Kröfu Hreiðars hafnað: Like, Twitterfærslur og blogg ekki tilefni til að láta dómara víkja

Ásgeir Brynjar Torfason þarf ekki að víkja sem með­dóm­ari í Marple-mál­inu svo­kall­aða eins og Hreiðar Már Sig­urðs­son, sak­born­ingur í mál­inu, hafði farið fram á. Úrskurður var kveð­inn upp í hér­aðs­dómi Reykja­víkur í morgun.

Hörður Felix Harð­ar­son, lög­maður Hreiðars Más, hafði farið fram á það að Ásgeir viki sæti í mál­inu, meðal ann­ars á þeim for­sendum að hann situr í stjórn sam­tak­anna Gagnsæis, sem hafa það yfir­lýsta mark­mið að berj­ast gegn spill­ingu í öllum grunn­stoðum sam­fé­lags­ins. Auk þess voru ýmis ummæli Ásgeirs Brynjars í þjóð­mála­um­ræðu und­an­far­inna ára sem og grein­ar­skrif hans sögð draga úr hlut­leysi hans sem dóm­ara. Kjarninn greindi frá þessu á mánu­dag.

Vísir greindi einnig frá mál­inu og því að meðal þess sem Hreiðar not­aði sem rök­stuðn­ing eru ummæli Ásgeirs í mynd­bands­bloggi hjá Teiti Atlasyni, nafn­laus grein á bloggi Egils Helga­sonar sem Hreiðar telur að Ásgeir hafi skrifað og færslur á Facebook sem hann hefur látið sér líka við.

„Það eru til að mynda engin rök fyrir því að seta með­dóm­and­ans í stjórn sam­tak­anna Gagnsæi, sem berj­ast gegn spill­ingu, hafi áhrif á hlut­lægni hans. Flest sam­fé­lög reyna nú að upp­ræta spill­ingu. Slík stjórn­ar­seta ætti því að vera litin jákvæðum augum hvort sem er af ákæru­vald­inu og ákærðu,“ sagði Arn­þrúður Þór­ar­ins­dóttir sak­sókn­ari þegar krafan var tekin fyrir í gær, að því er fram kom á Vísi. Hún sagði líka að ummæli hefðu verið tekin úr sam­hengi í kröf­unni.

Höfðu allir áður samþykkt meðdómarann


Sak­born­ingar í Marple-mál­inu höfðu áður allir sam­þykkt Ásgeir Brynjar sem með­dóm­ara í mál­inu. Hann er lektor við Háskóla Íslands og kennir fjár­mál, bók­hald og grein­ingu árs­reikn­inga. Hann lauk dokt­ors­prófi frá Gauta­borg­ar­há­skóla í fyrra og fjall­aði dokt­ors­rit­gerð hans um flæði fjár­magns í banka­kerf­inu en rann­sóknin byggði á mis­mun­andi aðferðum og sam­spili fjár­mála, pen­inga­hag­fræði og reikn­ings­skila­reglna. Ásgeir Brynjar var einn umsækj­enda um starf seðla­banka­stjóra þegar það var aug­lýst til umsóknar árið 2014.

Ef úrskurðað hefði verið að Ásgeir þyrfti að víkja sæti hefði aðal­með­ferð í mál­inu þurft að fara fram á ný, en henni var lokið. Dómur í mál­inu verður kveð­inn upp á næstu dögum.

Snýst um tilfærslu á átta milljörðum til Skúla Þorvaldssonar


Fjórir eru ákærðir í Marple-mál­inu, þau Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, Guðný Arna Sveins­dóttir, fyrr­ver­andi fjár­mála­stjóri bank­ans, Magnús Guð­munds­son, fyrr­ver­andi for­stjóri bank­ans í Lúx­em­borg og Skúli Þor­valds­son fjár­festir.

Hreiðar Már og Guðný Arna eru ákærð fyrir fjár­drátt og umboðs­svik. Magnús er ákærður fyrir hlut­deild í fjár­drætti og umboðs­svikum og Skúli er ákærður fyrir hylm­ingu. Málið snýst um til­færslu á um átta millj­örðum króna úr sjóðum Kaup­þings til félags­ins Marple Holding, í eigu Skúla, án þess að lög­mætar við­skipta­legar ákvarð­anir lægju þar að baki. Hin ákærðu eiga yfir höfði sér allt að sex ára fang­elsi verði þau fundin sek.

Alls hefur emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara ákært þá Hreiðar Má og Magnús fjórum sinnum. Hreiðar Már hefur tví­vegis verið dæmdur sekur í málum gegn honum, þótt annað þeirra mála eigi enn eftir að fara fyrir Hæsta­rétt. Magnús hlaut dóm í Al Thani-mál­inu en var sýkn­aður í stóra mark­aðs­mis­notk­un­ar­mál­inu tengt Kaup­þingi fyrr á þessu ári. Báðir afplána þeir nú langa fang­els­is­dóma á Kvía­bryggju.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár