Fylgi stjórnmálaflokkanna fór á flakk eftir Kastljósþáttinn um Panamaskjölin

Píratar og Sjá­fl­stæð­is­flokkur eru orðnir nær jafn stórir sam­kvæmt kosn­inga­spánni. Fylgi stjórn­mála­flokka fór á flakk strax eftir fyrstu umfjöllun um Panama­skjölin í Kast­ljósi 3. apríl.

Nafn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, þáverandi forsætisráðherra, var að finna í Panamaskjölunum. Umfjöllun um gögnin virðist hafa sett fylgi stjórnmálaflokka á fleygiferð.
Nafn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, var að finna í Panama­skjöl­unum. Umfjöllun um gögnin virð­ist hafa sett fylgi stjórn­mála­flokka á fleygi­ferð. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Píratar eru enn stærri en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sam­kvæmt nýj­ustu kosn­inga­spánni í aðdrag­anda Alþing­is­kosn­inga í haust. Fylgi Pírata er nú 29,3 pró­sent en fygli sjálf­stæð­is­flokks­ins mælist 29,0 pró­sent. Flokk­arnir eru því orðnir nán­ast jafn stórir en síðan um ára­mót hafa Píratar notið lang mest fylgis í kosn­inga­spánni. Kjarninn mun, í sam­starfi við Baldur Héð­ins­son stærð­fræð­ing, birta kosn­inga­spá í aðdrag­anda kosn­ing­anna.

Kosn­inga­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar er nú gerð í annað sinn, fyrir Alþing­is­kosn­ingar sem boð­aðar hafa verið í haust. Baldur hefur útbúið spálíkan sem vigtar kann­anir sem gerðar eru á fylgi stjórn­mála­flokka eftir áreið­an­leika. Sama líkan var notað fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar árið 2014 fyrir fylgi fram­boða í Reykja­vík og nið­ur­staðan birt á vef Kjarnans og á vefnum kosn­inga­spá.is. Í nýj­ustu kosn­inga­spánni eru nýj­ustu kann­an­irnar vegnar: Skoð­ana­kann­anir Frétta­blaðs­ins 9. maí og 2. til 3. maí, Þjóð­ar­púls Gallup 14. til 28. apríl og skoð­ana­könnun MMR 22. til 26. apríl.

Fylgi stjórn­mála­flokka til Alþingis fór á tals­vert flakk eftir Kast­ljós­þátt­inn 3. apríl síð­ast­lið­inn þegar sagt var frá tengslum Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, við aflands­fé­lag á Bresku jóm­frú­areyj­unum. Það var fyrsta umfjöll­unin sem unnin var úr Panama­skjöl­unum svoköll­uðu sem hafði verið lekið til fjöl­miðla frá panömsku lög­fræði­stof­unni Mossack Fonseca. Auk Sig­mundar Davíðs var fjallað um tengsl Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála­ráð­herra og for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og Ólafar Nordal, inn­an­rík­is­ráð­herra og vara­for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, við aflands­fé­lög.

Eins og sjá má á mynd­rit­inu hér að neðan nýtur Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn stuðn­ings 9,0 pró­sent Íslend­inga sam­kvæmt kosn­inga­spánni, öllu minna en Vinstri grænir sem hafa 16,9 pró­sent fylgi. Þar á eftir kemur Sam­fylk­ingin með 8,4 pró­sent, Björt fram­tíð með 4,0 pró­sent og Viðreisn, sem var fyrst mæld í byrjun apríl, fengi 3,0 pró­sent atkvæða ef gengið yrði til kosn­inga nú. Önnur fram­boð fengju 0,4 pró­sent. Aðeins þrír flokkar bæta við sig fylgi milli kosn­inga­spár­innar 3. maí og þeirrar sem gerð var í morgun; Píratar, Sjálf­stæð­is­flokkur og Vinstri græn. Aðrir tapa fylgi eða standa í stað.

Fylgi stjórn­mála­flokk­anna hafði verið nokkuð stöðugt frá ára­mótum og ekki miklar breyt­ingar að merkja fyrr en í fyrstu kosn­inga­spánni sem gerð var eftir umfjöll­un­ina um ráð­herrana. Samkvæmt kosn­inga­spánni sem gerð var úr fyr­ir­liggj­andi könn­unum 7. apríl má sjá að umfjöll­unin virð­ist hafa hreyft við kjós­endum. Strax má sjá merki þess að fylgi stjórn­ar­flokk­anna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks, minnkar en aðrir flokkar mæl­ast með meira fylgi eða standa í stað.

Þróunin und­an­far­inn mánuð hefur verið einkar áhuga­verð því fylgi Pírata minnk­aði um meira en tvö pró­sentu­stig í fyrsta sinn frá ára­mótum. Fylgið hefur svo haldið áfram að minnka og mælist nú 29,3 pró­sent miðað við 36,7 pró­sent 7. apríl. Aðra sögu má hins vegar segja um stuðn­ing við Sjálf­stæð­is­flokk­inn sem hefur vaxið stöðugt síðan 7. apríl. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hlyti 29,0 pró­sent atkvæða ef gengið yrði til kosn­inga nú miðað við 22,0 pró­sent 7. apríl.

Vinstri græn uxu í öllum kosn­inga­spám sem gerðar voru í apríl eða þangað til í þeirri næst nýj­ustu. Í þeirri nýj­ustu eykst fylgið á ný. Flokk­ur­inn stendur mun betur nú en hann gerði 1. apríl, þegar hann mæld­ist með 10,4 pró­sent fylgi. Hér verður einnig að nefna Bjarta fram­tíð sem óx um jafn mörg pró­sentu­stig og Vinstri græn milli þess sem kosn­inga­spáin var gerð 1. apríl og 7. apríl. Síðan hefur fylgi þeirra dalað. Áhrif Panama­skjal­anna á fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar virð­ast hafa verið nei­kvæð.

Sigurður Ingi Jóhanns­son, vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, tók við sem for­sæt­is­ráð­herra 7. apríl síð­ast­lið­inn. Fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins hafði vaxið um tæpt pró­sentu­stig í kosn­inga­spám sem gerðar voru í apríl og í byrjun maí. Fylgið er nú, sam­kvæmt nýj­ustu kosn­inga­spánni, orðið minna en það var 7. apríl þegar Sigurður Ingi tók við lykla­völdum í Stjórn­ar­ráð­inu.

Hvað er Kosningaspáin?

Kosn­inga­spálíkan Baldurs Héð­ins­sonar miðar að því að setja upp­lýs­ing­arnar sem skoð­ana­kann­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­inga. Kjarninn birti Kosn­inga­spá Baldurs fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar og reynd­ist sú til­raun vel. Á vefnum kosn­inga­spá.is má lesa nið­ur­stöður þeirrar spár og hvernig vægi kann­ana var í takt við frá­vik kann­ana miðað við kosn­inga­úr­slitin.

Áreið­an­leiki könn­un­ar­að­ila er reikn­aður út frá sögu­legum skoð­ana­könn­unum og kosn­inga­úr­slitum. Einnig hefur það vægi hversu langt er síðan könn­unin var fram­kvæmd og svo hversu margir svara í könn­un­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár