Mikill meirihluti Evrópubúa sammála Merkel í flóttamannamálum

Tæplega átta­tíu pró­sent Evr­ópu­búa vilja koma á kvóta­kerfi varð­andi mót­töku flótta­fólks rétt eins og Angela Merkel. Fram­kvæmda­stjóri Evr­ópu­sam­bands­ins segir að þýska­landskansl­ari muni end­ast lengur í emb­ætti en gagn­rýnendur hennar.

„Wir schaffen das“
„Wir schaffen das“ Angela Merkel, kansl­ari Þýska­lands, hefur staðið í ströngu síð­ustu mán­uði. Það vakti athygli þegar hún sagði „við getum þetta“ aðspurð hvernig ríkið myndi höndla að taka á móti svo mörgu flótta­fólki.

Mikill meiri­hluti Evr­ópu­búa styður við stefnu Angelu Merkel, kansl­ara Þýska­lands, í mál­efnum flótta­fólks. Þetta kemur fram í nýrri skoð­ana­könnun Ber­tels­mann stofn­un­ar­innar. Merkel hefur allt frá því síð­asta sumar barist fyrir því að koma á lög­bundnu kvóta­kerfi varð­andi mót­töku flótta­fólks, það er hversu marga flótta­menn hvert og eitt ríki Evr­ópu­sam­bands­ins eigi að taka á móti.

Þessar hug­myndir hennar eiga hins­vegar ekki upp á pall­borðið hjá rík­is­stjórnum ýmissa evr­ópu­ríkja. Til þessa hefur harð­asta and­staðan komið frá Póllandi, Ung­verja­landi, Tékk­landi og Slóvakíu en hægri popúl­ískar rík­is­stjórnir þess­ara landa vilja lítið með flótta­fólk hafa og leggja áherslu á að halda því utan landamæra sinna. Þá hefur umræða og umfjöllun verið á þá leið að sífellt færri styðji stefnu Merkel, að minnsta kosta á yfir­borð­inu.

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár