Sjálfstæðisflokknum snýst hugur – Ætla að fara í almennt prófkjör

Í des­em­ber ákvað full­trúa­ráð sjálf­stæð­is­fé­lag­anna í Reykja­vík að halda svo­kallað leið­toga­próf­kjör fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar. Nú hefur því snú­ist hugur og ráðið ætlar að leggja til almennt próf­kjör 12. mars næst­kom­andi.

Hildur Björnsdóttir hefur enn sem komið er ein lýst yfir áhuga á að leiða lista Sjálfstæðisflokks í komandi borgarstjórnarkosningum.
Hildur Björns­dóttir hefur enn sem komið er ein lýst yfir áhuga á að leiða lista Sjálf­stæð­is­flokks í kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum. Mynd: RÚV/Skjáskot

Stjórn Varðar, full­trúa­ráðs sjálf­stæð­is­fé­lag­anna í Reykja­vík, ákvað á fundi sínum í kvöld að leggja fram til­lögu um að boða til almenns próf­kjörs fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar, sem fara fram í maí. Tillagan verður lögð fyrir full­trúa­ráðs­fund í flokknum sem hald­inn verður í Valhöll eftir viku, 10. febr­úar. Full­­­trú­a­ráð Sjálf­­­stæð­is­­­flokks­ins þarf að sam­­­þykkja leið­ina til að hún verði að veru­­­leika með ein­földum meiri­hluta atkvæða.

Verði hún sam­þykkt mun próf­kjörið fara fram 12. mars næst­kom­andi og kjör­skrá afmörkuð við flokks­skrá tveimur vikum fyrir kjör­dag.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Verði sem send var út í kvöld.

Um við­snún­ing er að ræða. Á fundi hjá Verði, sem fram fór þann 15. des­em­ber, var sam­þykkt til­laga um að halda svo­kallað leið­toga­próf­kjör í Reykja­vík eins og fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar 2018.

[adspot]Hefði sú leið gengið eftir hefði verið kosið í kjör­­­nefnd til að fylla önnur sæti á list­an­­um og almennir flokks­menn hefðu því ein­ungis fengið að segja skoðun sína á því hver myndi leiða list­ann.

Ein­ungis einn fram­bjóð­andi hefur enn sem komið er gefið kost á sér til að leiða list­ann, en það er Hildur Björns­dóttir borg­ar­full­trúi. Hún hefur sagt að hún von­aðist eftir því að flokk­ur­inn myndi halda opið próf­kjör um efstu sæti á lista. Eyþór Arn­alds odd­viti flokks­ins í Reykja­vík hætti við fram­boð sitt skömmu eftir að Vörður sam­þykkti að leggja til leið­toga­próf­kjör­ið. Honum leist vel á að halda leið­toga­próf­kjör, eftir að sú til­laga kom fram.

Marta Guð­jóns­dóttir, borg­ar­full­trúi flokks­ins, hefur sagt að hún sé að íhuga að sækj­ast eftir leið­toga­sæti en er ekki búin að taka end­an­lega ákvörðun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár