Sextán sæmdir fálkaorðunni á Bessastöðum

Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, sæmdi 16 Íslend­inga heið­urs­merki hinnar íslensku fálka­orðu á Bessa­stöðum í dag.

Forseti Íslands ásamt þeim sem hlutu fálkaorðuna 2019.
Forseti Íslands ásamt þeim sem hlutu fálka­orð­una 2019. Mynd: Skjáskot/www.forseti.is

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son, sæmdi sextán Íslend­inga heið­urs­merki hinnar íslensku fálka­orðu við hátíð­lega athöfn á Bessa­stöðum í dag, 17. júní. Meðal þeirra voru Bogi Ágústs­son frétta­maður og for­maður Norræna félags­ins fyrir störf á vett­vangi fjöl­miðl­unar og nor­rænnar sam­vinnu, Guðrún Ögmunds­dóttir fyrir fram­lag í þágu mann­úðar og jafn­rétt­is­bar­áttu hinsegin fólks, Jakob Frímann Magn­ús­son fyrir störf á vett­vangi íslenskrar tón­listar og Halldóra Geir­harðs­dóttir fyrir fram­lag til íslenskrar leik­listar.

[adspot]

Þeir sem hlutu fálka­orð­una í dag voru:

  • Auðbjörg Brynja Bjarna­dóttir ljós­móðir og hjúkr­un­ar­stjóri, Kirkju­bæj­ar­klaustri, ridd­ara­kross fyrir fram­lag til heil­brigðis- og björg­un­ar­starfa í heima­byggð
  • Bára Gríms­dóttir tón­skáld og for­maður Kvæða­manna­fé­lags­ins Iðunnar, Reykja­vík, ridd­ara­kross fyrir varð­veislu og end­ur­nýjun á íslenskum tón­list­ar­arfi
  • Bogi Ágústs­son frétta­maður og for­maður Norræna félags­ins, Reykja­vík, ridd­ara­kross fyrir störf á vett­vangi fjöl­miðl­unar og nor­rænnar sam­vinnu
  • Guðrún Ögmunds­dóttir félags­ráð­gjafi og fyrr­ver­andi þing­kona, Reykja­vík, ridd­ara­kross fyrir fram­lag í þágu mann­úðar og jafn­rétt­is­bar­áttu hinsegin fólks
  • Halldóra Geir­harðs­dóttir leik­kona, Reykja­vík, ridd­ara­kross fyrir fram­lag til íslenskrar leik­listar
  • Helgi Árnason skóla­stjóri, Reykja­vík, ridd­ara­kross fyrir störf á vett­vangi skóla og skák­listar ung­menna
  • Hildur Krist­jáns­dóttir ljós­móðir og dós­ent við Háskóla Íslands, Reykja­vík, ridd­ara­kross fyrir störf í þágu ljós­mæðra og skjól­stæð­inga þeirra
  • Hjálmar Waag Árnason fyrr­ver­andi skóla­meist­ari, þing­maður og fram­kvæmda­stjóri Keilis, Reykja­nesbæ, ridd­ara­kross fyrir for­ystu á vett­vangi skóla­starfs og mennt­unar
  • Jakob Frímann Magn­ús­son tón­list­ar­maður, Reykja­vík, ridd­ara­kross fyrir störf á vett­vangi íslenskar tón­listar
  • Dr. Janus Guð­laugs­son íþrótta- og heilsu­fræð­ingur, Álfta­nesi, ridd­ara­kross fyrir fram­lag til efl­ingar heil­brigðis og íþrótta eldri borg­ara
  • Jóhanna Erla Pálma­dóttir verk­efna­stjóri og fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Textíl­set­urs Íslands, Blöndu­ósi, ridd­ara­kross fyrir störf í þágu safna og menn­ingar í heima­byggð
  • Jón Ólafsson fyrr­ver­andi pró­fessor, Kópavogi, ridd­ara­kross fyrir rann­sóknir, fræði­störf og kennslu á sviði haf­fræði
  • Skúli Eggert Þórð­ar­son rík­is­end­ur­skoð­andi, Reykja­vík, ridd­ara­kross fyrir nýj­ungar í stjórnun og mannauðs­málum hjá hinu opin­bera
  • Tatjana Latinovic deild­ar­stjóri, for­maður Kven­rétt­inda­fé­lags Íslands og for­maður Inn­flytj­enda­ráðs, Reykja­vík, ridd­ara­kross fyrir fram­lag til atvinnu­lífs, jafn­réttis og mál­efna inn­flytj­enda
  • Þórður Guð­laugs­son vél­stjóri, Kópavogi, ridd­ara­kross fyrir lífs­starf á vett­vangi sjáv­ar­út­vegs og björg­un­ara­frek í mann­skaða­veðri
  • Þórunn Jarla Valdi­mars­dóttir sagn­fræð­ingur og rit­höf­undur, Reykja­vík, ridd­ara­kross fyrir fram­lag til sagn­fræða og íslenskra bók­mennta
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár