Kjarasamningsviðræður í hnút - horft til læknasamningsins

Himinn og haf ber á milli aðila vinnu­mark­að­ar­ins, það er for­ystu verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar og Samtaka atvinnu­lífs­ins, fyrir kom­andi kjara­samn­ings­við­ræður en 45 kjara­samn­ingar laun­þega renna út um næstu mán­að­ar­mót. Eins og greint hefur verið frá í fréttum Kjarnans und­an­farnar vikur, er mein­ing­ar­munur þeirra sem aðild eiga að samn­inga­við­ræð­unum, til þess hve mikið er hægt að hækka laun, eins og svart og hvítt. Samn­ingar virð­ast víðs­fjarri.

Verka­lýðs­hreyf­ingin telur svig­rúm vera fyrir 20 til 30 pró­sent hækkun launa, og þar einkum hjá þeim sem lægstu launin hafa, á meðan Samtök atvinnu­lífs­ins (SA) horfa til þess að hámarks­launa­hækkun, að með­al­tali, sé um 3,5 pró­sent. Hag­kerfið ráði ekki við meiri hækkun en það, segja sam­tökin, og umfram hækk­anir geti runnið beint út í verð­lag og brennt upp kaup­mátt allra. Hafa sam­tökin unnið sjálf­stæðar úttektir og grein­ingar á stöð­unni, meðal ann­ars sviðs­mynda­grein­ingar, þar sem rök eru færð fyrir því að lítið meira svig­rúm en 3,5 pró­sent hækkun launa sé til hækk­unar.

[caption id="attachment_11264" align="alignnone" width="638"] Gylfi Arn­björns­son, for­seti ASÍ, er einn þeirra sem áherslu hefur lagt á að lægstu laun verði lækkuð mynd­ar­lega í kom­andi kjara­samn­ingum.[/caption]

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, er einn þeirra sem áherslu hefur lagt á að lægstu laun verði lækkuð myndarlega í komandi kjarasamningum.
Gylfi Arn­björns­son, for­seti ASÍ, er einn þeirra sem áherslu hefur lagt á að lægstu laun verði lækkuð mynd­ar­lega í kom­andi kjara­samn­ingum.

Hjá Starfs­greina­sam­band­inu (SGS), sem fer með samn­ings­um­boð sextán aðilda­fé­laga og ríf­lega tólf þús­und félags­manna, horfir þetta þver­öf­ugt við. Í kröfu­gerð sam­bands­ins kemur fram að lægstu laun skuli hækkuð í 300 þús­und á þremur árum, en þau eru 214 þús­und nú. Þá þurfi enn fremur að ná fram veru­legum launa­hækk­unum hjá fólki í gjald­eyr­is­skap­andi greinum. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans, hefur mikil sam­staða náðst meðal allra aðild­ar­fé­laga, um að knýja fram tug­pró­senta launa­hækkun lægstu launa.

Verka­lýðs­hreyf­ingin horfir meðal ann­ars til samn­ings íslenska rík­is­ins við lækna, en launa þeirra voru hækkuð með samn­ingi við ríkið í jan­úar um rúm­lega tutt­ugu pró­sent. Það sama má segja um Félag íslenskra hjúkr­un­ar­fræð­inga, en þar á bæ eru uppi kröfur um svip­aðar hækk­anir og læknar fengu í sínum samn­ingi, eða 20 til 25 pró­sent. Ólafur G. Skúlason, for­maður Félags íslenskra hjúkr­un­ar­fræð­inga, segir að stétt hjúkr­un­ar­fræð­inga verði að fá „leið­rétt­ingu“ á launum sínum til jafns við aðrar háskóla­mennt­aðar stéttir hjá hinu opin­bera, og þá sé samn­ing­ur­inn við lækna einnig eðli­legt við­mið í við­ræðum við hjúkr­un­ar­fræð­inga.

[caption id="attachment_16727" align="alignnone" width="1280"] Þor­steinn Víglunds­son, fram­kvæmda­stjóri SA, segir ekki vera svig­rúm til meiri launa­hækk­ana en hag­kerfið ráði við, sem sé í kringum 3,5 pró­sent hækkun. Annars geri verð­bólgu­draug­ur­inn vart við sig og éti upp kaup­mátt allra.[/caption]

Nú þegar hefur verið horft til þess að rík­is­sátta­semj­ari komi að málum og aðstoði við að leysa úr ágrein­ingi og ná fram samn­ingi, en samn­inga­nefnd SGS veitti samn­inga­ráði SGS umboð til þess að vísa deil­unni við SA til rík­is­sátta­semja 29. jan­úar síð­ast­lið­inn. Fátt bendir til ann­ars en að víð­tækt sam­ráð stjórn­valda og aðila vinnu­mark­að­ar­ins, í anda Þjóð­ar­sátt­ar­samn­ing­ana svoköll­uðu árið 1990, muni þurfa til þess að leysa úr þeirri stöðu sem upp er komin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár