Munur á afstöðu til umræðu um #Metoo eftir því hvaða stjórnmálaflokk fólk styður

Konur, ungt fólk og háskóla­mennt­aðir eru mun jákvæð­ari í garð umræð­unnar um #Metoo en karlar, eldra fólk og þeir sem hafa mest lokið grunn­skóla­prófi. Heilt yfir hefur jákvæðnin þó dreg­ist saman síðan 2018.

Hlutfall þeirra sem lands­manna sem telja að umræða um #Metoo-hreyf­ing­una sé jákvæð fyrir íslenskt sam­fé­lag hefur dreg­ist umtals­vert saman frá árinu 2018, þegar fyrsta bylgja hennar reið yfir landið. Þá sögð­ust 70,5 pró­sent aðspurðra telja hana jákvæða en í nýrri könnun Maskínu, sem fram­kvæmd var núna í jan­úar, mæld­ist það hlut­fall 60,4 pró­sent. Mest fjölgar í hópi þeirra sem hafa ekki afger­andi skoðun á umræð­unni en þeim sem telja hana nei­kvæða fjölgar úr 12,9 í 15,5 pró­sent.

Nokkuð afger­andi munur er á afstöðu eftir því hvaða stjórn­mála­flokk aðspurðir í könn­un­inni myndu kjósa ef kosið yrði í dag. Kjós­endur Mið­flokks­ins eru nei­kvæð­astir í garð umræð­unnar um #Metoo-hreyf­ing­una og ein­ungis 19,5 pró­sent þeirra telja hana jákvæða fyrir íslenskt sam­fé­lag. Kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks og Flokks fólks­ins skera sig einnig úr en rúm­lega 38 pró­sent þeirra telja umræðu um #Metoo-hreyf­ing­una jákvæða.

[adspot]Flestir vænt­an­legir kjós­endur Pírata (86,4 pró­sent) og Sam­fylk­ing­ar­innar (83,2 pró­sent) telja umræð­una jákvæða og kjós­endur Vinstri grænna (77,6 pró­sent), Sós­í­alista­flokks Íslands (72,5 pró­sent) og Við­reisnar (72,5 pró­sent) eru ekki langt undan. Kjós­endur Fram­sókn­ar­flokks­ins eru svo sér á báti á miðju vegar, en 54,8 pró­sent þeirra telja að umræðan um #Metoo-hreyf­ing­una sé jákvæð fyrir íslenskt sam­fé­lag.

Menntun virð­ist líka skipta umtals­verðu máli sem breyta þegar við­horf til #Metoo-hreyf­ing­ar­innar er skoðað. Þannig segj­ast 74,1 pró­sent allra svar­enda sem eru með háskóla­gráðu að þeir telji umræðu um hana jákvæða fyrir íslenskt sam­fé­lag en ein­ungis 48,3 pró­sent þeirra sem eru með grunn­skóla­próf sem æðstu menntun. Á meðal þeirra sem hafa lokið fram­halds­skóla­prófi eða iðn­menntun mælist jákvæðnin í garð #Metoo-umræð­unnar 57,4 pró­sent.

Nokkuð afger­andi munur er á afstöðu kynj­anna til máls­ins, en 54,3 pró­sent karla segj­ast telja umræð­una jákvæða fyrir íslenskt sam­fé­lag á meðan að 66,9 pró­sent kvenna eru á þeirri skoðun.

Munurinn á afstöðu kyn­slóða er einnig nokkuð skýr, sam­kvæmt nið­ur­stöðu könn­unar Maskínu. Þannig telja 71,9 pró­sent aðspurðra í ald­urs­hópnum 18 til 29 ára að umræðan um #Metoo-hreyf­ing­una sé jákvæð fyrir íslenskt sam­fé­lag en 51 pró­sent þeirra sem eru 60 ára og eldri.

Könnunin fór fram dag­ana 14. til 19. jan­úar 2022 og voru svar­endur 815 tals­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár