Í alvöru Weiner?

Fyrr­ver­andi þing­mað­ur­inn og borg­ar­stjóra­fram­bjóð­and­inn Anthony Weiner var opin­ber­aður um helg­ina. The New York Post greindi frá því að hann hefði sent kyn­ferð­is­legar myndir af sér til konu sem er alls ekki eig­in­kona hans.

Anthony Weiner verður 52 ára gam­all um kom­andi helgi. Frá því að hann var á þrí­tugs­aldri og þangað til í maí 2011 var hann stjórn­mála­maður á upp­leið. Hann hafði unnið sem ráð­gjafi þing­manns, setið í borg­ar­stjórn New York borgar og verið full­trúi suð­ur­hluta-Brooklyn og Queens í full­trúa­deild Banda­ríkja­þings í 13 ár. Weiner hafði orð á sér sem ötull bar­áttu­maður frjáls­lyndis og mann­rétt­inda. Hann barð­ist fyrir auknu og ódýr­ara aðgengi Banda­ríkja­manna að heilsu­gæslu, gekk með gjall­ar­horn og regn­boga­fána í Gay Pride-göngum í New York, stóð fastur með rétti kvenna til að fara í fóst­ur­eyð­ingar og með laga­breyt­ingum sem gerðu við­skipti með tóbaks­vörur á inter­net­inu að alrík­is­glæp í Banda­ríkj­unum. Sumar ákvarð­anir hans voru umdeild­ari, sér­stak­lega innan demókra­ta­flokks­ins. Weiner kaus til að mynda með hern­að­ar­að­gerðum í Írak 2002 og tók þátt í því að reyna að meina Palest­ínu að verða hluta af Sam­ein­uðu þjóð­unum, en hann er gyð­ingur.

Weiner þótti ákaf­lega kröfu­harður yfir­maður og fyrir vikið var starfs­manna­velta hans einna hæst allra þeirra sem sátu á Banda­ríkja­þingi. Í frétt New York Times sem birt­ist sum­arið 2008 var sagt að Weiner hafi kraf­ist þess að starfs­fólk sitt væri í stans­lausu sam­bandi við hann í gegnum BlackBerry-sím­ann sinn, öskr­aði í sífellu á það og ætti það til að kasta hús­gögnum. Þótt margir fyrrum starfs­menn hans hafi hætt og tekið þessu atferli Weiner illa heill­aði hann líka marga slíka, sem hrifust af eld­móði hans og ákveðni.

Hvernig sem litið var á það þá var fer­ill Weiner á réttri braut. Hann var að vekja athygli og að klífa met­orða­stig­ann og var sterk­lega orð­aður við að verða næsti borg­ar­stjóri í New York. Í júlí 2010 gift­ist hann síðan Humu Abedin, sem var og er einn nán­asti ráð­gjafi Hillary Clinton, sem hefur líkt sam­bandi sínu við Abedin við sam­band móður og dóttur. Bill Clinton gaf hjónin saman. Gæfan blasti við Weiner á öllum víg­stöðum.

Þ.e. þangað að hann var opin­ber­aður í maí 2011.

Atvik númer eitt

Þann 27. maí 2011 var Abedin ófrísk af syni þeirra Weiner, sem fædd­ist í des­em­ber sama ár. Þann dag ákvað eig­in­maður hennar að senda 21 árs gam­alli konu sem fylgdi honum á Twitter mynd af nær­bux­unum sínum, þar sem ber­sýni­lega sást móta fyrir getn­að­ar­lim hans. Myndin var send í gegnum opin­bera Twitter-aðgang þing­manns­ins.

Í fyrstu neit­aði Weiner stað­fast­lega að hann hefði sent mynd­ina. Þegar ljóst var að sú skýr­ing væri ekki að halda boð­aði hann til blaða­manna­fundar og við­ur­kenndi að hafa skipst á skila­boðum og myndum við sex konur á und­an­förnum þremur árum. Weiner baðst afsök­unar á atferl­inu og á því að hafa þrætt fyrir það áður. Hann ætl­aði þó ekki að segja af sér emb­ætti.

Nokkrum dögum síðar lak enn ein myndin af ferm­ing­ar­bróður Weiner sem hann hafði sent í gegnum Twitter út og hann sá sæng sína upp reidda.

Þann 16. júní 2011 til­kynnti Weiner að hann segði af sér þing­mennsku. Til að bæta gráu ofan á þá hörm­ung sem hann hafði kallað yfir sig, ólétta eig­in­konu sína og Demókra­ta­flokk­inn þá tap­að­ist þing­sæti hans til Repúblik­ana þegar kosið var um það nokkrum mán­uðum síðar.

Hér er Carlos Danger

Flestir voru á því að Weiner væri búin að vera. En Abedin stóð með honum eftir að þau höfðu farið í gegnum marg­hátt­aða ráð­gjöf til að reyna laga allt sem var brotið á milli þeirra í kjöl­far staf­rænna hlið­ar­skrefa Weiner.

Í við­tali sem hann fór í við The New York Magazine í apríl 2013 biðl­aði hann síðan til íbúa heima­borgar sinnar um að gefa sér annað tæki­færi. Mánuði síðar til­kynnti Weiner að hann ætl­aði sér að sækj­ast eftir að vera fram­bjóð­andi Demókra­ta­flokks­ins í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum sem framundan væru í borg­inni.

Samhliða gerði hann samn­ing við heim­ild­ar­mynd­ar­menn­ina Josh Kriegman og Elyse Stein­berg um að fylgj­ast með kosn­inga­bar­áttu og upp­risu hans. Í aðal­hlut­verkum, auk Weiner sjálfs, er Huma Abedin og helsta starfs­fólk hans. Afurðin, sem heitir ein­fald­lega „Weiner“ var frum­sýnd á Sundance hatíð­inni í jan­úar, hlaut helstu verð­laun hennar og hefur hlotið glimr­andi dóma.

Þótt fáir hafi átt von á því að Weiner næði að reisa sig við virt­ist honum vera að takast hið ómögu­lega. Vopnaður skýrri kosn­inga­á­ætlun - sem hann kall­aði 64 hug­myndir sem miðað að því að halda stöðu New York sem höf­uð­borg milli­stétt­ar­innar - sótti hann sífellt á og í júlí var far­inn að mæl­ast með mest fylgi allra í kapp­hlaup­inu um að hljóta útnefn­ingu demókrata.

Þann 23. júlí 2013 birti vef­síðan „The Dirty“ nýjar kyn­ferð­is­legar myndir og skila­boð sem send höfðu verið frá manni sem kall­aði sig „Carlos Danger“ til 22 ára gam­allar konu. Carlos Danger var Anthony Weiner.

Allt fest á filmu

Weiner boð­aði til blaða­manna­fundar sama dag og fréttin birt­ist. Í heim­ild­ar­mynd­inni um hann eru sýnd brot af honum og starfs­fólki hans að reyna að takast á við stöð­una. Og þar eru sýnd brot af sam­skiptum Weiner við eig­in­konu sína á kosn­inga­skrif­stofu hans. Spennan sem er þeirra á milli í þeim aðstæðum er nán­ast sýni­leg.

Enn ákvað Abedin þó að standa með eig­in­manni sínum og kom fram á blaða­manna­fundi með honum. Vanlíðan hennar duld­ist þó fáum.

Á fund­inum reyndi Weiner að láta sem að skila­boðin og mynd­irnar hefðu verið frá þeim tíma sem hann var þing­maður og hefði stundað slíkar send­ingar. Hann sagð­ist alltaf hafa átt von á því að fleiri slík kæmu upp á yfir­borðið.

Fljót­lega var þó ljóst að tíma­línan sem Weiner var að reyna að selja stæð­ist ekki. Mynd­irnar og skila­boðin voru enda send á tíma­bili sem hófst síðla árs 2012 og þau nýj­ustu bár­ust í apríl 2013. Konan sem hann var að senda á steig síðan fram og lýsti sam­skiptum þeirra sem mjög kyn­ferð­is­legum, þótt að þau hefðu aldrei hist.

Fylgi Weiner féll sam­stundis um 20 pró­sentu­stig og allir við­burðir sem hann mætti á fóru að snú­ast um typpa­mynd­irnar sem hann væri að senda á konur. Þótt kosn­inga­bar­áttan yrði far­sa­kennd og fylgið hyrfi neit­aði Weiner að gef­ast upp. Kjós­endum var alveg sama og hann fékk ein­ungis 4,9 pró­sent atkvæða í for­vali demókrata í sept­em­ber 2013. Draum­ur­inn um borg­ar­stjóra­stól­inn var úti.

Aftur Weiner? Í alvöru?

Næstu árin lét Weiner, eðli­lega, lítið fyrir sér fara. Eig­in­kona hans, sem enn stóð með honum, gerð­ist lyk­il­leik­andi í for­seta­fram­boði Hillary Clinton og gegnir þar bæði hlut­verki per­sónu­legs aðstoð­ar­manns Clinton og vara­for­manns stjórnar fram­boðs­ins. Abedin er sögð þriðji áhrifa­mesti ein­stak­ling­ur­inn innan fram­boðs Clinton.

Sviðs­ljósið færð­ist eðli­lega á for­tíð eig­in­manns hennar þegar heim­ild­ar­myndin um borg­ar­stjórn­ar­fram­boð hans var frum­sýnd fyrr á þessu ári en sökum þess hversu hisp­us­laus og heið­ar­leg myndin er virt­ist það ekki vinna gegn henni. Þ.e. þangað til um liðna helgi.

Þá birti slúð­ur­blaðið New York Post frétt um nýja skæða­drifu vafa­samra mynda sem Weiner hafði sent konu sem var alls ekki eig­in­kona hans. Mynd­irnar voru alls konar. Margar sýndu Weiner beran að ofan að stæra sig af vel tón­uðum efri lík­ama sínum. Sumar voru myndir af nær­buxum hans þar sem sást móta fyrir getn­að­ar­lim hans, líkt og þær sem höfðu gert hann heims­frægan fyrir fimm árum síðan. Sú mynd sem vakti mesta athygli, og hlaut mesta gagn­rýni, var af honum uppi í rúmi á nær­bux­unum einum fata með son sinn og Abedin sof­andi sér við hlið. Skila­boðin og mynd­send­ing­arnar hófust seint í jan­úar 2015 og þau nýj­ustu voru send ágúst 2016. Carlos Danger gerði það aftur, og sýndi að hann hefur ekk­ert lært af fyrri mis­tökum.

Í þetta sinn hafði Abedin fengið nóg og í frétt sem birt­ist í New York Times í gær var greint frá því að hún hefði sagt skilið við Weiner eftir nýjasta hneykslið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár