Lilja rýfur þögnina og segir áfrýjunina byggja á lögfræðiálitunum

Ákvörðun Lilju Alfreðs­dóttur um að áfrýja nið­ur­stöðu í máli sínu gegn Hafdísi Helgu Ólafs­dóttur til Lands­réttar byggir á því sem fram kemur í lög­fræði­á­litum sem Lilja afl­aði sér í sumar, áður en ákveðið var að sækja málið fyrir dóm­stólum.

Lilja Alfreðsdóttir hafði ekkert tjáð sig um málið frá því dómur Héraðsdóms Reykjavíkur lá fyrir og var búin að gefa það út að hún ætlaði ekki að gera það.
Lilja Alfreðs­dóttir hafði ekk­ert tjáð sig um málið frá því dómur Hér­aðs­dóms Reykja­víkur lá fyrir og var búin að gefa það út að hún ætl­aði ekki að gera það. Mynd: Bára Huld Beck

Lilja Alfreðs­dóttir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra tjáði sig í fyrsta sinn um nið­ur­stöðu Hér­aðs­dóms Reykja­víkur í máli sínu gegn Hafdísi Helgu Ólafs­dóttur, skrif­stofu­stjóra í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu, er hún gekk út af rík­is­stjórn­ar­fundi í dag.

Fyrir utan ráð­herra­bú­stað­inn við Tjarn­ar­götu greip frétta­maður Stöðvar 2 og Vísis hana í við­tal. Lilja sagði að í þeim lög­fræði­á­litum sem hún hefði aflað sér áður en hún tók þá ákvörðun að fara með málið fyrir dóm í sumar hefði komið fram að kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála hefði ekki rök­stutt með full­nægj­andi hætti hvernig kær­anda var mis­munað á grund­velli kyn­ferðis.[links]

„Þess vegna tók ég þessa ákvörðun,“ sagði Lilja og bætti því við að efn­is­lega byggði dómur Hér­aðs­dóms Reykja­víkur á úrskurði kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála. „Ég skoð­aði það mjög gaum­gæfi­lega á sínum tíma hvað ætti að gera, leit­aði til sér­fræð­inga á svið­inu og þetta varð nið­ur­staðan,“ sagði Lilja í sam­tali við frétta­mann Vísis.

Dómur Hér­aðs­dóms Reykja­víkur var kveð­inn upp kl. 11:30 á föstu­dag­inn. Lilja veitti fjöl­miðlum ekki við­töl þann dag­inn. Klukkan 18:13 á föstu­dag birt­ist frétt á vef RÚV um Lilja hefði tekið ákvörðun um að áfrýja mál­inu til Lands­réttar. Þar sagði að ráð­herra hefði ákveðið að veita ekki nein við­töl um málið á meðan því ferli stæði, en búast má við því að áfrýj­un­ar­ferlið í Lands­rétti taki marga mán­uði.

Lilja segir að ákvörð­unin um að áfrýja nið­ur­stöð­unni hafi verið ígrunduð.

[adspot]

„Við vorum búin að skoða hana mjög vel, ég var búin að eiga fund með settum rík­is­lög­manni. Þetta er auð­vitað ekki létt­væg ákvörðun, svo ég taki það fram. Hins vegar var það svo að ég var búin að fá þessi álit á sínum tíma og þannig er þessi ákvörðun tekin,“ sagði Lilja Alfreðs­dóttir, við Vísi.

Lögfræðiálitin eru leyndarmál

Kjarninn reyndi að fá lög­fræði­á­litin sem þessi afstaða Lilju byggir á afhent frá mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu í sumar, um leið og ljóst varð að málið stefndi fyrir dóm­stóla. Þeirri beiðni var synjað.

Úrskurð­ar­nefnd upp­lýs­inga­mála stað­festi synjun ráðu­neyt­is­ins á gagna­beiðni Kjarn­ans í lok sum­ars, en nið­ur­staðan var sú að bréfa­skipti hins opin­bera við sér­fróða aðila í tengslum við rétt­ará­grein­ing eða til afnota í dóms­máli eða við athugun á því hvort slíkt mál skuli höfðað skuli und­an­þegin upp­lýs­inga­lög­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár