Nýlega var birt grein í BMJ Oncology eftir Zhao og meðhöfunda sem lýsti á heimsvísu 80% aukningu á nýgengi krabbameina hjá einstaklingum á aldrinum 15 til 49 ára á árunum 1990 til 2019. Þegar nánar er rýnt í greinina kemur fram að eins mikla aukningu í nýgengi krabbameina er ekki að sjá á Norðurlöndunum.
Með hjálp NORDCAN gagnagrunnsins sem er opinn öllum og birtir tölfræði um krabbamein á Norðurlöndunum, höfum við reiknað út nýgengi krabbameina á Íslandi í aldurshópnum 15 til 49 ára og borið saman við hin Norðurlöndin. Þegar skoðað er nýgengi allra greindra krabbameina í aldurshópnum 15 til 49 ára á árunum 1990-2021 (Mynd 1) sést að nýgengi krabbameina er algengara hjá konum en körlum í þessum aldurshópi, sem skýrist aðallega af því hversu margar konur greinast árlega með brjóstakrabbamein.
Fimm algengustu krabbamein hjá þeim 132 konum á aldrinum 15 til 49 ára sem greindust árlega á Íslandi (meðaltal áranna 2018 til 2022) eru brjóstakrabbamein, 50 talsins, ristil- og endaþarmskrabbamein, 10 talsins, krabbamein í heila og miðtaugakerfi, 9 talsins, leghálskrabbamein, 9 talsins og sortuæxli í húð, 8 talsins.
Til samanburðar greindist árlega að meðaltali 71 karlmaður á aldrinum 15 til 49 ára með krabbamein á Íslandi og voru algengustu meinin eistnakrabbamein, 10 talsins, ristil- og endaþarmskrabbamein, 8 talsins, krabbamein í heila og miðtaugakerfi, 8 talsins, eitilfrumuæxli (Non-Hodgkins), 5 talsins, nýrnakrabbamein, 4 talsins og sortuæxli í húð, 4 talsins.
Við sjáum einnig á myndinni að aukning varð í aldursstöðluðu nýgengi krabbameina hjá konum á Íslandi á árunum 1990 til 2021 sem nam 36% en hjá karlmönnum hefur orðið um 5% lækkun.
Aukningin í nýgengi hjá konum sést aðallega á árunum fram til aldamóta en hefur lítið breyst eftir það. Svipar það mjög til þeirrar þróunar á nýgengi sem orðið hefur á Norðurlöndunum öllum en er mun lægri en það sem Zhao og meðhöfundar lýstu á heimsvísu. Ein ástæða minni aukningar er að dregið hefur mjög úr reykingum á Norðurlöndunum og þar með hætti nýgengi reykingatengdra meina að aukast sem sést vel hjá yngra fólki. Ekki hefur verið sama góða þróun á þessu sviði í öllum löndum heims.

Ef skoðuð er dánartíðni fyrir sama aldurshóp og greiningartímabil (Mynd 1) sjáum við lækkun í dánartíðni krabbameina hjá konum á Íslandi, sem var 41 tilfelli á hverja 100.000 íbúa (Norrænn aldursstaðall og sléttun milli ára) árið 1990 en 23 tilfelli á hverja 100.000 íbúa árið 2021. Dánartíðni hefur því lækkað um 44%. Hjá karlmönnum er lækkun á dánartíðni um 51%. Þessi þróun er mjög svipuð og á Norðurlöndunum í heild.
Samantekið er ekki að sjá að neinn faraldur hafi orðið í aukningu krabbameina hjá ungu fólki síðustu þrjá áratugina á Norðurlöndunum að Íslandi meðtöldu sem er ólíkt því sem lýst hefur verið á heimsvísu. Á þessum tíma hefur fjöldi krabbameinstilfella aukist mikið á Íslandi en það skýrist fyrst og fremst af fjölgun einstaklinga í eldri aldurshópum þar sem krabbameinsáhætta er mun meiri.
Lækkandi dánartíðni gefur til kynna framfarir í greiningu og meðferð krabbameina á Íslandi.
Mikilvægt er að hvetja áfram til heilsusamlegs lífernis sem minnkar krabbameinsáhættu og að auka þátttöku kvenna í skimun sem greinir brjósta- og leghálskrabbamein á lægri og læknanlegri stigum.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.














































Góð grein sem svarar þessu. Mætti bara nefna að fyrir utan reykingar er áfengisneyðsla sem og mataræðið (kjötneyðsla) ásamt hreyfingarleysi mikill þáttur í þróun krabbameins.