Titringur á meðal kröfuhafa vegna frestunar Seðlabankans

Frestun Seðla­banka Íslands á birt­ingu á Fjár­mála­stöð­ug­leika­riti sínu, sem kynna átti fyrir sex dögum síðan, hefur valdið nokkrum titr­ingi, meðal ann­ars hjá kröfu­höfum slita­búa föllnu bank­anna. Ástæðan er sú að í rit­inu átti að birt­ast við­auki um þau stöð­ug­leika­skil­yrði sem slita­búin þurfa að greiða til að kom­ast hjá 39 pró­sent stöð­ug­leika­skatti og um nauða­samn­ing þeirra. Á kynn­ing­ar­fundi vegna útkomu rits­ins átti einnig að opin­bera mat á til­lögum um aðgerðir og greiðslu stöð­ug­leika­fram­lags sem upp­fylla ætti sett stöð­ug­leika­skil­yrði stjórn­valda.

Óttast hluti kröfu­hafa nú að mögu­lega sé verið að breyta um stefnu í mál­inu sem gæti sett nauða­samn­inga slita­bú­anna í upp­nám.

Það hefur aldrei áður gerst að Seðla­bank­inn fresti birt­ingu Fjár­mála­stöð­ug­leika­rits síns, ítar­legri úttekt á þjóð­hags­legu umhverfi, fjár­mála­mörk­uðum og fjár­mála­stofn­unum, sem birt er tvisvar á ári. Skömmu áður en ritið átti að koma út síð­ast­lið­inn þriðju­dag barst hins vegar stutt til­kynn­ing um að útgáfu rits­ins hafi verið frestað um „nokkra daga“. Ástæðan væri sú að ekki hefði tek­ist að ljúka því sam­ráðs- og kynn­ing­ar­ferli sem reiknað var með að yrði lokið áður en ritið yrði birt.

Enn hefur ekki verið til­kynnt hvenær von sé á rit­inu. Í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið í dag sagði tals­maður Seðla­bank­ans að það yrði birt á næstu viku til tíu daga.

Framlag eða skattur


Í júní var áætlun stjórn­valda um losun hafta opin­beruð. Þar kom fram að slita­búum Glitnis, Kaup­þings og Lands­bank­ans gæf­ist kostur á því að mæta svoköll­uðum stöð­ug­leika­skil­yrðum til að fá að ljúka slitum sínum án þess að stöð­ug­leika í gengis- og pen­inga­málum Íslands væri ógnað. Ef ekki næð­ist sam­komu­lag um greiðslu þess fram­lags myndi leggj­ast 39 pró­sent stöð­ug­leika­skattur á allar eignir búanna sem átti að skila um 850 millj­örðum króna til rík­is­sjóðs. Mjög skammur tími var gefin til þess að ljúka skipt­unum. Nauða­samn­ingar ættu að liggja fyrir og afgreiðsla þeirra að klár­ast fyrir árs­lok.

Áður en áætl­unin var kynnt hafði hins vegar þegar náðst sam­komu­lag við stærstu kröfu­hafa föllnu bank­anna um að greiða stöð­ug­leika­fram­lag til að sleppa við álagn­ingu skatts­ins. Þeir höfðu þá fundað reglu­lega með full­trúum stjórn­valda frá því í febr­úar.

Uppfylla "í stórum dráttum" stöðugleikaskilyrðin


Und­an­farna mán­uði hafa slita­búin síðan unnið að því að standa við það sam­komu­lag með Seðla­bank­anum. Þegar hefur verið sam­þykkt á kröfu­hafa­fundum þeirra allra að greiða stöð­ug­leika­fram­lag sem verður sam­tals um 334 millj­arðar króna. Slitabú Glitnis mun greiða uppi­stöð­una af þeirri greiðslu, eða um 200 millj­arða króna.

Í lok sept­em­ber birti Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri opin­ber­lega bréf til InDefence-hóps­ins svo­kall­aða, sem hefur efast mjög um þá leið sem er verið að fara í upp­gjöri á slita­búum föllnu bank­anna. Í bréf­inu komu fram þau merki­legu tíð­indi, í fyrsta sinn, að Seðla­bank­inn telji nauða­samn­inga Glitnis, Kaup­þings og Lands­bank­ans upp­fylla „í stórum dráttum skil­yrði um stöð­ug­leika í gengis- og pen­inga­málum“ og tryggja fjár­mála­legan stöð­ug­leika í íslensku hag­kerfi. Ýmis atriði þyrfti þó að skoða nánar, meðal ann­ars áhrif nauð­samn­ing­anna á á lausa­fjár­stöðu fjár­mála­fyr­ir­tækja og sölu­ferli Íslands­banka og Arion. „Sú skoðun er á loka­stigi og í fram­haldi af því gætu skap­ast for­sendur fyrir nán­ari opin­berri kynn­ingu,“ sagði Már. Sú opin­bera kynn­ing átti að vera síð­ast­lið­inn þriðju­dag.

[caption id="attachment_25769" align="alignnone" width="623"] Seðla­bank­inn telur nauða­samn­inga Glitnis, Kaup­þings og Lands­bank­ans upp­fylla „í stórum dráttum skil­yrði um stöð­ug­leika í gengis- og pen­inga­málum“ og tryggja fjár­mála­legan stöð­ug­leika í íslensku hag­kerfi. Þetta kom fram í bréfi Más Guð­munds­sonar seðla­banka­stjóra til InDefence í lok sept­em­ber.[/caption]

Kaupþing og Landsbankinn langt komnir


Samkvæmt heim­ildum Kjarnans virt­ist málið í góðum far­vegi í byrjun októ­ber. Töluverð sam­skipti voru milli kröfu­hafa og Seðla­bank­ans vegna upp­lýs­inga sem bank­inn þarf til að ljúka grein­ingu sinni á áhrifum slit­anna. Þannig séu mál slita­bús Kaup­þings og Lands­bank­ans bæði mjög langt komin og fátt sem virð­ist geta sett nauða­samn­ings­gerð þeirra í upp­nám.

Slit Glitnis eru flókn­ari, enda þarf slitabú hans að greiða mun víð­tæk­ari stöð­ug­leika­fram­lag en hinir bank­arnir. Þessi staða kom raunar fram að ein­hverju leyti í orðum Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra í seinni fréttum RÚV síð­ast­lið­inn mið­viku­dag, þótt hann hefði ekki nefnt sér­stök slitabú á nafn. Þar sagði for­sæt­is­ráð­herra að honum heyrð­ist „að það gangi svona mis­vel hjá slita­bú­unum að upp­fylla þessi skil­yrði, en tak­ist það ekki á þeim skamma tíma sem eftir er nú þá er bara skatta­leiðin aug­ljós.“

Það vakti því mikla athygli, og olli tor­tryggni á meðal kröfu­hafa, þegar Seðla­bank­inn hætti skyndi­lega við að birta Fjár­mála­stöð­ug­leika­ritið á þriðju­dag. Samhliða átti enda að opin­bera mat á til­lögum um aðgerðir og greiðslu stöð­ug­leika­fram­lags sem upp­fylla ætti sett stöð­ug­leika­skil­yrði stjórn­valda. Við­mæl­endur Kjarnans full­yrða að þetta mat, og ósætti um hvernig það eigi að vera sett fram, sé ástæða þess að birt­ingu rits­ins var frestað.

Segja kröfuhafa vera að fá ódýra leið


Gagnrýni InDefence-hóps­ins og und­ir­tektir sumra stjórn­mála­manna á hana er talin vera að hafa áhrif á stöð­ug­leika­fram­lags­ferlið. Sú gagn­rýni snýst helst um að hóp­ur­inn segir að tals­verð hætta sé að svig­rúm til að aflétta höftum á almenn­ing verði lítið næstu árin, að stöð­ug­leika­skil­yrðin séu ódýr leið fyrir kröfu­hafa slita­búa föllnu bank­anna úr gjald­eyr­is­höftum og að greiðsla stöð­ug­leika­skil­yrða muni skerða lífs­kjör almenn­ings. Þessi gagn­rýni hefur meðal ann­ars verið tekin upp á Alþingi af Árna Páli Árnasyni, for­manni Sam­fylk­ing­ar­innar. Hann óskaði eftir því í síð­ustu viku að rík­is­stjórnin myndi upp­lýsa þjóð­ina um „þann mikla afslátt sem verið sé að beita slita­búum föllnu bank­anna“ í gegnum greiðslu stöð­ug­leika­fram­lags­ins.

Sú skoðun að hægt sé að það sé þjóð­hags­lega hag­kvæmara að leggja á stöð­ug­leika­skatt á sér líka stuðn­ings­menn innan Fram­sókn­ar­flokks­ins og hjá hluta Sjálf­stæð­is­manna, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans.

Skattur gæti leitt til lagalegs ágreinings


Það hefur hins vegar ítrekað komið fram í máli ráða­manna þjóð­ar­innar að mark­mið stöð­ug­leika­fram­lags­ins, eða álagn­ingu stöð­ug­leika­skatts, á ekki að vera að afla rík­is­sjóði tekna heldur að koma í veg fyrir óstöð­ug­leika í gengis- og pen­inga­málum og fjár­mála­ó­stöð­ug­leika við slit búa fall­inna fjár­mála­fyr­ir­tækja.

Þá kom skýrt fram í svar­bréfi Más Guð­munds­sonar til InDefence, sem sent var í síð­asta mán­uði, að skatt­lagn­ing­ar­leiðin hefði vissa ann­marka. Meðal ann­ars feli hún í sér meiri hættu á eft­ir­málum og laga­legum ágrein­ingi sem myndi leiða til þess að losun fjár­magns­hafta myndi ganga hægar en ella. „Hámarks­fjár­hæð stöð­ug­leika­skatts­ins (án frá­drátt­ar­liða) ætti því ekki að bera saman við fjár­hæð stöð­ug­leika­fram­lags, heldur verður að einnig taka til­lit til ann­arra þátta nauða­samn­ings­leiðar sem stuðlar að stöð­ug­leika,“ sagði Már.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár