Hreyfingarleysi kostar átta þúsund milljarða á ári

Heil­brigð­is­vanda­mál sem verða til vegna hreyf­ing­ar­leysis kosta heim­inn að minnsta kosta 67,5 millj­arða Banda­ríkja­dala á ári, eða sem sam­svarar rúm­lega átta þús­und millj­örðum íslenskra króna.

Þetta er nið­ur­staða nýrrar rann­sóknar sem birt­ist í hinu virta Lancet lækna­tíma­riti í gær. Tíma­ritið gefur nú út sér­staka greina­röð um hreyf­ingu og hreyf­ing­ar­leysi til þess meðal ann­ars að hvetja ráða­menn til þess að gera gang­skör í hreyf­ingu. Án mik­illa breyt­inga munu mark­mið Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar um 10 pró­senta minnkun hreyf­ing­ar­leysis fyrir árið 2025 ekki ganga eftir.

Rann­sóknin á kostn­aði heilsu­far­s­vanda­mál­anna byggir á gögnum frá 142 ríkjum sem hýsa 93% allrar heims­byggð­ar­innar. Upphæðin, 67,5 millj­arðar dala, átti við um árið 2013. Kostn­að­ur­inn skipt­ist þannig að 53,8 millj­arðar fóru í heil­brigð­is­þjón­ustu og 13,7 millj­arðar komu til vegna lélegri fram­leiðni.

Rann­sak­end­urnir segja hins vegar að upp­hæðin sé lík­lega van­metin, þar sem aðeins var skoð­aður kostn­aður við fimm sjúk­dóma, hjarta- og æða­sjúk­dóma, syk­ur­sýki 2, brjósta- og ristil­krabba­mein. Þetta eru því lík­lega mjög hóf­legar áætl­anir að mati rann­sak­enda.

Þetta er í fyrsta skipti sem reynt er að meta kostn­að­inn við far­aldur hreyf­ing­ar­leysis, en hreyf­ing­ar­leysi er talið tengj­ast fimm millj­ónum dauðs­falla með beinum hætti á hverju ári.

Klukkutími á dag fyrir kyrrsetufólk

Fólk sem vinnur kyrr­setu­störf og situr við í átta klukku­stundir á dag getur jafnað út slæm áhrif þess á heils­una með klukku­stundar hreyf­ingu á dag, sam­kvæmt annarri rann­sókn í greina­röð Lancet, sem byggði á gögnum úr sextán rann­sóknum á um milljón ein­stak­lingum.

Samkvæmt Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­inni á fólk að hreyfa sig í 150 mín­útur á viku en nýja rann­sóknin bendir til þess að fyrir marga sé það ekki nóg.

„Þú þarft ekki að stunda íþróttir, þú þarft ekki að fara í rækt­inga. Það er í lagi að ganga rösk­lega, jafn­vel á morgn­anna, í hádeg­inu, eftir kvöld­mat. Þú getur skipt þessu upp yfir dag­inn, en þú verður að gera þetta í minnst eina klukku­stund,“ segir pró­fess­or­inn Ulf Ekelund, sem leiddi rann­sókn­ina, við Guardian. Hann við­ur­kenndi að oft væri þetta erfitt fyrir fólk. „Það er ekki auð­velt að stunda hreyf­ingu í klukku­tíma á dag en... með­al­sjón­varps­á­horf full­orð­inna í Bret­landi í dag eru þrjár klukku­stundir og sex mín­útur eða eitt­hvað slíkt, yfir þrír klukku­tímar. Ég veit ekki hvort það er til of mik­ils ætl­ast að aðeins hluti þess­ara þriggja klukku­tíma fari í lík­am­lega hreyf­ingu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár