Arion banki ákveður að tryggja starfsfólki 80 prósent launa í fæðingarorlofi

Einn stærsti banki lands­ins ætlar að greiða starfs­fólki sínu við­bót­ar­styrk ofan á greiðslur úr fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði í sex mán­uði. Aðgerðin er meðal ann­ars til að hvetja feður frekar til að taka fæð­ing­ar­or­lof.

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka.
Benedikt Gíslason, banka­stjóri Arion banka. Mynd: Arion banki

Arion banki hefur ákveðið að tryggja starfs­fólki sínu 80 pró­sent launa í fæð­ing­ar­or­lofi í sex mán­uði. Það þýðir að bank­inn skuld­bindur sig til að greiða starfs­fólki sínu sem er með hærri laun en 600 þús­und krónur á mán­uði (hámarks­greiðsla á mán­uði úr fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði) sér­stakan við­bót­ar­styrk svo það haldi 80 pró­sent af kjörum sínum.

Í til­kynn­ingu frá bank­anum segir að styrk­ur­inn komi til við­bótar greiðslum úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði og kjara­samn­ings­bundnum styrkjum svo að laun í fæð­ing­ar­or­lofi kom­ist sem næst 80% launa. Jafn­framt hvetur bank­inn starfs­fólk til að nýta fæð­ing­ar­or­lofs­rétt sinn að fullu.

Laun starfs­manna í bönkum eru mis­mun­andi eftir því hvaða verk­efnum þau sinna. Mán­að­ar­laun starfs­fólks í ráð­gjöf og sölu verð­bréfa, meðal ann­ars þeirra sem starfa við slíkt hjá Arion banka, voru til að mynda yfir 1,7 millj­ónir króna á mán­uði í fyrra. Með­al­verð­bréfa­sali sem starfar hjá Arion banka myndi sam­kvæmt þessu fá 1.360 þús­und krónur á mán­uði í laun í fæð­ing­ar­or­lofi eða 760 þús­und krónum meira en hann fengi ef við­kom­andi fengi ein­ungis greiðslur úr fæð­inga­or­lofs­sjóði.

[adspot]Fyrir starfs­mann sem er með eina milljón króna á mán­uði í laun mun þetta þýða við­bót­ar­styrk upp á 200 þús­und krónur á mán­uði og fyrir þann sem er með 800 þús­und krónur á mán­uði um 40 þús­und krónur. Ef Benedikt Gíslason, banka­stjóri Arion banka, færi í fæð­ing­ar­or­lof myndi hann fá rúm­lega 3,2 millj­ónir króna í við­bót­ar­styrk á mán­uði frá bank­anum ofan á fæð­ing­ar­or­lofs­greiðsl­urnar úr opin­bera sjóðnum, en hann var með 4,8 millj­ónir króna á mán­uði að jafn­aði í laun í fyrra.

Vilja auðvelda starfsfólki að taka orlof

Aðgerðin er hluti af áætlun Arion banka við að jafna hlut kynj­anna innan bank­ans. Í til­kynn­ingu bank­ans segir að með­al­laun karla, bæði í Arion banka og sam­fé­lag­inu öllu, séu hærri en með­al­laun kvenna og feður nýti að jafn­aði síður fæð­ing­ar­or­lofs­rétt sinn en mæður. „Með því að tryggja starfs­fólki 80 pró­sent launa í fæð­ing­ar­or­lofi er for­eldrum, óháð kyni eða annarri stöðu, auð­veldað að nýta fæð­ing­ar­or­lofs­rétt sinn. Þannig miðar aðgerðin m.a. að því að fjölga þeim feðrum sem nýta fæð­ing­ar­or­lofs­rétt sinn og til lengri tíma litið getur hún verið liður í að jafna ann­ars vegar með­al­laun kynj­anna og hins vegar hlut kynj­anna í hópi stjórn­enda og í ólíkum starfa­flokkum, en konur eru í dag 44 pró­sent stjórn­enda bank­ans.“

Benedikt hvetur starfs­fólk sitt í sömu til­kynn­ingu að nýta fæð­ing­ar­or­lofs­rétt sinn, óháð kyni eða annarri stöðu. „Við viljum auð­velda starfs­fólki okkar að taka fæð­ing­ar­or­lof með því að tryggja öllum nýbök­uðum for­eldrum 80 pró­sent af launum sínum á þessum dýr­mæta og mik­il­væga tíma í lífi þeirra og barna þeirra. Jafn­framt viljum við með þessu gera Arion banka að enn eft­ir­sókn­ar­verð­ari vinnu­stað fyrir ungt og hæfi­leik­a­ríkt fólk.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár