Seðlabankinn frestar kynningu á greiðslu stöðugleikaframlags - Samráðsferli ekki lokið

Seðla­banki Íslands hefur frestað útkomu Fjár­mála­stöð­ug­leika-skýrslu sinnar, sem kynna átti klukkan tíu í dag. Ástæðan er sú að tíma­setn­ingin reynd­ist "óheppi­leg í ljósi þess að ekki hefur tek­ist að ljúka því sam­ráðs- og kynn­ing­ar­ferli sem reiknað var með að yrði lokið áður en ritið yrði birt." Þetta kemur fram í stuttri til­kynn­ingu frá Seðla­bank­anum. Útgáfu rits­ins hefur verið frestað um "nokkra daga".

Á meðal þess sem kynnt verður í rit­inu er við­auki um þau stöð­ug­leika­skil­yrði sem slitabú föllnu bank­anna þurfa að greiða til að kom­ast hjá 39 pró­sent stöð­ug­leika­skatti og um nauða­samn­inga þeirra. Á kynn­inga­fundi vegna útkomu rit­stins átti að opin­bera mat á til­lögum um aðgerðir og greiðslu stöð­ug­leika­fram­lags sem upp­fylla ætti stt stöð­ug­leika­skil­yrði stjórn­valda.

Full­trúar Seðla­bank­ans sáu sér ekki fært að mæta á fund efna­hags- og við­skipta­nefndar í gær til að fara stöð­ug­leika­skil­yrðin og hvernig slita­bú­unum gengi að mæta þeim þar sem þeir vildu ekki upp­lýsa um stöðu þess áður en að Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, yrði kynnt sú nið­ur­staða. Það vakti hins vegar athygli að Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri fund­aði með InDedence-hópnum í síð­ustu viku, en hóp­ur­inn hafði kraf­ist þess að Seðla­bank­inn birti sam­stundis öll stöð­ug­leika­skil­yrðin sem slitabú Glitnis, Kaup­þings og Lands­bank­ans þurfa að mæta til að sleppa við stöð­ug­leika­skatt­inn.

Alls munu kröfu­hafar slita­bú­anna greiða um 334 millj­arða króna í stöð­ug­leika­fram­lag til rík­is­sjóðs gangi áform um nauða­samn­inga þeirra eftir. Glitnir mun að öllum lík­indum greiða um 200 millj­arða króna, Kaupþing um 120 millj­arða króna og Lands­bank­inn um 14 millj­arða króna. Tölurnar gætu sveifl­ast til eftir því hvernig gengur að selja stærstu inn­lendu eignir Glitnis og Kaup­þings: Íslands­banka og Arion banka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár