Nauðasamningar gömlu bankanna uppfylla í stórum dráttum stöðugleikaskilyrði

Þau drög að nauða­samn­ingum sem slitabú föllnu bank­anna þriggja hafa sent inn til Seðla­bank­ans upp­fylla "í stórum dráttum skil­yrði um stöð­ug­leika í gengis- og pen­inga­málum" og tryggja fjár­mála­legan stöð­ug­leika í íslensku hag­kerfi. Ýmis atriði þarf þó að skoða nánar, meðal ann­ars áhrif nauð­samn­ing­anna á á lausa­fjár­stöðu fjár­mála­fyr­ir­tækja og sölu­ferli Íslands­banka og Arion. "Sú skoðun er á loka­stigi og í fram­haldi af því gætu skap­ast for­sendur fyrir nán­ari opin­berri kynn­ingu". Þetta kemur fram í svar­bréfi Más Guð­munds­sonar seðla­banka­stjóra til Indefence-hóps­ins sem birt var á vef Seðla­banka Íslands í dag.

InDefence- hóp­ur­inn, sem er þekkt­astur fyrir and­stöðu sína gagn­vart Icesave-samn­ing­unum, hefur und­an­farið látið sig afnám hafta og þá aðferð­ar­fræði sem beitt er við þá aðgerð sig varða. Hópurinn telur að kröfu­hafar föllnu bank­anna séu að fá afslátt með greiðslu stöð­ug­leika­fram­lags sem þeir eigi engan rétt á. Þess í stað eigi að leggja á slita­búin stöð­ug­leika­skatt upp á 39 pró­sent.

Í síð­ustu viku sendi hóp­ur­inn seðla­banka­stjóra bréf þar sem þess var kraf­ist að hann myndi sam­stundis birta hin svoköll­uðu stöð­ug­leika­skil­yrði sem slitabú Glitnis, Kaup­þings og Lands­banka þurfa að upp­fylla til að geta greitt stöð­ug­leika­fram­lag og kom­ast hjá skatt­lagn­ingu.

Samkvæmt útreikn­ingum Kjarnans mun sam­eig­in­legt stöð­ug­leika­fram­lag slita­bú­anna þriggja vera frá 330 til 380 millj­arðar króna en stöð­ug­leika­skattur á að skila allt að 850 millj­örðum króna. Þau „spara“ sér því allt að 520 millj­arða króna með því að mæta þeim frekar en að greiða stöð­ug­leika­skatt.

Stöðugleikaskilyrðin þegar birt


Í svar­bréfi Más kemur fram að stöð­ug­leika­skil­yrðin hafi þegar verið birt og vísar hann í yfir­lýs­ingu Seðla­bank­ans frá 8. júní, sama dag og rík­is­stjórnin kynnti áætlun um losun hafta, því til stuðn­ings. "Þar kemur fram að við mat á hugs­an­legum und­an­þágum vegna nauða­samn­inga muni bank­inn horfa til þess að i) gerðar verði ráð­staf­anir sem dragi nægi­lega úr nei­kvæðum áhrifum af útgreiðslum and­virðis eigna í íslenskum krónum, ii) að öðrum inn­lendum eignum fall­inna fjár­mála­fyr­ir­tækja í erlendum gjald­eyri verði breytt í lang­tíma­fjár­mögnun að því marki sem þörf krefur og iii) að tryggt verði, í þeim til­vikum sem það á við, að lána­fyr­ir­greiðsla stjórn­valda í erlendum gjald­eyri sem veitt var nýju bönk­unum í kjöl­far hruns á fjár­mála­mark­aði verði end­ur­greidd. Ofan­greint er kjarni stöð­ug­leika­skil­yrð­anna sem byggt verður á við mat á und­an­þágu­beiðnum og nauða­samn­ings­drögum búa föllnu bank­anna."

Nú sé unnið að því að heim­færa þessi skil­yrði upp á þá aðila sem falla undir stöð­ug­leika­skatt og hyggj­ast fara leið und­an­þágu á grund­velli nauð­samn­ings og stöð­ug­leika­skil­yrða. Már segir að þó sú vinna sé vel á veg komin sé henni ekki lokið. Það sé því ekki á þessu stigi hægt að birta nið­ur­stöðu þeirrar vinnu að svo stöddu.

 

Lagalegur ágreiningur vegna skatts myndi tefja losun hafta


Í bréfi InDefence-hóps­ins til Más var einnig spurt hvernig stöð­ug­leika­skattur og nauða­samn­ingar á grund­velli stöð­ug­leika­skil­yrða geti verið efna­hags­lega jafn­gild með hlið­sjón að greiðslu­jöfn­uði þjóð­ar­innar. Í svari Más segir: "Í því sam­bandi er mik­il­vægt að hafa í huga að mark­mið stöð­ug­leika­skatts­ins er ekki að afla rík­is­sjóði tekna heldur að koma í veg fyrir óstöð­ug­leika í gengis- og pen­inga­málum og fjár­mála­ó­stöð­ug­leika við slit búa fall­inna fjár­mála­fyr­ir­tækja. Því mark­miði er einnig hægt að ná með öðrum hætti en skatti á allar eignir slita­bú­anna óháð mis­mun­andi sam­setn­ingu eigna og krafna búanna og án þess að tekið sé til­lit til þess að fram­lag búanna til greiðslu­jafn­að­ar­vand­ans er mis­mikið."

Að sögn Más heur skatt­lagn­ing­ar­leiðin vissa ann­marka. Meðal ann­ars feli hún í sér meiri hættu á eft­ir­málum og laga­legum ágrein­ingi sem myndi leiða til þess að losun fjár­magns­hafta myndi ganga hægar en ella. "Hámarks­fjár­hæð stöð­ug­leika­skatts­ins (án frá­drátt­ar­liða) ætti því ekki að bera saman við fjár­hæð stöð­ug­leika­fram­lags, heldur verður að einnig taka til­lit til ann­arra þátta nauða­samn­ings­leiðar sem stuðlar að stöð­ug­leika," segir Már.

Í aðdrag­anda þess að stjórn­völd kynntu aðgerðir sínar um losun hafta höfðu átt sér stað samn­inga­við­ræður milli þeirra og stærstu kröfu­hafa föllnu bank­anna um hvernig þeir ætl­uðu að mæta stöð­ug­leika­skil­yrð­unum. Kröfu­haf­arnir höfðu þegar fall­ist á að gera það áður en áætl­unin var kynnt. Síðan þá hafa slita­stjórnir Glitnis, Kaup­þings og Lands­bank­ans allar sent Seðla­bank­anum beiðnir um und­an­þágur frá fjár­magns­höftum og lagt fram drög að nauða­samn­ingum sem Seðla­bank­inn hefur haft til með­ferðar.

Í bréfi Más til InDefence segir: "Svo er að sjá að til­lög­urnar upp­fylli í stórum dráttum skil­yrði um stöð­ug­leika í gengis- og pen­inga­málum og tryggi fjár­mála­legan stöð­ug­leika. Ýmis atriði hefur þó þurft að skoða nánar, m.a. áhrif á lausa­fjár­stöðu fjár­mála­fyr­ir­tækja og sölu­ferli Íslands­banka og Arion. Sú skoðun er á loka­stigi og í fram­haldi af því gætu skap­ast for­sendur fyrir nán­ari opin­berri kynn­ingu."

Hægt er að lesa bréf Más í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár