Bygging á Alþingisreit alfarið á forræði þingsins

Jólakort forsætisráðherra.
Jólakort for­sæt­is­ráð­herra.

Ákvörðun um nýbygg­ingar á Alþing­is­reitnum er á for­ræði Alþingis en ekki for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins eða rík­is­stjórn­ar­innar. Það er for­sætis­nefnd sem hefur tekið ákvarð­anir um þessi mál fyrir hönd þings­ins. Þetta stað­festir Einar K. Guð­finns­son, for­seti Alþingis, í sam­tali við Kjarnann.

Nefndin hefur þegar tekið fyrstu skrefin í átt að bygg­ingu skrif­stofu­bygg­ingar á Alþing­is­reitnum svo­kall­aða. Það er gert með því að láta vinna frum­at­hugun vegna fyr­ir­hug­aðrar bygg­ingar í sam­vinnu við Fram­kvæmda­sýslu rík­is­ins. Halldóra Víf­ils­dóttir, for­stjóri Fram­kvæmda­sýslu rík­is­ins, stað­festir einnig í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans að slík frum­at­hugun sé hafin. 

Í frum­at­hug­un­inni er ekk­ert kveðið á um að taka skuli til­lit til teikn­inga Guðjóns Sam­ú­els­sonar, eins og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra hefur ítrekað lýst yfir að sé hans vilji. Í fjár­lögum fyrir næsta ár er tekið fram að „við und­ir­bún­ing fram­kvæmda skal hafa hlið­sjón af þeim áformum sem uppi voru um upp­bygg­ingu á Alþing­is­r­eignum full­veld­is­árið 1918, sbr. fyr­ir­liggj­andi teikn­ingar Guðjóns Sam­ú­els­sonar fyrr­ver­andi húsa­meist­ara rík­is­ins.“

Skýrt ferli í opinberum framkvæmdum - forsætisráðuneyti kemur hvergi nærri

Sérstök lög gilda um skipan opin­berra fram­kvæmda á Íslandi, og nýbygg­ing við Alþingi fellur undir þau lög. Samkvæmt þessum lögum „skipt­ast opin­berar fram­kvæmdir í fjóra skýrt afmark­aða áfanga sem þarf að fram­kvæma og ljúka og leggja að því búnu fyrir sam­starfs­nefnd um opin­berar fram­kvæmdir (SOF) og fjár­mála­ráðu­neyti til sam­þykktar áður en heim­ilt er að hefja und­ir­bún­ing næsta áfanga,“ segir Halldóra í svari til Kjarnans um ferlið sem á sér stað.

Frum­at­hug­unin sem nú á sér stað er fyrsti áfang­inn. Svo kemur áætl­ana­gerð, verk­leg fram­kvæmd og skila­mat.

For­sæt­is­ráðu­neytið kemur hvergi nærri þessu ferli, heldur er það fjár­mála­ráðu­neytið sem fer með fram­kvæmd laga og yfir­stjórn opin­berra fram­kvæmda. Fjár­mála­ráðu­neyti til ráð­gjafar er svo fyrr­nefnd sam­starfs­nefnd um opin­berar fram­kvæmdir, en í henni sitja for­maður fjár­laga­nefndar Alþingis eða full­trúi til­nefndur af fjár­laga­nefnd, for­stjóri Fram­kvæmda­sýslu rík­is­ins og ráðu­neyt­is­stjóri í fjár­mála­ráðu­neyt­inu.

Ekkert verið rætt um að skilyrða við Guðjón Samúelsson

Sem fyrr segir kemur ekk­ert fram um það í frum­at­hug­un­ar­vinn­unni að taka eigi til­lit til teikn­inga Guðjóns Sam­ú­els­sonar. Einar segir í sam­tali við Kjarnann að slíkt myndi ekki koma til athug­unar fyrr en á seinni stigum máls­ins.

Næsta skref að lok­inni frum­at­hugun væri að ráð­ast í hönn­un­ar­sam­keppni, og Einar segir að í allri vinnu for­sætis­nefndar hafi verið gert ráð fyrir því að slík keppni yrði haldin. Spurður um það hvort það hafi komið til álita að skil­yrða slíka keppni með ein­hverjum hætti þannig að taka þyrfti til­lit til teikn­inga Guðjóns segir Einar að for­sætis­nefnd hafi ekki rætt það.

Stein­grímur J. Sig­fús­son, þing­maður VG og full­trúi flokks­ins í for­sætis­nefnd, sagði fyrir jólin að hann vissi ekki betur en að í for­sætis­nefnd sé „full­komin sam­staða“ um að hafa að engu skil­yrð­ing­una um Guðjón Sam­ú­els­son, sem sett var inn í fjár­laga­frum­varpið við þriðju umræðu.

„Það er bara alger­lega á hreinu að í for­sætis­nefnd hefur aldrei verið einu sinni til umræðu að skil­yrða þá hönn­un­ar­sam­keppni við eitt­hvað af þessu tagi enda ekki til siðs. Þar verða venju­legir skil­málar á ferð um að gæta að umhverf­inu og aðstæðum á bygg­ing­ar­reitnum og annað ekki. Það verður ekki talað um næstum 100 ára gamlar skissur frá Guðjóni Sam­ú­els­syni í því sam­bandi, með fullri virð­ingu þó fyrir honum, enda voru þau áform barn síns tíma. Það hús átti að rísa á allt öðrum stað og til­heyrir næstum að segja annarri öld og bók­staf­lega líka,“ sagði hann. 

„Skemmtilegt innlegg“ segir Bjarni, en ekki endanleg niðurstaða

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra var einnig spurður um „áhuga­mál Sig­mundar Davíðs“ í þætt­inum Sprengisandi á Bylgj­unni fyrir jólin, og um bygg­ingar á lóð þings­ins. „Bygging Alþingis er á for­ræði þings­ins og það á margt eftir að ger­ast áður en það hús rís. Eigum við ekki að segja að þetta sé skemmti­legt inn­legg í þá umræðu, að hafa þetta með til hlið­sjónar hvort þessar teikn­ingar geti orðið að gagni,“ sagði hann um málið. Hann sagði aðal­málið að reisa nýja bygg­ingu. For­sæt­is­ráð­herra hefði komið með athygl­is­vert inn­legg og frum­kvæði með teikn­ingu Guðjóns, en „það hefur ekki verið gefið grænt ljós á að það verði end­an­leg nið­ur­staða.“

Tilefnið 100 ára afmæli fullveldis

Sú hug­mynd að nota 100 ára gamlar teikn­ingar Guðjóns Sam­ú­els­sonar við bygg­ingu skrif­stofu­hús­næðis fyrir Alþingi var fyrst viðruð opin­ber­lega af Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni í vor. Þann 1. apríl greindi Frétta­blaðið frá því að rík­is­stjórnin hefði afgreitt þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að byggð yrði við­bygg­ing við Alþingi eftir hönnun Guðjóns að til­lögu for­sæt­is­ráð­herr­ans. Tilefnið var hvernig minn­ast eigi ald­ar­af­mælis full­veldis Íslands, sem verður árið 2018.

Málið vakti strax gríð­ar­lega athygli og héldu margir að um apr­ílgabb Frétta­blaðs­ins væri að ræða. Svo var ekki.

Þings­á­lykt­un­ar­til­lagan er þó ekki enn komin inn í þingið. Í fjár­laga­frum­varp­inu sem Bjarni Bene­dikts­son lagði fram í haust var gert ráð fyrir 100 millj­óna króna fram­lagi í stofn­kostnað vegna fram­kvæmda á Alþing­is­reit. Fyrir þriðju umræðu kom inn breyt­ing­ar­til­laga frá meiri­hluta fjár­laga­nefndar þar sem lagt var til að fram­lagið yrði 75 millj­ónir og að teikn­ingar Guðjóns yrðu hafðar til hlið­sjónar. Fram að því hafði ekki verið rætt um slíka skil­yrð­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár