af frétta­stofu danska útvarps­ins.

15. júní 1923 átti ungur blaða­maður, Svend Carstensen, að kynna tón­leika sem Danski útvarps­klúbb­ur­inn ætl­aði að senda út frá klúbb­hús­inu í Lyngby. Blaða­mað­ur­inn hafði á leið­inni í klúbb­inn fengið svo­kall­aðan fregn­miða frá dag­blað­inu Politi­ken, þar var sagt frá rétt­ar­höldum vegna danska Bún­að­ar­bank­ans. Blaða­mann­inum þótti upp­lagt að lesa fregn­mið­ann fyrir áheyr­endur, áður en tón­leik­arnir hæfust en vissi ekki hvernig hann ætti að byrja lest­ur­inn. Honum þótti nauð­syn­legt að kynna þetta frá­vik frá tón­list­ar­kynn­ing­unni og sagði „Hallo, hallo, hér er Lyngby Radio, hermed beg­ynder oplæsn­inger af Politi­kens förste radi­oa­vis.“ Radi­oa­vis, útvarps­blað. Síðar sagði Svend Carstensen að sér hefði ein­fald­lega ekki dottið neitt betra orð í hug, „ég var jú blaða­maður.“

Þessi stutti frétta­upp­lestur, ein frétt, mælt­ist vel fyrir og hlust­endur, sem voru á þessum tíma ekki mjög margir skrif­uðu til klúbbs­ins og Politi­ken og hvöttu til þess að frétta­lestur yrði fram­vegis fastur liður í útsend­ingum Danska útvarps­klúbbs­ins. Klúbb­ur­inn og Politi­ken ákváðu að verða við þessum áskor­unum og sendu út stuttar fréttir einu sinni á dag.

[adspot]

Statsradiofonien

Danmarks Radio, danska rík­is­út­varpið var stofnað 1925, undir nafn­inu Stats­radi­of­on­ien. Danska þingið, Fol­ket­inget, hafði þá sam­þykkt að ríkið hefði einka­leyfi á útvarps­send­ingum en einnig skuld­bundið sig til að búa svo um að allir lands­menn gætu náð útvarps­end­ing­unum. Jafn­framt var stofnuð sér­stök útvarps­hljóm­sveit, Radioorkestret. Í upp­hafi setti sígild tón­list ásamt fyr­ir­lestrum af ýmsu tagi og guðs­þjón­ustum sterkan svip á útsend­ing­arnar. Og Radi­oa­visen. Þótt rík­is­út­varpið sendi út frétt­irnar (kl. 19.00 og 22.00 dag­lega) sáu sam­tök blaða­manna um frétt­irnar, frétta­stofan var eins­konar sér­stofnun innan útvarps­ins.

Fast skipu­lag komst á þessar frétta­út­send­ingar í byrjun ágúst 1926, fyrir réttum 90 árum. Hádeg­is­frétt­irnar bætt­ust við snemma árs 1939, sendar út klukkan tólf á hádegi. Árið 1940, þegar Þjóð­verjar höfðu hernumið Danmörku, byrj­uðu einnig frétta­út­send­ingar á morgn­ana, klukkan 8.30. Þeim útsend­ingum var hætt þegar stríð­inu lauk, meg­in­á­stæðan var sú að rit­stjórar blað­anna töldu að fólk myndi ekki kaupa blöðin eftir að hafa heyrt fréttir í útvarp­inu. Frétta­út­send­ingar á morgn­ana byrj­uðu aftur árið 1947, fyrsti frétta­tími dags­ins klukkan 6.15 og svo annar klukkan 8.00. Á sjötta ára­tugnum bætt­ist svo við frétta­tími á mið­nætti, þar var farið yfir helstu frétta­mál dags­ins. 

Fyrsti kvenfréttaþulurinn árið 1962

Þeir sem hlust­uðu á frétt­irnar á mið­nætti 3. nóv­em­ber 1962 heyrðu, sér til nokk­urrar undr­unar, kven­rödd kynna og lesa frétt­irnar. Lesarinn var Alice Vestergaard, þraut­reyndur frétta­maður. Það að kona skyldi lesa frétt­irnar var aldeilis óheyrt og þessi „djarfa ákvörðun“ eins og eitt blað­anna orð­aði það vakti mikla athygli og umtal. Lesendur blað­anna voru mjög ósam­mála um ákvörðun frétta­stjór­ans, mörgum fannst þetta svo sjálf­sagt að ekki þyrfti að ræða það frekar, öðrum fannst ekki við­eig­andi að kona væri að lesa um allt það sem yfir dyndi í henni ver­öld. „Það er bara ekki trú­verð­ugt að heyra konu lesa um Kúbu­deil­una, ég verð að segja það“ skrif­aði karl einn í bréfi til Politi­ken.

En fljót­lega þótti það sjálf­sagt og ekki frétt­næmt að kona læsi frétt­irnar. Alice Vestergaard var jafn­framt fyrsti frétta­þulur danska sjón­varps­ins þegar TVavisen (annað nafn kom ekki til greina) hóf göngu sína árið 1965. Hún er í hópi þekkt­ustu frétta­manna í Danmörku, gift Uffe Ellemann-Jensen fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra og for­manni Venstre flokks­ins.

Danska útvarpið stofnar eigin fréttastofu

Árið 1964 lauk sam­starfi danska útvarps­ins og blað­anna um rekstur frétta­stofu. Sjón­varps­fréttir fóru að hefja inn­reið sína í Danmörku (sjón­varps­út­send­ingar löngu byrj­aðar) og stór­aukin fjöl­miðla­sam­keppni framundan. Margir útvarps­menn ótt­uð­ust að sjón­varps­fréttir myndu ganga af útvarps­frétt­unum dauðum og bjugg­ust við hinu versta. Sá ótti reynd­ist ástæðu­laus. Þótt Danir tækju sjón­varps­frétt­unum vel héldu útvarps­frétt­irnar velli. Styrk­leiki útvarps­frétt­anna hefur alla tíð verið sá að þar ganga hlut­irnir hratt fyrir sig, nán­ast hægt að segja frá frétt­næmum atburðum um leið og þeir ger­ast. Þannig er það ekki í sjón­varp­inu.

Útvarpið hefur fylgt þróuninni

Síðan danska útvarpið (frá árinu 1996 kallað DR) stofn­aði eigin frétta­stofu hafa orðið miklar breyt­ingar í allri fjöl­miðlun. Ótal útvarps­rásir eru nú í boði, fjöl­margar sjón­varps­rásir og ótelj­andi net­miðlar standa almenn­ingi til boða.

Frétta­stofa DR hefur ekki setið með hendur í skauti og látið aðra um nýj­ung­arnar. DR rekur nú átta útvarps­rásir og á fjórum þeirra eru fréttir allan sól­ar­hring­inn, á klukku­stundar fresti. Frétta­tím­arnir hafa frá árinu 1975 verið fimm mín­útna langir hverju sinni, nema í hádeg­inu, þá er frétta­tím­inn fimmtán mín­útna langur og iðu­lega fylgt eftir með umræðum um það sem hæst ber. Hádeg­is­frétta­tím­inn hefst með slætti ráð­hús­klukk­unnar í Kaup­manna­höfn. Lengi vel var slátt­ur­inn, sem tekur tvær mín­útur, í beinni útsend­ingu (hljóð­nemi í snúru hékk rétt hjá klukk­unni) en klukkan gengur ekki nægi­lega rétt til að hægt sé að nota hana þar sem fréttir eru nú sendar út staf­rænt á mörgum rásum sam­tímis og er því not­ast við upp­tökur af slætt­inum.

Hart var um það deilt á sínum tíma þegar yfir­maður frétta­stof­unnar ákvað að fram­vegis skyldi aðeins spil­aður hluti klukku­slátt­ar­ins og umræð­urnar röt­uðu alla leið inn í sal danska þings­ins. Þessi sami yfir­maður sagði að á tutt­ugu árum í yfir­manns­starf­inu hefðu þetta verið einu afskipti stjórn­mála­manna af starf­semi frétta­stof­unnar.

Helmingur þjóðarinnar hlustar daglega á fréttir DR

Í nýlegri könnun kom í ljós að af dönskum fjöl­miðlum njóta frétta­stofur DR, bæði útvarps og sjón­varps, lang­mests trausts dönsku þjóð­ar­innar. Í þess­ari könnun kom líka í ljós að helm­ingur dönsku þjóð­ar­innar hlustar dag­lega á fréttir danska útvarps­ins. Mest er hlust­unin á frétt­irnar klukkan tólf á hádegi, þá leggja 800 þús­und Danir eyrun við. Fæstir hlusta á frétta­tím­ana klukkan 3 og 4 á nótt­unni, þá eru hlust­endur um 9 þús­und. Rétt er að taka fram að töl­urnar mið­ast við þá sem hlusta á frétt­irnar í beinni útsend­ingu, fyrir utan alla þá sem hlusta á frétta­tím­ana á net­inu en DR heldur úti öfl­ugri og vand­aðri net­síðu sem, hvað notkun varðar, ber höfuð og herðar yfir aðrar danskar net­síður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár