Fögnuður ljóssins, jóladansleikur, og umskiptingar á Suðurskautslandinu

Tón­leikar, við­burðir og sýn­ingar 21. des­em­ber - 10. jan­úar

Þetta og svo margt fleira er að ger­ast næstu þrjár vik­urnar

Andkristnihátíðin

Hvar? Gauk­ur­inn
Hvenær? 21. des­em­ber kl. 18.00
Aðgangs­eyrir: 2.000 kr.

Á myrkasta degi árs­ins sam­ein­ast átta hljóm­sveitir úr svart­metal­sen­unni til að fagna kom­andi ljósi. Þessi hátíð heið­ingj­anna hefur legið í dvala síð­ast­liðin tvö ár en snýr aftur með látum og heilli fylk­ingu af hljóm­sveitum sem eru leið­andi í sen­unni. Fram koma Carpe Noctem, Sinmara, Nvll, Almyrkvi, Örmagna, Mann­veira, Bömmer og World Narcosis.

Jóladansleikur Bjartra sveiflna

Hvar? Húrra
Hvenær? 21. des­em­ber kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Ábreiðu­sveitin Bjartar sveiflur hefur komið víða við síð­asta árið og efna til jóla­dans­leiks þar sem gestir geta boðið vinum og vanda­mönnum dans. Vinsæl jóla­lög verða spiluð, margir gesta­söngv­arar stíga á sviðið og Saga Sig og Erna Bergmann munu krýna drottn­ingu og kon­ung dans­leiks­ins út frá klæða­burði.

Une Misère & Celestine

Hvar? Húrra
Hvenær? 22. des­em­ber kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 2.500 kr.

Orku­boltar lands­ins geta fagnað því að stærstu harð­kjarna­sveitir lands­ins ætla að kveðja árið með dúndr­andi tón­leikum. Celestine var stofnuð 2006 og er ein af for­sprökkum harð­kjarnatón­listar Íslands á meðan að Une Misère steig á sviðið tíu árum síðar og hefur verið leið­andi afl í sen­unni.

Uppistand um hátíðirnar

Hvar? Gauk­ur­inn
Hvenær? 23. des­em­ber kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Grínist­arnir í Gold­engang-hópnum halda saman uppi­stand á Þor­láks­messu. Hópurinn hefur haldið viku­lega við­burði á mánu­dögum á Gauknum allt árið, en sökum jóla fær­ist kvöld þeirra yfir á sunnu­dag­inn. Búast má við alls konar brönd­urum og sýn­ingum frá 8–10 mis­mun­andi grínistum.

Jon Hopkins & Kiasmos 

Hvar? Húrra 
Hvenær? 31. des­em­ber kl. 00.30
Aðgangs­eyrir: 3.500 kr.

Hálftíma eftir að nýja árið hefst opnar Húrra hurðir sínar og hleypa að Jon Hopkins og Kiasmos. Jon Hopkins hefur skrifað til­finn­inga­þrungna raf­tón­list í nærri tvo ára­tugi og flutt hana úti um allan heim, en hann tók meðal ann­ars upp smá­skífu sína, Asleep Versions, á Íslandi. Með honum spilar raf­dúett­inn Kiasmos sem sam­anstendur af Ólafi Arnalds og Janusi Rasmus­sen.

The Thing 

Hvar? Bíó Paradís
Hvenær? 6. jan­úar kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 1.600 kr.

Stór­myndin The Thing er nýárs­sýn­ing Svartra sunnu­daga. Þessi John Carpenter-költ­mynd ger­ist á Suð­ur­skauts­land­inu 1982 þar sem umskipt­inga­geim­vera sem var föst í frostjörð þiðnar og reynir að kom­ast til byggða. Áfeng­is­sjúkur þyrlu­flug­maður, leik­inn af Kurt Russel, reynir að hindra för þess­arar hættu­legu geim­veru vopn­aður eld­vörpu og dínamíti.

Ásmundur Sveinsson: List fyrir fólkið

Hvar? Ásmund­ar­safn
Hvenær? Lokar 6. jan­úar
Aðgangs­eyrir: 1.650 kr.

Á sýn­ing­unni er sjónum beint að öllum ferli Ásmundar Sveins­sonar, allt frá tré­skurð­ar­námi hjá Ríkarði Jónssyni og til síð­ustu ára lista­manns­ins. Sýnd eru verk unnin í ýmis efni, þar á meðal verk höggvin úr tré, stein­steypu og brons. Á sýn­ing­unni eru jafn­framt frum­myndir þekktra verka sem stækkuð hafa verið og sett upp víða um land.

Ég dey

Hvar? Borg­ar­leik­húsið
Hvenær? Frumsýnt 10. jan­úar
Aðgangs­eyrir: frá 6.550 kr.

Ég dey er ein­leikur eftir Charlotte Bøving sem hún skrifar og flytur þar sem hún skoðar lífið frá sjón­ar­hóli dauð­ans og dauð­ann frá sjón­ar­hóli lífs­ins. Hún var orðin 50 ára þegar hún gerði sér almenni­lega grein fyrir því að hún myndi deyja, en sýn­ingin er unnin út frá þess­ari upp­götvun. Þetta er þriðja einka­sýn­ing Charlotte.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár