Obama ætlar að fara framhjá þinginu og herða byssulöggjöfina

Barack Obama Banda­ríkja­for­seti ætlar að grípa til aðgerða til að stemma stigu við byssu­of­beldi í land­inu. Hann mun gera þetta fram­hjá Banda­ríkja­þingi, og segir að það sé vegna þess að þingið hefur ekki viljað taka á því vax­andi vanda­máli sem byssu­of­beldi sé.

Obama til­kynnti þetta í nýársávarpi sínu, og sagð­ist ætla að funda með dóms­mála­ráð­herr­anum Lorettu Lynch á mánu­dag til að ræða kost­ina í stöð­unni. Hann hefði óskað eftir því við starfs­fólk sitt í Hvíta hús­inu fyrir nokkrum mán­uðum að skoðað yrði hvaða aðgerða for­set­inn gæti gripið til. „Vegna þess að ég fæ of mörg bréf frá for­eldrum, og kenn­urum, og börnum, til þess að sitja hjá og gera ekk­ert.“ Hann sagð­ist einnig fá bréf frá ábyrgum byssu­eig­endum, sem væru sam­mála honum um það að banda­ríska stjórn­ar­skráin veiti almenn­ingi rétt­inn til vopna­burðar, en að hægt sé að vernda þann rétt og á sams tíma koma í veg fyrir að fáir og hættu­legir ein­stak­lingar geti valdið miklum skaða.

Washington Post greinir frá því að meðal þess sem for­set­inn hygg­ist gera séu víð­tæk­ari bak­grunns­skoð­anir, en að pakk­inn sem ráð­ist verður í sé ekki til­bú­inn.

Þetta er síð­asta ár Obama í emb­ætti for­seta Banda­ríkj­anna, en nýr for­seti verður kjör­inn í nóv­em­ber. Obama mun láta af völdum 20. jan­úar árið 2017.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár