Líf Magneudóttir, sitjandi oddviti Vinstri grænna í Reykjavík og eini borgarfulltrúi flokksins sem stendur, varð í fyrsta sæti í forvali Vinstri grænna í Reykjavík í dag. Hún fékk alls 441 atkvæði í fyrsta sætið, eða 49 prósent greiddra atkvæða í það.
Tvær aðrar konur sóttust eftir fyrsta sætinu, Elín Björk Jónasdóttir veðurfræðingur og Elín Oddný Sigurðardóttir varaborgarfulltrúi. Elín Björk endaði í þriðja sæti í forvalinu en Elín Oddný varð ekki á meðal þriggja efstu, en kosning þeirra er bindandi.
Í öðru sæti varð Stefán Pálsson sagnfræðingur, sem hefur lengi starfað innan Vinstri grænna og er giftur þingmanni flokksins, Steinunni Þóru Árnadóttur.
Alls greiddu 897 atkvæði og kjörsókn var 30 prósent.
[adspot]Alls voru átta manns í framboði í forvalinu. Fyrir utan þær þrjár sem sóttust eftir fyrsta sætinu gáfu fimm kost á sér í annað eða 2.-3. sæti, þrír karlar og tvær konur. Auk Stefáns gaf Andrés Skúlason verkefnastjóri og fyrrverandi oddviti á Djúpavogi kost á sér í annað sætið. Eftir 2.-3. sætinu sóttust svo þau Elínrós Birta Jóns- og Valborgardóttir sjúkraliði, Bryngeir Arnar Bryngeirsson tómstunda- og félagsmálafræðingur og gönguleiðsögumaður og Íris Andrésdóttir grunnskólakennari.
Vinstri græn eiga einn borgarfulltrúa í dag, en flokkurinn fékk 4,6 prósent atkvæða í borgarstjórnarkosningunum árið 2018 og tapaði þá hátt í fjórum prósentustigum frá sveitarstjórnarkosningunum árið 2014. Fjöldi borgarfulltrúa VG hélst þannig óbreyttur, þrátt fyrir að verið væri að fjölga borgarfulltrúum úr 15 í 23.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir