Hjúkrunarfræðingar: Grunnforsendan að „leiðrétta“ launin

Félag íslenskra hjúkr­un­ar­fræð­inga hefur það sem leið­ar­ljós í und­ir­bún­ings­vinnu fyrir kom­andi kjara­samn­ings­við­ræður að fá launin „leið­rétt“ miðað við samn­inga ann­arra háskóla­mennt­aðra opin­berra starfs­manna. Þetta segir for­maður félags­ins, Ólafur G. Skúlason. Félagið er nú í funda­her­ferð um landið þar sem rætt er við félags­menn um kom­andi kjara­samn­ings­við­ræðum. Að henni lok­inni verða samn­ings­mark­mið fyrir kjara­samn­inga mótuð form­lega. „Grunn­for­sendan er að fá grunn­laun leið­rétt og hækka þau til sam­ræmis við laun ann­arra háskóla­mennt­aðra opin­berra starfs­manna,“ sagði Ólafur í sam­tali við Kjarnann. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans er horft til þess að hækk­unin sem þurfi að koma til, svo þessu mark­miði verði mætt, sé 20 til 25 pró­sent hækkun

Hann segir það ekki vera neitt leynd­ar­mál að „allur vinnu­mark­að­ur­inn“ horfi til samn­ings rík­is­ins við lækna en með honum voru laun lækna hækkuð um meira en 20 pró­sent. Hjúkr­un­ar­fræð­ingar búi enn fremur við svipuð skil­yrði og læknar hvað það varðar, að mikið hefur verið um það að fólk úr stétt­inni flytji úr landi þar sem laun þar eru betri.

Ólafur seg­ist ekki vilja nefna neinar tölur þegar kemur að kröfum um launa­hækk­anir en hækkun grunn­laun­anna, til jafns við við­mið­un­ar­stéttir, sé algjör lág­marks­krafa. Ekki síst þar sem hjúkr­un­ar­fræð­ingar séu með fjög­urra ára nám að jafn­aði að baki, á meðan við­mið­un­ar­stéttir háskóla­mennt­aðra starfs­manna séu með þriggja ára grunn­nám að baki.

Mikil spenna er nú á vinnu­mark­aði fyrir kom­andi kjara­samn­ings­við­ræður, en mikið ber á milli verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar og Samtaka atvinnu­lífs­ins, þegar kemur að mati á því hversu mikið sé hægt að hækka laun á almennum vinnu­mark­aði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár