Fólk „sannarlega“ hvatt til að vera sem minnst á ferðinni

Sama nálgun verður notuð á ferða­lög fólks á næstu vikum og gert var í fyrra­vetur. Fólk verður „sann­ar­lega“ hvatt til að „vera sem minnst á ferð­inni,“ segir sótt­varna­læknir.Örfáir dagar eru til páska.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Lögreglan

„Ég held að við munum nota sömu nálgun á þetta og í fyrra­vetur,“ segir Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir um hvort lands­menn verði hvattir til að ferð­ast inn­an­húss næstu vik­urnar og þar með talið um pásk­ana. „Við munum svo sann­ar­lega hvetja fólk til að vera sem minnst á ferð­inni. Við vitum hvað skapar smit­hættu, það eru ferða­lög fólks.“ Þórólfur mun koma með leið­bein­ingar um þetta á næstu dögum.

[links]Þetta sagði hann á blaða­manna­fundi í Hörpu í dag þar sem hertar aðgerðir inn­an­lands – enn og aftur – voru kynntar. Frá og með mið­nætti fara sam­komu­tak­mark­anir úr 50 í 10. Hópsmit meðal barna hefur komið upp og er breska afbrigði veirunnar nú komið á kreik í sam­fé­lag­inu.

Ýmis starf­semi og þjón­usta, s.s. lík­ams­rækt­ar­stöðvar, sund­staðir, spila­salir og fleira verður lokað. Áhrifin á skóla­starfið verða einnig mikil.

Þórólfur seg­ist vona að aðgerð­irnar sem gripið verður til núna muni skila árangri enda séu þær byggðar á þeirri reynslu sem við höfum aflað okkur. Í þriðju bylgj­unni var reynt að setja stað­bundnar aðgerðir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en það dugði ekki. Það var, að sögn Þórólfs ekki fyrr en þær væru settar á lands­vísu að þær fóru að virka. „Og ég bind miklar vonir við að við náum því líka núna.“

Hann bendir á að þegar því sem næst búið er að útrýma veirunni inn­an­lands og aflétta tak­mörk­unum þurfi ekki mikið til að koma smitum af stað, kom­ist þau yfir landa­mærin. „Það þarf ekki nema einn ein­stak­ling til að hleypa þessu af stað.“

Þórólfur segir að „grund­vall­ar­at­riðið“ sé að reyna að anda djúpt og taka því rólega, vera ekki að hitta mjög marga. „Því það er það sem skapar smit­hættu.“

Aðgerðir í stuttu máli

Tíu manna fjölda­tak­mark­anir verða meg­in­reglan, en 30 manns mega sækja athafnir á vegum trú­fé­laga.

Sund­laugar og lík­ams­rækt­ar­stöðvar verða lok­að­ar. Sviðs­listir þurfa að hætta starf­semi á ný. Íþrótta­starf verður sömu­leiðis óheim­ilt.

Barir og krár þurfa að loka á ný, en veit­inga­staðir mega vera opnir til kl. 22 á kvöld­in, með tak­mörk­un­um. Marg­vís­leg starf­semi verður þannig stöðv­uð, en þó ekki starf­semi hár­greiðslu­stofa og snyrti­stofa og önnur álíka þjón­usta.

Öllum skólum í land­inu, grunn­skól­um, fram­halds­skólum og háskól­um, verður lokað fram að páska­fríi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár