Óttast óeirðir á kosningadag vegna fullyrðinga um kosningasvindl

Stjórn­völd og leið­togar innan bæði Demókra­ta­flokks­ins og Repúblikana­flokks­ins hafa áhyggjur af því að óeirðir og jafn­vel ofbeldi brjót­ist út á kjör­dag í Banda­ríkj­unum, vegna ummæla Donalds Trump, for­seta­fram­bjóð­anda Repúblik­ana, um að svindlað verði í kosn­ing­unum. Einnig er ótt­ast að ummælin hafi áhrif til lengri tíma á trú fólks á kosn­ing­unum.

Þetta kemur fram í frétt Washington Post. Donald Trump hefur í síauknum mæli full­yrt að ein­hvers konar kosn­inga­svindl sé eða verði stundað í kosn­ing­unum í byrjun nóv­em­ber, og hefur hvatt stuðn­ings­menn sína til þess að fylgj­ast vel með kjör­stöðum í borgum eins of Fíla­delfíu. Þetta gerði hann síð­ast í gær. Þetta ótt­ast ráð­gjafar Hillary Clinton að muni þýða að kjós­endum verði ógnað og það gæti haft áhrif sér­stak­lega á kjós­endur hennar sem til­heyra minni­hluta­hópum. Því hafa her­búðir Clinton brugðið á það ráð að fá til liðs við sig hund­ruð lög­fræð­inga til þess að fylgj­ast með kjör­stöðum og vernda rétt fólks til að kjósa.

„Ég hef miklar áhyggjur af þess­ari orð­ræðu,“ segir fyrrum borg­ar­stjóri Fíla­delfíu og stuðn­ings­maður Clinton, Michael Nutter, við Washington Post. Það sem Trump sé að reyna að gera með ótrú­legum og röngum stað­hæf­ingum um kosn­inga­svindl sé að minnka áhuga fólks á kosn­ing­unum og draga úr þátt­töku. „Hann var ekki að kvarta yfir þessu öllu saman í for­kosn­ingum Repúblik­ana, þegar hann var að vinna. Þá fannst honum kerfið virka full­kom­lega.“

Hátt­settir Repúblikanar hafa einnig tjáð sig um það að full­yrð­ingar Trump um kosn­inga­svindl séu ekki byggðar á neinum rökum. Framkoma hans getur enda haft áhrif á afdrif Repúblik­ana í þing­inu, þar sem þeir eru með meiri­hluta í báðum deildum. Repúblikanar hafa áhyggjur af því að árásir hans geti líka valdið efa­semdum um sigra sem Repúblikanar muni vinna í kosn­ing­unum.

Árásir hans á kosn­inga­kerfið í Banda­ríkj­unum eru af mörgum talin við­brögð hans við því að fylgi hans hefur minnkað og hann hefur átt erfitt upp­dráttar und­an­farnar vikur. Hann neitar hins vegar öllum ásök­unum um kyn­ferð­is­lega áreitni og kyn­ferð­is­brot, sem að minnsta kosti níu konur hafa sakað hann um, og segir ásak­an­irnar hluta af sam­sær­inu gegn sér.

„Auðvitað er kosn­inga­svindl á stórum skala í gangi á og fyrir kjör­dag. Af hverju neita leið­togar Repúblik­ana því sem er að eiga sér stað? Svo barna­legt!“ skrif­aði Trump á Twitter-síðu sína í gær, en þar hefur hann látið fjöld­ann allan af ummælum falla und­an­farið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár