Enn hafa engin brúarlán verið veitt

Þann 12. maí hafði Seðla­bank­inn und­ir­ritað samn­inga við bank­ana fjóra um veit­ingu brú­ar­lána. Lánin eru ætluð smáum og með­al­stórum fyr­ir­tækjum sem orðið hafa fyrir tíma­bundnum rekstr­ar­vanda vegna heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru.

Arion banki, Íslandsbanki, Kvika og Landsbankinn hafa heimild til að veita brúarlán.
Arion banki, Íslands­banki, Kvika og Lands­bank­inn hafa heim­ild til að veita brú­ar­lán. Mynd: Samsett/Kjarninn

Enn hafa engin brú­ar­lán verið veitt til fyr­ir­tækja sem hafa orðið fyrir rekstr­ar­vanda vegna heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru. Þetta kemur fram í svörum bank­anna fjög­urra sem veita slík lán við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið fól Seðla­banka Íslands að ann­ast fram­kvæmd á ábyrgðum rík­is­sjóðs. Þann 12. maí til­kynnti Seðla­bank­inn að hann væri búinn að und­ir­rita samn­inga við Arion banka, Íslands­banka, Kviku og Lands­bank­ann um veit­ingu við­bót­ar­lána til fyr­ir­tækja, svo­kall­aðra brú­ar­lána.

Í samn­ingum Seðla­bank­ans við bank­ana er til­greind heild­ar­á­byrgð rík­is­sjóðs gagn­vart hverjum banka fyrir sig vegna úrræð­is­ins. Þannig nemur heild­ar­á­byrgð rík­is­sjóðs gagn­vart Lands­bank­anum 20 millj­örðum króna, 16 millj­örðum gagn­vart Íslands­banka, 10 millj­örðum gagn­vart Arion banka og 630 millj­ónum gagn­vart Kviku.

Á vef stjórn­ar­ráðs­ins segir að brú­ar­lánin séu einkum ætluð smáum og með­al­stórum fyr­ir­tækjum sem orðið hafa fyrir tíma­bundnum rekstr­ar­vanda vegna heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru. Rík­is­sjóður gengst í ábyrgð fyrir allt að 70 pró­sent af fjár­hæð lán­anna sem fyr­ir­tæki geta fengið. Heild­ar­á­byrgð rík­is­sjóðs getur numið allt að 50 millj­örðum vegna brú­ar­lána.

Nokkur skil­yrði eru sett fyrir veit­ingu lán­anna. Fyr­ir­tæki sem tekur slíkt lán má til að mynda ekki greiða arð eða kaupa eigin bréf á meðan rík­is­á­byrgðar nýtur við. Lán sem nýtur ábyrgðar getur hæst numið 1,2 millj­örðum króna.

Þá er gerð sú krafa að tekju­tap fyr­ir­tækis sé ófyr­ir­séð og megi rekja beint eða óbeint til heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru eða ráð­staf­ana sem far­aldr­inum tengj­ast. Tekju­tapið þarf að nema að lág­marki 40 pró­sent. Lán­veit­ingin tak­markast auk þess við fyr­ir­tæki þar sem launa­kostn­aður var að minnsta kosti 25 pró­sent af útgjöldum síð­asta árs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár