Ríkisendurskoðandi tjáir sig ekki um fundinn við Ólaf og Karl Gauta

Rík­is­end­ur­skoð­andi er trún­að­ar­maður Alþing­is­manna og getur því ekki gefið upp hvort Ólafur Ísleifs­son og Karl Gauti Hjalta­son, fyrr­ver­andi þing­menn Flokks fólks­ins, hafi átt fund með emb­ætt­inu á síð­asta ári um fjár­mála­stjórnun Ingu Sæland.

Karl Gauti Hjaltason, Inga Sæland og Ólafur Ísleifsson
Karl Gauti Hjalta­son, Inga Sæland og Ólafur Ísleifs­son Mynd: Collage

Rík­is­end­ur­skoð­andi veitir ekki upp­lýs­ingar um hvað fór fram í sam­tali við Ólaf Ísleifs­son og Karl Gauta Hjalta­syni, fyrr­ver­andi þing­menn Flokks fólks­ins, við Rík­is­end­ur­skoð­anda í fyrra eða um hvort sá fundur hafi yfir­höfuð átt sér stað. Í skrif­legu svari rík­is­end­ur­skoð­anda við fyr­ir­spurn Kjarnans segir að rík­is­end­ur­skoð­andi sé trún­að­ar­maður Alþingis og því ríki trún­aður um sam­töl þing­manna við emb­ættið.

Gagnrýndu að Inga Sæland væri gjaldkeri flokksins og færi með prófkúru

Ólafur Ísleifs­son og Karl Gauti Hjalta­son hafa sagst átt fund með rík­is­end­ur­skoð­anda í fyrra þegar þeir voru enn þing­menn Flokks fólks­ins. Ólafur sagði, í sam­tali við Morg­un­blaðið í gær, að ástæða fund­ar­ins væri sú að þeir töldu það skyldu sína að upp­lýsa rík­is­end­ur­skoð­anda um að Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, væri gjald­keri flokks­ins og færi með próf­kúru flokks­ins. „­Eft­ir­lit með fjár­reiðum stjórn­mála­flokka er á hendi Rík­is­end­ur­skoð­un­ar. Skömmu eftir að nýr maður tók þar við emb­ætti árið 2018 ­greindum við honum frá þessum stað­reyndum og lýstum áhyggjum okk­ar. Við áttum ágætt sam­tal við hann um eft­ir­lit með fjár­reið­u­m ­stjórn­mála­flokka,“ sagði Ólaf­ur.

[links]Síðasta laug­ar­dag sagði Karl Gauti, í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu, að hann hefði marg­ít­rekað látið gagn­rýni sína á getu Ingu Sæland til að leiða Flokk fólks­ins í ljós áður en slík gagn­rýni náð­ist á upp­töku á Klaustur bar 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Eins og kunn­ugt er sam­þykkti meiri­hluti stjórnar Flokks fólks­ins að reka Karli Gauta og Ólaf úr þing­flokknum þann 30. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn eftir Klaust­ur­sam­kom­una með Mið­flokks­mönnum og eru þeir því nú utan flokka á þingi.

Í grein­inni gagn­rýndi Karl Gauti harð­lega fjár­mála­stjórnun Ingu Sæland, hann sagð­ist meðal ann­ars ekki geta sætt­ sig við að opin­beru fé væri ráð­stafað til fjöl­skyldu­með­lima stjórn­mála­leið­toga. „Ég tel ekki for­svar­an­­legt að for­­maður stjórn­­­mála­­flokks sitji yfir fjár­­reiðum hans með því að vera jafn­­framt pró­kúru­hafi og gjald­keri flokks­ins. Þá get ég heldur ekki sætt mig við að opin­beru fé sé varið til launa­greiðslna í þágu nán­­ustu fjöl­­skyld­u­­með­­lima stjórn­­­mála­­leið­­toga. Lands­lög kveða skýrt á um vand­aða með­­­ferð þeirra fjár­­muna sem stjórn­­­mála­­flokkar þiggja úr almanna­­sjóðum og er mik­il­vægt að eftir þeim sé far­ið,“ sagði Karl Gauti.

Ólafur tók undir gagn­rýni Karls Gauta á fjár­mála­stjórnun Ingu Sæland í ofan­greindu sam­tali við Morg­un­blaðið. Ólafur sagði að þetta væri gagn­rýni sem þeir hefðu báðir haft uppi og sagð­ist sjálfur hafa gert athuga­semdir við for­mann flokks­ins um fjár­mál­in. „Ég lét uppi við ­for­mann­inn það ­sjón­ar­mið að ég teldi ekki rétt að fjár­mál flokks­ins væru í hönd­um ­kjör­inna full­trú­a. Þetta gerðum við strax báð­ir snemma í nóv­em­ber árið 2017 á þing­flokks­fund­i, ­skömmu eftir að við vorum kjörin á þing. Þegar upp komu ráða­gerð­ir nokkru síðar um að ráða ein­stak­ling úr fjöl­skyldu hennar [á skrif­stofu ­flokks­ins], þá sögðum við við for­mann­inn að þetta væri eitt­hvað sem ætti ekki við. Þetta var á fyrri hluta árs­ins 2018,“ sagði Ólaf­ur.

Inga ætlar ekki að láta prófkúruna frá sér

Inga Sæland hefur svarað gagn­rýni fyrr­ver­andi flokks­manna sinna og sagði það sorg­legt að sjá hvernig fyrr­ver­andi vara­þing­flokks­for­maður stigi nú fram fullur hefnigirni, í sam­tali við Vísi síð­ustu helgi. Hún sagð­ist hvorki hafa fengið gagn­rýni á störf sín sem gjald­keri og próf­kúru­hafi né að sonur hennar hafi verið ráð­inn til flokks­ins fyrr en Karl Gauti hafi sett hana fram.

Inga sagði það rétt að hún hefði gegnt emb­ætti gjald­kera áður en Jónína Björk Ósk­ars­dóttir tók við emb­ætt­inu í des­em­ber í fyrra. „Ég stofn­aði Flokk fólks­ins og er allt í öllu í upp­hafi og var því gjald­keri en lét af því emb­ætti í des­em­ber þegar Jónína Björk Ósk­ars­dóttir tók við,“ sagði Inga.

Hún sagð­ist ennþá vera með próf­kúru á reikn­ingi flokks­ins og að hún ætli ekki að láta hana frá sér. Hún sagði enn fremur að stjórn og kjör­dæma­ráð hafi ákveðið að ráða son hennar á skrif­stofu flokks­ins fyrir síð­ustu borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar. 

Engar athugasemdir verið gerðar við fjármál flokksins

Stjórn Flokks fólks­ins sendi frá sér yfir­lýs­ingu í gær og sögðu frá því að öll fjár­mál flokks­ins hefði verið lögð fram árlega og á réttum tíma undir skoðun lög­gilts end­ur­skoð­anda og Rík­is­end­ur­skoð­anda.

Guð­mundur Ingi Krist­ins­son, vara­for­maður flokks­ins og þing­flokks­for­maður, sagði í þætt­inum 21 á Hring­braut í gær­kvöldi að ekki væri neinn fótur fyrir gagn­rýni á störf Ingu eða flokks­ins. Hann sagði að sonur Ingu hefði þá unnið sem sjálf­boða­liði fyrir flokk­inn og væri nýkom­inn á launa­skrá og væri þar með eini starfs­mað­ur­inn. Stjórnin hefði ráðið hann og sóst eftir því en Inga stigið til hliðar og reyndar ætlað að finna ein­hvern annan í verk­efni sonar síns vegna tengsl­anna.

Karl Gauti vill að brottrekstur sinn sé tekinn til baka

Karl Gauti sagði í við­tali í þætt­inum 21 í gær­kvöldi að hann vilji að brott­rekstur sinn verði tek­inn til baka, og hann fái aftur þing­sætið sitt fyrir flokk­inn ef Inga Sæland hætti sem for­maður. Hann neit­aði alfarið að vilja ganga í Mið­flokk­inn þótt honum hafi boð­ist það og sagð­ist haafa fengið boð frá fleiri flokkum sem hann vildi þó ekki nefna.

Í yfir­lýs­ingu frá stjórn Flokks fólks­ins í gær voru Karl Gauti og Ólafur Ísleifs­son hvattir til að axla ábyrgð á eign gjörðum og segja af sér þing­mennsku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár