Stöðugleikaframlag verður 334 milljarðar - Landsbankinn borgar 14 milljarða

Slitabú föllnu bank­anna þriggja munu sam­tals greiða 334 millj­arða króna í stöð­ug­leika­fram­lag til rík­is­ins. Á fundi í dag ákváðu kröfu­hafar í gamla Lands­bank­anum að greiða stöð­ug­leika­fram­lag, sem verður 14,4 millj­arðar króna, sam­kvæmt því sem kom fram í fréttum RÚV.

Á fundum í sept­em­ber sam­þykktu kröfu­hafar Glitnis að greiða um 200 millj­arða króna í stöð­ug­leika­fram­lag og kröfu­hafar Kaup­þings að greiða um 120 millj­arða. Lægra fram­lag Lands­bank­ans til rík­is­sjóðs en ann­arra slita­búa skýrist fyrst og fremst af því að krónu­eign bús­ins er tals­vert lægra en hinna tveggja.

Á kröfu­hafa­fund­inum í dag var einnig lagt til að stofn­aður verði skað­leys­i­sjóður til að standa straum af mögu­legum mála­ferlum gegn slita­stjórn­ar­mönnum og ráð­gjafa þeirra, sem var sam­þykkt. Sams­konar sjóðir hafa verið sam­þykktir af kröfu­höfum hinna búanna líka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár