Seinni hálfleikur kjörtímabilsins gæti breytt stjórnmálunum varanlega - Seinni hluti

Það stytt­ist í seinni hálf­leik kjör­tíma­bils­ins. Fyrri hálf­leik­ur­inn þró­að­ist á annan hátt en flestir áttu von á. Rík­is­stjórn sem naut gríð­ar­legs stuðn­ings í kjöl­far þess að hún tók við hefur náð að koma nokkrum af sínum helstu stefnu­málum í gegn, en er samt sem áður að mæl­ast með afar lít­inn stuðn­ing. Minnsti flokk­ur­inn á þingi mælist hins vegar langstærsti flokkur lands­ins þrátt fyrir að stefna hans sé fyrst og síð­ast að breyta stjórn­mála­kerf­inu. Frjáls­lyndu miðju­flokk­arnir eru í sárum og upp hafa blossað blóðug inn­an­flokksá­tök. Við þess­ari stöðu þurfa þeir allir að bregð­ast, með mis­mund­andi hætti.

Þetta er búinn að vera mjög áhuga­verður fyrri hálf­leikur. En sá síð­ari verður lík­lega enn áhuga­verð­ari. Og loka­staðan gæti leitt til þess að íslensk stjórn­mál breyt­ist umtals­vert og var­an­lega.

Hér að neðan verður rýnt í stöðu fjór­flokks­ins, sem glímir við mikla til­vist­ar­kreppu þótt eðli hennar sé mis­mun­andi á milli flokk­anna.

Persónufylgi sem skilar sér ekki til fólksins


Hin mikla athygli sem verið hefur á Bjartri fram­tíð og Pírötum að und­an­förnu hefur dregið athygl­ina að ein­hverju leyti frá þeirri stöðu sem er uppi hjá fjór­flokknum, hefð­bundnu stjórn­mála­flokk­unum á Íslandi. Sá eini þeirra sem siglir nokkuð lygnan sjó í kringum það sem mætti telj­ast eðli­legt fylgi í sögu­legu sam­hengi eru Vinstri grænir.

Þar skiptir lyk­il­máli mikið per­sónu­fylgi Katrínar Jak­obs­dóttur, for­manns flokks­ins. Ljóst má vera að þrýst­ingur á hana um að taka slag­inn í for­seta­kosn­ing­unum á næsta ári mun aukast umtals­vert á næstu miss­erum. Nýleg könnun Gallup sýndi að 17 pró­sent þeirra sem tóku afstöðu til þess hvern þeir vildu sem næsta for­seta nefndu Katrínu, þrátt fyrir að hún hafi gefið það út að hún sækt­ist ekki eftir starf­inu. Það gæti orðið mikið áfall fyrir Vinstri græna ef Katrín myndi skipta um skoðun og láta slag standa. Líkast til myndi fylgið dala í kjöl­farið og mögu­legur eft­ir­maður hennar í starfi er ekki aug­ljós. Vinstri græn nutu þess framan af líf­tíma sínum að vera með mjög öfl­uga, unga og rót­tæka gras­rót. Minna hefur sést til hennar að und­an­förnu og svo virð­ist sem nokkur þreyta sé komin í flokks­starfið. Svo má vel færa rök fyrir því að áfram­hald­andi þing­seta hinna mjög reyndu, en afar umdeildu, Stein­gríms J. Sig­fús­sonar og Ögmundar Jón­as­sonar, séu að standa flokknum fyrir þrifum.

[caption id="attachment_25167" align="alignnone" width="640"] Katrín Jak­obs­dóttir mælist með mikið per­sónu­fylgi og margir vilja sjá hana sem næsta for­seta Íslands. Það fylgi skilar sér ekki til flokks­ins sem hún leiðir, Vinstri grænna.[/caption]

Samfylkingin gæti lognast út af sem stjórnmálaafl


Sú klemma Vinstri grænna er hins vegar eins og fyrsta heims vanda­mál við hlið­ina á þeirri til­vist­ar­kreppu sem Sam­fylk­ingin stendur frammi fyrir. Síðustu ár hafa verið ein sam­felld sorg­ar­saga hjá flokknum á lands­vísu, þótt að betur hafi gengið í borg­inni, og margir lyk­il­menn innan hans ótt­ast raun­veru­lega um að Sam­fylk­ingin gæti logn­ast út af sem stjórn­mála­afl. Eftir erf­iða stjórn­ar­setu á síð­asta kjör­tíma­bili beið flokk­ur­inn sögu­legt afhroð í þing­kosn­ing­unum vorið 2013, þegar hann fékk 12,9 pró­sent atkvæða. Aldrei nokkru sinni í sögu íslenskra stjórn­mála hefur einn flokkur tapað jafn miklu fylgi á milli kosn­inga og Sam­fylk­ingin gerði á milli áranna 2009 og 2013. Og honum hefur gengið mjög illa að koma erindi sínu á fram­færi við kjós­endur það sem af er þessu kjör­tíma­bili.

Katrín Jakobsdóttir mælist með mikið persónufylgi og margir vilja sjá hana sem næsta forseta Íslands. Það fylgi skilar sér ekki til flokksins sem hún leiðir, Vinstri grænna.
Katrín Jak­obs­dóttir mælist með mikið per­sónu­fylgi og margir vilja sjá hana sem næsta for­seta Íslands. Það fylgi skilar sér ekki til flokks­ins sem hún leiðir, Vinstri grænna.

Copy: Fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar

|

Create infographics

Ótrú­legur lands­fundur flokks­ins í mars síð­ast­liðnum, þar sem Árni Páll Árnason for­maður hélt emb­ætti sínu með því að sigra Sigríði Ingi­björgu Inga­dóttur með einu atkvæði í for­manns­kjöri, veikti stöðu Sam­fylk­ing­ar­innar enn frekar. Hið skyndi­lega mót­fram­boð Sigríðar Ingi­bjargar opin­ber­aði ber­sýni­lega inn­an­flokksá­tök um hvert flokk­ur­inn eigi að stefna og fyrir hvað hann eigi að standa. Á þessu hefur ekki verið tekið og það end­ur­speglar stöðu Sam­fylk­ing­ar­innar í skoð­ana­könn­unum, þar sem fylgið mælist minna en það var í síð­ustu kosn­ingum.

Lítið per­sónu­fylgi Árna Páls hlýtur einnig að vera mikið áhyggju­efni fyrir flokks­menn. Í könnun MMR sem birt var í lok apríl sögðu til dæmis þrjú pró­sent aðspurðra að hann væri fæddur leið­togi. Engin stjórn­málafor­ingi mæld­ist lægri í þeim flokki. Svo virð­ist sem ákvörðun Árna Páls, skömmu eftir að hann tók við sem for­maður í mars 2013, að fresta afgreiðslu á nýrri stjórn­ar­skrá fram yfir kosn­ingar hafi verið afdrifa­rík­ari fyrir hann en haldið var. Auðvelt er að álykta að sú ákvörðun hafi skipt meira máli í fylg­is­flótt­anum frá Sam­fylk­ing­unni og yfir til Pírata, sem vilja nýja stjórn­ar­skrá sem end­ur­speglar betur þær breyt­ingar á til­færslu valds frá vald­höfum til almenn­ings sem flokk­ur­inn seg­ist standa fyrir.

[caption id="attachment_23735" align="alignnone" width="800"] Árni Páll Árnason stóð af sér atlögu að for­mennsku hans í flokknum. Hann sigr­aði for­manns­kjör í mars með einu atkvæði.[/caption]

Helstu málin komin í gegn en samt óvinsæl

Árni Páll Árnason stóð af sér atlögu að formennsku hans í flokknum. Hann sigraði formannskjör í mars með einu atkvæði.
Árni Páll Árnason stóð af sér atlögu að for­mennsku hans í flokknum. Hann sigr­aði for­manns­kjör í mars með einu atkvæði.

Vel­gengni Pírata og til­vist­ar­kreppa Sam­fylk­ingar og Bjartrar fram­tíðar hafa að ein­hverju leyti dempað umræðu um hversu döpur staða stjórn­ar­flokk­anna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks, er sam­kvæmt könn­unum. Sér­stak­lega í ljósi þess að íslenskt hag­kerfi hefur heldur betur tekið við sér frá því að rík­is­stjórnin tók við völdum, þótt vel megi færa hald­bær rök fyrir að aðgerðir þeirra tveggja rík­is­stjórna sem sátu á undan henni eigi þar líka stóran hlut að máli.

Til við­bótar hefur rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar komið sínum helstu áherslu­málum í gegn. Það er búið að ráð­ast í höf­uð­stólslækkun verð­tryggðra skulda hluta lands­manna, skattar og gjöld hafa verið lækk­aðir og áætlun um losun hafta og enda­lok þrota­búa gömlu bank­ana verið sett fram og ýtt í fram­kvæmd.


Samt mælist rík­is­stjórnin að jafn­aði með um þriðj­ungs fylgi. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með minna fylgi en hann fékk í verstu útreið sinni í kosn­ingum í sög­unni og Framsókn mælist með tæpan helm­ing kjör­fylgis síns á góðum degi. Á vondum degi mælist fylgið lægra en það hefur nokkru sinni mælst síðan að Sig­mundur Davíð tók við flokknum.

Ástæður þessa eru fjöl­margar. Erfiðar kjara­við­ræður, leka­málið, varð­staða um skipt­ingu ágóða af nýt­ingu sjáv­ar­auð­lind­ar­innar, aukin mis­skipt­ing og ákaf­lega erfið staða á hús­næð­is­mark­aði spila þar ugg­laust stóra rullu. Framkoma og ummæli sumra ráð­herra í og um fjöl­miðla gera það líka og þá virð­ist blasa við að hluti kjós­enda telji flokk­anna tvo mun frekar ganga erinda sér­hags­muna en almanna­hags­muna. En lík­ast til eru valda­flokkar eins þeir, sem hafa getað gengið að völdum og áhrifum nokkuð vísum, orðnir barn síns tíma. Ekki ósvipað og dag­blöð í heimi sem gengið hefur í gegnum upp­lýs­inga- og tækni­bylt­ingu.

Nóg eftir af leiknum


Næstu tvö ár, síð­ari hluti kjör­tíma­bils­ins, verða því mjög áhuga­verð. Píratar þurfa að finna leiðir til að halda í það aðdrátt­ar­afl sem þeir hafa komið sér upp og finna leiðir til að láta mód­elið sitt virka í stærri hópi ef ske kynni að fylgið hald­ist fram að næstu kosn­ingum. Frjáls­lyndu miðju­flokk­arnir, Sam­fylk­ing og Björt fram­tíð, eru í raun­veru­legri hættu á að logn­ast út af og þurfa að horfa gaum­gæfi­lega í eigin barm til að greina hvað það sé við þau sem gerir það að verkum að kjós­endur vilja ekki kjósa þá. Því kjós­endur ráða alltaf á end­anum. Það er ekki mik­ill tíma fyrir þessa tvo flokka að ná vopnum sínum.

[caption id="attachment_22418" align="alignnone" width="635"] Rík­is­stjórnin stendur frammi fyrir vanda­sömu verki á síð­ari hluta kjör­tíma­bils­ins. Það er oft mun erf­ið­ara að stýra í upp­sveiflu en í kreppu.[/caption]

Ríkisstjórnin stendur frammi fyrir vandasömu verki á síðari hluta kjörtímabilsins. Það er oft mun erfiðara að stýra í uppsveiflu en í kreppu.
Rík­is­stjórnin stendur frammi fyrir vanda­sömu verki á síð­ari hluta kjör­tíma­bils­ins. Það er oft mun erf­ið­ara að stýra í upp­sveiflu en í kreppu.

Stjórn­ar­flokk­arnir eru auð­vitað í þeirri stöðu að geta ein­fald­lega keypt sér auknar vin­sældir, líkt og ráð­andi vald­hafar eru alltaf í aðdrag­anda kosn­ingar. Það yrði þvert á ráð­legg­ingar nán­ast allra sér­fræð­inga sem hafa bent á að ríkið eigi að halda að sér höndum í opin­berum fram­kvæmdum næstu árin vegna þenslu í hag­kerf­inu. Slíkar ráð­legg­ingar eru þó fljótar að verða auka­at­riði í aðdrag­anda kosn­inga ef fylg­is­staða flokka er léleg.

Það má færa sterk rök fyrir því að mun auð­veld­ara hafi verið að stýra Íslandi á fyrri helm­ingi kjör­tíma­bils­ins en það verður á þeim síð­ari. Þá var Ísland í höftum og að jafna sig eftir kreppu. Á næstu tveimur árum verða höft losuð og rík­is­stjórnin þarf að stunda þá vanda­sömu jafn­væg­is­list að halda aftur að verð­bólgu í upp­gangi á Íslandi. Það hefur engum tek­ist til lengri tíma áður. Hafta­los­unin mun einnig gera það að verkum að hávaxta­landið Ísland verður ber­skjald­aðri fyrir spá­kaup­mennsku­há­körlum heims­ins sem renna á blóð­lykt hvar sem hana er að finna, sér­stak­lega í ljósi þess að það er ekki mikið spenn­andi æti fyrir þá á öðrum mörk­uðum sem stendur.

Píratar unnu fyrri hálf­leik­inn. En það er nóg eftir af leiknum.

Þetta er síð­ari hluti grein­ingar Kjarnans á lands­lagi íslenskra stjórn­mála eins og það blasir við á miðju kjör­tíma­bili. Fyrri hlut­inn birt­ist í dag. Hann má lesa hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár