Verkstæði jólasveinsins

Hvert er heim­il­is­fang jóla­sveins­ins? Stórt er spurt.

Hún er hug­ljúf sagan um verk­stæði jóla­sveins­ins sem nær allt árið situr með tálgu­hníf­inn og und­ir­býr jóla­leið­ang­ur­inn, á sleð­anum með hrein­dýrin spennt fyrir, með allt jóla­skrautið og gjaf­irnar. Hvar hann hefur aðsetur hefur valdið miklum heila­brotum og jafn­vel deilum. Græn­lend­ingar og Finnar deildu árum saman um ,,heim­il­is­fangið“ en eftir að græn­lenskt jóla­sveina­fyr­ir­tæki komst í þrot fyrir nokkrum árum hafa Finnar tekið af allan vafa: sveinki hefur aðsetur við bæinn Rovaniemi í norð­ur­hluta Finn­lands.

Þegar pistla­skrif­ari var að alast upp, uppúr miðri síð­ustu öld minn­ist hann þess ekki að mikið hafi verið rætt um hvar jóla­skrautið hefði verið búið til. Skrautið á jóla­trénu var ,,margnota“ tekið uppúr kass­anum þar sem það lá í hálm­inum og hengt á tréð, helst á sömu grein og í fyrra! Fór svo sömu leið til baka og alla leið uppá háa­loft, jóla­tréss­er­ían var frá Reykja­lundi. Að ógleymdu engla­hár­inu sem var lagt yfir skrautið á trénu, englarnir sem lögðu það til höfðu grein­lega ekki farið til rak­ar­ans einu sinni í mán­uði, hárið næði dauð­legum mönnum niður undir hné. Ekki má í þessu sam­hengi gleyma öðru skrauti en því sem hékk á trénu, þar sitja músa­stig­arnir í minn­inu, strengdir horna á milli í stof­unni. Til að auka enn á skreyt­ingar var litlum greni­greinum stungið bak­við mál­verkin í stof­unni og gjarna kveikt í greninálum í ösku­bakka, til að fá ,,jóla­lykt­ina“.

Ef keypt var nýtt jóla­skraut, sem tald­ist til und­an­tekn­inga, stóð oftar en ekki utan á umbúð­unum ,,made in Germany“ semsé Þýska­landi. Þetta var þá.

Made in China

Á síð­ustu örfáum ára­tugum hefur ris­inn í austri, einsog Kína er stundum kallað, orðið æ atkvæða­meiri á öllum sviðum. Þar er jóla­skraut ekki und­an­skilið. Ekki er það vegna þess að Kín­verjar eigi ríka jóla­hefð og fæstir kann­ist við þennan Jesús og allt umstangið sem fæð­ing hans, og ævi, hefur haft í för með sér. Enda er þeim kannski alveg sama. En það hefur sann­ar­lega ekki farið fram hjá þeim að á Vest­ur­löndum séu þessi ,,jól“ sann­kölluð gullöld. Stendur að vísu stutt en kemur aftur að ári.

Yiwu

Um það bil 350 kíló­metrum vestan við Shanghai er Yiwu, borg sem fáir þekkja. Yiwu er lítil borg, á kín­verskan mæli­kvarða, íbú­arnir um það bil ein og hálf milljón. Þessi borg er sann­kölluð jóla­skraut­s­borg. Milli 60 og 80 pró­sent af öllu því jóla­skrauti sem er til sölu í versl­unum um víða ver­öld, og dregið er niður af háa­loft­inu, fyrir hver jól verður til í Yiwu. Þrátt fyrir þetta gíf­ur­lega magn fer fram­leiðslan ekki fram í stórum verk­smiðjum, lang mestur hluti skrauts­ins verður til á litlum verk­stæðum og heim­ilum.

Vinnu­dag­ur­inn er langur, oft 12 klukku­stundir og launin eru lág. Vörurnar eru svo seldar á mark­aðnum í Yiwu sem iðu­lega hefur verið lýst, meðal ann­ars af Sam­ein­uðu þjóð­unum, sem stærsta heild­sölu­mark­aði í heimi. Þar er reyndar ekki ein­göngu seldur jóla­varn­ingur, allt milli him­ins og jarðar væri kannski rétta lýs­ingin. Um það bil átta þús­und manns sem ann­ast inn­kaup fyrir heild­sala og fyr­ir­tæki um víða ver­öld búa að stað­aldri í borg­inni. Á áður­nefndum mark­aði eru milli 50 og 60 þús­und heild­sölur. Vöru­teg­und­irnar, fyrst og fremst alls kyns smávarn­ingur, skipta hund­ruðum þús­unda og dag­lega koma að minnsta kosti 50 þús­und manns, sem ann­ast inn­kaup, á heild­sölu­mark­að­inn. Í stórri skemmu, sem er hluti mark­að­ar­ins eru ein­göngu seldir sokkar, ítalskur blaða­maður sem fór í sokka­skemm­una fékk þær upp­lýs­ingar að þar væru seldir um það bil þrír millj­arðar sokkap­ara á hverju ári. Í annarri stórri skemmu eru ein­göngu seld gervi­blóm, annað er í þessum dúr.

Heimsins lengsta járnbraut

Það er ekki nóg að selja vör­urnar, það þarf líka að koma þeim á áfanga­staði sem eru ekki bein­línis í næsta nágrenni Yiwu. En Kín­verjar hafa líka hugsað fyrir þessu. Þeir vita vel að sjó­leiðin, til dæmis til Evrópu er alltof tíma­frek, tekur allt að sex vikum. Þess­vegna hefur verið lögð járn­braut frá Yiwu til Madrídar á Spáni. Járn­brautin er sú lengsta í heimi, rúm­lega 10 þús­und kíló­metrar. Lestin fer um sjö lönd og ferðin tekur sam­tals þrjár vikur. Þessi flutn­ings­máti er sagður ódýr­ari en ef flutt væri með skipi, fyrir utan tíma­sparn­að­inn er það líka mikið hag­ræði að geta losað frakt á leið­inni. Til baka frá Evrópu flytur lestin ýmis konar varn­ing en kaup Kínverja á margs konar varn­ingi frá Evrópu, ekki síst mat­vörum hefur auk­ist mikið á allra síð­ustu árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár