Vilja þyrlupall á Heimaey

Fimm þing­menn hafa nú lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu þar sem sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra er falið að gera ráð­staf­anir til að hanna og stað­setja þyrlu­pall á Heimaey til að auka enn frekar öryggi í sjúkra- og neyð­ar­flugi til Vest­manna­eyja.

Alþingi ályktar að fela sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra að gera nú þegar ráð­staf­anir til að Isavia geti hannað og stað­sett þyrlu­pall á Heimaey til að auka enn frekar öryggi í sjúkra- og neyð­ar­flugi til Vest­manna­eyja. Verkinu verði lokið ekki síðar en árið 2020. Þetta kemur fram í þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um þyrlu­pall á Heimaey sem lögð var fram í gær.

Flutn­ings­menn eru Ásmundur Frið­riks­son, Vil­hjálmur Árnason, Smári McCarthy, Silja Dögg Gunn­ars­dóttir og Páll Magn­ús­son.

Í grein­ar­gerð með til­lög­unni segir að þyrlur Land­helg­is­gæsl­unnar hafi farið tugi ferða á und­an­förnum árum til Vest­manna­eyja í sjúkra­flug þegar engin önnur leið hafi verið fær á milli lands og Eyja.

„Sjúkra­flug til Vest­manna­eyja eru um 100 á ári en er mörgum ann­mörkum háð. Það tekur um það bil tvær klukku­stundir að und­ir­búa og koma sjúkra­flug­vél til Eyja frá því að útkall kemur og þar til vélin lendir í Eyjum.

Stað­setn­ing sjúkra­flugs á Akureyri er nán­ast lengsta mögu­lega flug­leið frá lands­byggð­inni til Eyja. Veður breyt­ast eins og hendi sé veifað í Vest­manna­eyjum og það ger­ist að sjúkra­flug­vél sem lögð er af stað til Eyja á ekki mögu­leika á að lenda þar. Þar getur verið mjög mis­vinda­samt, skýja­hæð undir 500 fetum og oft krefj­andi aðstæður sem sjúkra­flug­vél ræður ekki við,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

[adspot]

Kemur enn fremur fram í grein­ar­gerð­inni að við þær aðstæður, sem lýst er hér að ofan, þurfi að kalla út þyrlu Land­helg­is­gæsl­unnar til að sækja sjúka eða slas­aða til Eyja. Þyrlur Gæsl­unnar hafi oft farið við afar erf­iðar aðstæður til Eyja og oft sé flug­völl­ur­inn lok­aður fyrir allri umferð og þurfi þyrlan í slíkum neyð­ar­flugum að not­ast við Ham­ars­veg, vestan Dverg­ham­ars, sem lend­ing­ar­stað. Ekkert merkt svæði eða lend­ing­ar­pallur sé í Vest­manna­eyjum í slíkum til­fellum og mik­il­vægt að auka öryggi íbú­anna með bygg­ingu þyrlu­palls. Stað­setn­ingu þyrlu­palls þurfi að ákveða í sam­ráði við Isavia í Vest­manna­eyjum, yfir­stjórn sjúkra­flutn­inga HSU, Flug­deild Land­helg­is­gæslu Íslands og skipu­lags­yf­ir­völd í Vest­manna­eyjum.

„Í Vest­manna­eyjum búa rúm­lega 4.200 manns við áhættu­sækið atvinnu­líf og skerta sjúkra­hús­þjón­ustu í alvar­leg­ustu til­fellum. Fæð­ing­ar­þjón­usta er rekin með ljós­mæðra­vakt, en ekki er rekin sér­fræði­þjón­usta lækna allan sóla­hring­inn. Sjúkra­flug er því mik­il­vægur örygg­is­vent­ill sem alls ekki má bregð­ast þegar neyð­ar­á­stand skap­ast í Eyjum.

Fyrirséð er að þyrla verður áfram mik­il­vægt örygg­is­tæki fyrir sjúkra­flug frá Eyjum þegar flug­völl­ur­inn er lok­aður, Herj­ólfur ekki í sigl­ingum og Land­eyja­höfn jafn­vel lokuð. Það er því mik­il­vægt að búa þannig að þyrlu­flug­inu að besta mögu­lega aðstaða verði gerð sem fyrst og nýt­ist þegar flug­völl­ur­inn í Eyjum lok­ast vegna veð­ur­fars­að­stæðna sem eng­inn ræður við eins og ger­ist iðu­lega fyr­ir­vara­lítið í Eyjum,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár