Bjarni til Bessastaða og formenn funda á Alþingi

Lyk­il­at­riði í boðun fyr­ir­hug­aðra þing­kosn­inga og við fram­kvæmd Alþingis fram að kosn­ingum munu ráð­ast í dag.

Unnur Brá Konráðsdóttir er forseti Alþingis.
Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir er for­seti Alþingis. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Bjarni Bene­dikts­son, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, á fund með Guðna Th. Jóhann­essyni, for­seta Íslands, á Bessa­stöðum klukkan 11 í dag. Þar mun hann leggja til að þing verði rofið og boðað til kosn­inga 28. októ­ber.

Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir, for­seti Alþingis, fundar með öllum for­mönnum stjórn­mála­flokka sem eiga sæti á Alþingi um fram­kvæmd þings­ins fram að kosn­ingum. Ekki er víst að þingið muni starfa, en það veltur að öllum lík­indum á þessum fundi og því að flokk­arnir geti komið sér saman um mál sem eiga að fá umfjöllun.

Á Bessastöðum klukkan 11:00

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra á fund með Guðna Th. Jóhann­essyni, for­seta Íslands, klukkan 11 í dag. Fund­ur­inn fer fram að Bessa­stöðum eins og hefð gerir ráð fyrir.

Á fund­inum mun Bjarni leggja til beiðni um þing­rof og kosið verði til Alþingis innan 45 daga. Þess vegna er útlit fyrir að kosn­ingar fari fram 28. októ­ber, en ekki 4. nóv­em­ber eins og for­menn stjórn­mála­flokka höfðu rætt um við for­seta á laug­ar­dag­inn.

Ef kosn­ing­arnar fara fram 28. októ­ber þurfa stjórn­mála­flokkar að skila fram­boðs­listum eigi síðar en 13. októ­ber. Það er þess vegna ljóst að kosn­inga­bar­áttan verður snörp og ekki mik­ill tími fyrir mikla yfir­legu yfir fram­boðs­listum og mál­efna­skrám.

Í til­kynn­ingu frá for­seta­emb­ætt­inu segir að Guðni muni ávarpa full­trúa fjöl­miðla eftir fund­inn.

Afar ólík­legt verður að telj­ast að Guðni hafni þing­rofs­beiðn­inni. Það hefur eng­inn for­seti í lýð­veld­is­sög­unni gert, og miðað við orð lög­spek­inga þá er það jafn­vel and­stætt stjórn­ar­skrá því ráð­herrar fara með vald for­seta, eins og þekkt er orðið.

Á Alþingi klukkan 12:30

Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir, for­seti Alþingis, ræðir við for­menn allra stjórn­mála­flokka sem eiga sæti á Alþingi í dag klukkan 12:30. Á þeim fundi mun ráð­ast hvort Alþingi muni starfa áfram, næstu vik­urnar, eða þar til flokk­arnir þurfa að ein­henda sér í kosn­inga­bar­áttu.

Jafnvel þó rík­is­stjórnin sé fallin og umboðs­laus – þar sem hún hefur ekki lengur stuðn­ing meiri­hluta þing­manna – þá hefur Alþingi enn sitt umboð í rúm­lega þrjú ár í við­bót.

[adspot]

Bjarni Bene­dikts­son hefði tækni­lega séð getað reynt að mynda nýjan meiri­hluta á Alþingi, en reynsla síð­asta vetrar sýndi að slíkt yrði mikil þrauta­ganga og nær ómögu­legt. Á sama hátt hefðu aðrir flokkar í þing­inu getað reynt að mynda meiri­hluta um nýja rík­is­stjórn. Skjótasta lausnin á þessu vanda­máli er hins vegar að boða til kosn­inga.

Full­trúar stjórn­mála­flokk­ana hafa allir lýst yfir vilja til að ræða ákveðin mál. Ljóst er að Alþingi mun ekki kom­ast yfir öll málin sem for­menn­irnir leggja til og þess vegna veltur áfram­hald­andi þing­hald á því hvort flokk­arnir geti komið sér saman um fáein brýn mál­efni til að fjalla um.

Hér að neðan má sjá þau mál sem hver flokkur hefur lagt til í umræð­unni síð­ustu daga.

Sjálfstæðisflokkur

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, utan­rík­is­ráð­herra og þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði í fréttum RÚV í gær að það þyrfti að ganga frá ákveðnum málum í þing­inu en stóra málið sé að kosn­inga­bar­áttan er hafin. Hann segir að huga þurfi að því að ekki sé búið að mæla fyrir neinum málum, þau séu ekki farin til nefndar, til umsagnar og að ein­ungis sé búið að tala fyrir fjár­laga­frum­varp­inu. „Þannig að það er ekki eins og menn hafi frjálst val um það að keyra stór mál í gegn,“ segir hann.

Vinstri græn

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, vill sjá breyt­ingu á Útlend­inga­lögum. Að rétt­ar­á­hrif frest­ist gagn­vart hæl­is­leit­endum og börnum í hópi hæl­is­leit­enda.

Píratar

  • Frumvarp um að veita tveimur stúlkum á flótta og fjöl­skyldum þeirra sem vísa á úr landi rík­is­borg­ara­rétt,
  • Frumvarp sem þolendur kyn­ferð­is­af­brota hafa kallað eftir um að barn­a­níð­ingar geti ekki starfað sem lög­menn, og
  • Frumvarp um eina breyt­ingu á stjórn­ar­skránni svo hægt verði á næsta kjör­tíma­bili að breyta stjórn­ar­skrá Íslands með aðkomu kjós­enda án þess að rjúfa þing og boða til kosn­inga.

Framsóknarflokkurinn

Þórunn Egils­dóttir, þing­flokks­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, segir að ekki komi annað til greina en að það verði sam­eig­in­leg nið­ur­staða allra flokk­ana að taka mál fyrir. Það verði ekki gert öðru­vísi.

Viðreisn

Formaður Við­reisnar, Benedikt Jóhann­es­son, telur að breið sam­staða gæti náðst um ákveðin vel­ferð­is­mál. Viðreisn vill sjá auð­linda­á­kvæðið stjórn­ar­skrár­innar tekið fyrir. Að hans mati verða fjár­lög ekki afgreidd á þessum tíma. Til þess að málin nái fram að ganga þarf breiða sam­stöðu en óljóst er hvort hún náist.

Björt framtíð

Óttarr Proppé, heil­brigð­is­ráð­herra og for­maður Bjartar fram­tíðar, segir að mörg mik­il­væg mál hafi verið sett fram eins og frum­varp um not­enda­stýrða per­sónu­lega aðstoð. Yfirlýst frum­vört í sam­bandi við beit­ingu Dyfl­in­ar­reglu­gerð­ar­innar gagn­vart flótta­mönnum. Að hans mati væri gott að ná sátt um á þing­inu og klárað sem allra fyrst.

Samfylkingin

Logi Már Ein­ars­son greindi frá því í gær á Facebook-síðu sinni að kald­lynt væri ef fall stjórnar, vegna með­ferðar mála sem varða ofbeldi gegn börnum, verði til þess að öðrum börnum í neyð verður varpað út á gadd­inn.

„Nú verður þingi slitið fljót­lega og óvíst hvenær nýtt þing getur tryggt þeim og öðrum börnum sann­gjarna með­ferð. Ég mun því leggja kapp á að fá frum­varp um rík­is­borg­ara­rétt til handa Mary, Hanyie og fjöl­skyldum þeirra sam­þykkt fyrir kosn­ingar,“ segir hann. Einnig telur hann að taka þurfi afstöðu til stjórn­ar­skrár­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár